Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Bankabræðslan

Bankabræðslan

Money, money, money. Neyðarfundir, yfirtökur og paranoia í öllum hornum. Og síðan fór samsæriskenningamaskínan af stað. Davíð Oddson! Já það er einmitt hann sem á sökina á öllum óförunum. Hann gaf strákhvolpunum bankana og atti þeim út í að spreða í útlöndum.  Þessi Davíð sem kom heimskreppunni af stað, kramdi Hallgrím Helgason með bláu hendinni og er nú að vinda síðustu blóðdropana úr góðu gæjunum hjá Baugi.

Hvar stæðu menn ef þeir hefðu ekki Davíð til að kenna um?


Voru það ódýru kjúllarnir?

Því hefur þessi faraldur farið svona lágt í íslenskum fjölmiðlum? Mátti kannski ekki tala um þetta meðan Ágúst Ólafur var að reyna að semja okkur inn í ESB.

Í hvaða matvælum leyndist sýkingarvaldurinn?


mbl.is Sex salmonellusjúklingar látnir í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímanna tákn

Það hlýtur að vera tímanna tákn að músikheimurinn skuli vera uppteknari af því sem verst er frekar en af því sem best er. Enginn er alltaf í topp formi og það á við Bubba sem aðra. En hann hefur líka sent frá sér lög sem eru með því besta sem íslensk dægurmúsik býður upp á.  Þorir kannski enginn að nefna það besta af ótta við að smekkur viðkomandi verði álitinn hallærislegur?


mbl.is Bubbi hefur gert betur en á Konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðverk á gervihnattaöld

Mogginn flytur okkur fréttir af því að "mannvinirnir" í félaginu Ísland-Palestína hafi tekið höndum saman við  Félag Múslima á Íslandi og fært flóttafólkinu á Akranesi rausnarlega gjöf. Gervihnattadiska og móttakara  svo þessir nýju "Íslendingar" geti nú fylgst með fréttum að "heiman". Hvers er að sakna að "heiman"? Vorum við ekki að bjarga þeim úr ömurlegustu mögulegu aðstæðum í ömurlegustu flóttamannabúðum heims?

Mogginn slær þessu upp sem mikilli gleðifrétt. En skammtímaminnið er alsráðandi hjá Morgunblaðinu þessa dagana. Stagast er á því að fólkið sé palestínskt. Þó vita allir að enginn í þessum hópi er fæddur í Palestínu og vafasamt að nokkur þeirra hafi drepið fæti þar niður. Það er viljandi gert að orða hlutina svona, þannig má horfa framhjá þeirri staðreynd að Írakar, sem tóku við forfeðrum þeirra hafa brugðist skyldum sínum. Eins og aðrir nágrannar hafa þeir meinað þessu fólki um eðlileg borgaraleg réttindi, aldrei leyft þeim að aðlagast menningu sinni eða þjóðfélagi, aldrei axlað skyldur sínar sem veitendur. Kynslóðir fæðast og deyja í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs án þess nokkurn tíman að rísa upp úr stöðu hreppsómagans.  SÞ sjá svo um meðlagsgreiðslurnar.

En það er önnur hlið á þessari frétt sem enn síður á að horfa framhjá. Það er sú hlið sem snýr að svokallaðri "aðlögun". Aðlögun einstaklinga að því umhverfi sem þeir lifa í er nauðsynleg svo samfélagið megi ganga hnökralaust fyrir sig. Á þessu hamra grannar okkar þegar spurðir ráða um hvernig komast megi hjá menningarlegum árekstrum.

Reyndar var drepið á þennan þátt í fréttinni, en á annan hátt en maður hefði búist við. Haft er eftir formanni Ísland-Palestína að ""(V)ið viljum bara gera allt til að auðvelda þeim dvölina og aðlögun að umhverfinu hér". Hvað skyldi formaðurinn eiginlega eiga við með þessum orðum? Hvernig styður gervihnattasjónvarp við menningarlega aðlögun fólks? Ef eitthvað kemur í veg fyrir aðlögun innflytjenda (múslima eða annarra) er það sú menningarlega einangrun sem gervihnattasjónvarp flytur með sér.  

Í Evrópu alast heilu kynslóðir innflytjenda upp við slíkan menningarlegan aðskilnað. Við höfum horft á afleiðingarnar; uppþot og óöld ungmenna sem glatað hafa rótum sínum og geta hvorki verið né farið. Væri ekki betra að tala við fólk, leika við börnin og kynna þau fyrir þeim menningarheimi sem stendur þeim hér til boða, frekar en að stilla þeim upp fyrir framan sjónvarpsskerm og láta sem um góðverk sé að ræða.


Grindahlauparinn hefði setið eftir í minni Palin

Klukkutími í návist Ólafs Ragnars getur hafa reynt á þolrif þessarar "action" konu. Og lái henni nokkur þótt þar skolist eitthvað til. Hún hefði hins vegar eflaust getað tekið áskorun um sprett með frúnni. 
mbl.is Palin minnt á fund með Ólafi Ragnari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju spurningamerki?

Hvers vegna setur mbl.is spurningamerki á eftir fyrirsögn þessarar fréttar? Það er engin spurning þarna á ferð. Það var brotist inn í prívat tölvupóst Palin og hann birtur á netinu. Þegar svo er komið er engin hætta lengur á ferð. Nema þá fyrir þingmanns soninn, sem gæti legið illilega í því.

 


mbl.is Tölvupóstur Palin í hættu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lyktandi rósir!

Demókratar hafa fagnað mjög þessari krísu sem ríkir á fjármálamörkuðum- líta á hana sem kærkomið tækifæri til að benda á sökudólga. Ekki ósvipað og Þórðargleðin sem ríkir í Samfylkingunni um þessar mundir, þ.e. kærkomið tækifæri til að klifa á gagnsleysi krónunnar og upptöku Evru, já