Færsluflokkur: Bloggar
16.12.2008 | 22:05
Tími til kominn
Fjórfalt húrra fyrir Sigurði Kára og Helga Áss sem standa nú vaktina á meðan ríkisstjórnin sefur - eða kannski hún sé bara föst í rósrauðum vökudraumi um ESB og vilji ekki styggja vini sína í Brussel.
Það er fráleitt að láta kærufrest í þessu mikilvæga máli líða og samþykkja þannig þá smánarmeðferð sem Gordon Brown og hundingi hans Darling buðu okkur uppá. Það er frumskylda hvers manns að bera hönd fyrir höfuð sér og á sama hátt má segja að það sé frumskylda stjórnvalda að verja þjóð sína þegar á hana er ráðist. Komandi kynslóðir munu ekki þakka fyrir þá arfleifð sem þessi ríkisstjórn er að senda þeim. Við erum ekki hryðjuverkamenn og eigum ekki að taka við þeim stimpli.
Hafi allir flutningsmenn þessarar tillögu mínar bestu þakkir og megið þið koma þessu máli farsællega í höfn. Heiður þjóðar er að veði.
![]() |
Mál verði höfðað gegn Bretum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2008 | 14:59
Jón Gerald á minn stuðning
Frábært viðtal við Jón Gerald í Silfrinu áðan. Hann heldur áfram baráttu sinni og er tilbúinn að leggja til atlögu við Baugsveldið á þeirra eigin vígstöðvum. Opna lágvöruverðsverslun og gefa fólki kost á að sýna í verki að það vilji ekki þá spillingu sem fylgt hefur Baugi og þeim sem því fyrirtæki stjórna.
Nú ríður á að fólk átti sig á samtakamætti sínum. Það er ekki nóg að beina reiði sinni að Alþingi og ríkisstjórn, það þarf að losna undan því áhrifavaldi sem Baugsmenn hafa beitt í baráttu sinni við að koma landslýð á hausinn. Þeir hafa getað treyst á að fólk láti budduna ráða, en budda þeirra helst full með aurunum okkar. Jón Gerald býður valkost og viðskipti sem ekki hafa á sér spillingarstimpil síðustu ára.
Ég vona að Íslendingar taki vel á móti honum og styðji hann í verki, en láti ekki fara fyrir honum eins og Ómari Ragnarssyni sem fyllti Laugaveginn af eldhugum sem létu sig svo hverfa þegar kom að kjördegi.
Ef dæma má viðtökur þessarar fréttar á Eyjunni hef ég trú á að "hann þarna þessi Sullenberger" nái að knésetja Baug og allt það hyski.
![]() |
Hyggst stofna lágvöruverðsverslun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.12.2008 | 10:30
Aftur og aftur og aftur og aftur ..........
... þar til samþykkt. Þegar sagt er að Írar séu reiðubúnir að kjósa aftur er ekki verið að tala um þjóðina sem hafnaði Lissabon-sáttmálanum í júní heldur ráðamenninna sem sitja við veisluborðið í Brussel.
Hjörtur J Guðmundsson er með ágætta færslu á bloggsíðu sinni um framkomu Brussanna gagnvart þjóðhöfðingja fullvalda ríkis, sem ekki kýs að láta Brussel segja sér hvernig þeir eiga að sitja og standa. Holl lesning fyrir þá sem eiga eftir að fá að kjósa aftur og aftur, þar til RÉTT svar fæst.
![]() |
Írar sagðir reiðubúnir að kjósa á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
11.12.2008 | 00:25
Chicago thuggery
Það er auðvelt að bjóða sig fram sem umbótasinni í Illinois. Það er hins vegar óskiljanlegt hvernig kjósendur Illinois láta blekkjast aftur og aftur. En kannski eru þeir bara raunsæir; vita að í Illinois býðst ekkert betra.
Blagojevich gefur Saddam Hussein lítið eftir þegar kemur að fjárkúgunum, mútum og öðru baktjaldamakki og ég er ekki frá því að Al Capon hefði látið þvo kjaftinum á honum upp úr sápu og vítisóta hefði hann hlustað á orðræðu hans og fljúgandi mælsku. Það kæmi svo varla nokkrum á óvart þótt hann hefði tekið sér fleira til fyrirmyndar frá þessum kumpánum. En það á kannski eftir að koma í ljós síðar.
Þessi rannsókn sem nú endar í 76 blaðsíðna ákæru hefur staðið í 5 ár. Verðum við ekki að trúa því að eitthvað hafi gengið á áður en rannsóknin hófst? Fór það framhjá pólitískum samherjum? Blago og Obama voru ekki bara flokksbræður, leiðir þeirra lágu saman á ýmsan veg. Það verður ekki þaggað. Þeir áttu sameiginlegan kunningjahóp. Snilldarvinurinn Tony Rezko átti eyra (og hugsanlega meira) þeirra beggja. Tony bíður nú dóms eftir að hafa verið fundinn sekur um fjársvik í 16 árkæruliðum. Spurning hvort lóðakaup Obama af konu Tonys verða núna dregin fram í dagsljósið.
Hafði verðandi starfsmannastjóri Hvítahússins, Rahm Emanuel (sem kallar heldur ekki allt ömmu sína) eitthvað með fall Blago að gera? Sigaði Emanuel FBI á kauða? Þarf Obama að óttast eitthvað?
Enn sem komið er hefur Obama ekki verið sakaður um aðild að þessari ógeðfeldu fjármálaspillingu flokksbróður síns, en það er óþarfi að ganga út frá því að Obama hafi enga vitneskju haft um það sem þarna gekk á. Hann var ekki meðvitundarlaus þegar hann lagði upp í pólitískan leiðangur sinn og hann var starfandi lögmaður á stofu sem fékkst við ýmis spillingarmál. Í gegnum feril forkosninganna og kosningabaráttuna hljóta menn að hafa spurt sig hvernig utanaðkomandi einstaklingur sem flyst til ókunnrar borgar, hefur þar stjórnmálaferil og verður jafnvel ágengt og raun ber vitni hafi aldrei orðið áskynja um þátttöku sína í spilltustu pólitísku maskínu Bandaríkjanna. Fljúga grísir um himinhvolfið?.
Ef frá er skilinn kosningasigur Baracks Obama þá hefur árið 2008 ekki verið gott ár fyrir demókrata. Hvert hneykslið hefur elt annað. Tugir stjórnmálamanna hafa orðið að taka pokann sinn eða bíða dóms: mútur, fjársvik, kynlíf, ofbeldi og misnotkun opinberra stofnana hafa tröllriðið flokknum, svo að berrassaðir repúblikanar á almenningklósettum falla gersamlega í skuggann. En vegna stuðnings fjölmiðla við kosningabaráttu Obama hefur lítið farið fyrir fréttum af þessum loftfimleikum demókrata. Nú, þegar sigur er í höfn þá má kannski svipta hulunni af. Enda gengur græðgi Blago fram af flestum.
![]() |
Reynt að tengja Obama við ríkisstjórahneykslið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2008 | 22:46
Trúgirni almennings í höndum loddara
Sumar fréttir fara ekki mjög hátt og stundum fara þær svo lágt að það læðist að manni grunur um að þær hafi aldrei gerst. Ein þessara ófullkomnuðu frétta er sagan af undirskriftasöfnuninni sem um tíma ærði þjóðina. Það var reyndar áður en menn uppgötvuðu skemmtanagildið sem falið er í því að grýta eggjum og öðru lauslegu í Alþingishúsið, sletta málningu og bíta lögregluþjóna.
Það er eins og vanti botn í fréttina. Hvar voru undirskriftirnar afhentar, hver tók við þeim og hverju breyttu þær? Vilja aðstandendur söfnunarinnar ekki vinsamlegast standa upp og gera grein fyrir þessum þáttum? Eða voru þeir bara að nýta sér trúgirni almennings til að koma sjálfum sér inn í umræðuna.
Ég tók þátt í undirskriftasöfnuninni því mér ofbauð harka Breta gegn varnarlausri þjóð. Var þó minnug óbilgirni þeirra í þorskastríðinu. Nú líður mér eins og ég hafi verið höfð að fífli (unga fólkið í dag mundi orða það grafískara) og mun hugsa mig um tvisvar áður en ég læt einhverja loddara slá sér upp á minn kostnað í framtíðinni.
Þetta sama eru Írar líklega að hugsa þessa dagana, eftir að fréttist af hádegisverðarfundinum á laugardaginn, þar sem nokkrir útvaldir sendiherrar frá Brussel lögðu á ráðin um hvernig kalla mætti írsku þjóðina aftur að kjörborðinu vegna Lissabon sáttmálans. Sáttmálinn sem hafnað var í júní síðast liðnum og látið var með eins og þar hafi honum verið greitt náðarhöggið.
En hrossaprangararnir í ESB láta ekki smámuni eins og þjóðarvilja leiða sig af braut. Þeirra mottó er: "If at first ou don´t succeed, try, try, try again". Getum við lært eitthvað af þessu?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.12.2008 | 09:37
Sérkennileg sýn á gott og illt
Sýn mbl.is hefur löngum verið sérstök þegar kemur að umfjöllun um forsetaefni Bandaríkjanna. Og hallar þar í ýmsar áttir.
Ég velti fyrir mér hver fyrirsögnin hefði verið ef Sarah Palin hefði verið gripin með sígarettu í munninum. Eitthvað í þessa veru, kannski: "Hvítahúsið breytist í lastabæli"
![]() |
Obama lofar að reykja ekki í Hvíta húsinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2008 | 11:45
Gæludýrið gretti sig
Gæluhvolpur Jóns Baldvins hélt hann ætti eitthvað í Davíð Oddsson. Nú ætti hann að vita betur. Árni Páll ætlaði að slá sér upp með því að tuska Davíð svolítið til. Davíð sendi honum langt nef eins og við var að búast, rétt eins og hann sendi Ingibjörg Sólrún langt nef þegar hún, þá í borgarstjórn, setti fram tillögu um að lýsa Reykjavík kjarnorkuvopnalaust svæði. Við vitum hvernig það fór.
Og við vitum hvernig hugarfar fólks af sauðahúsi ÁPÁ og ISG artar sig. Lítilmenni taka vanmátt sinn út í róg og baktali eða eins og Bragi Kristjóns benti réttilega á í Kiljunni, lítilmenni taka hatur sitt út á einhverju sem þau telja að standi hjarta óvinarins nær. ISG lét setja myndina af Bjarna Benediktssyni í Höfða upp á háaloft og nú er eini sérfræðingur utanríkisþjónustunnar í hermálum sendur til Færeyja. Það hefði mátt ætla að ISG hefði þá greind til að bera að opinbera ekki smæð sína á þennan hátt. En svo er ekki og því situr hún nú uppi með hirðmeyjum sínum á smánarstóli.
Það var heldur ekki viturlegt af ISG að senda hvolpa Samfylkingarinnar út til að gjamma
![]() |
Davíð ber fyrir sig bankaleynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.12.2008 | 10:28
Enginn er fullkominn
... en vinsældir Árna Johnsen felast einmitt í því að hann er "aðgerðasinni" í jákvæðri merkingu. Í stað þess að andmæla öllu og leita sökudólga, brettir hann upp ermarnar og tekst á við aðsteðjandi vanda.
Í dag skipta lausnir máli - tími víls og volæðis hefur runnið sitt skeið.
![]() |
Fjölmenni á fundi hjá Árna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2008 | 13:43
EU-27 = 7.1% atvinnuleysi í október 2008
Nú eru 7.1% vinnufærra manna í ESB ríkjunum atvinnulausir. Það má bera það saman við atvinnuleysið hjá okkur sem var við síðustu fréttir 3.8% Það þótti okkur ógnvænlegt. Eflaust á það eftir að aukast og gæti náð þessari tölu sem þeir glíma við í ESB, en á móti má benda á að það á líka eftir að versna í Evrópu.
Þrátt fyrir þetta atvinnuleysi hrópa menn af húsþökum eftir inngöngu í ESB og upptöku Evru. Sjálfspíningarhvöt mannsins á sér engin takmörk.
![]() |
ESB-aðild ávísun á atvinnuleysi og launalækkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2008 | 10:53
Stöndum vörð um Fullveldið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
-
baldher
-
gattin
-
tilveran-i-esb
-
gun
-
gustaf
-
haddi9001
-
heimssyn
-
aglow
-
jonvalurjensson
-
ksh
-
altice
-
skrafarinn
-
sigurgeirorri
-
blauturdropi
-
postdoc
-
olijoe
-
hugsun
-
iceberg
-
annabjorghjartardottir
-
borgfirska-birnan
-
eeelle
-
gessi
-
elnino
-
muggi69
-
gustafskulason
-
bassinn
-
krist
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
valdimarjohannesson
-
thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.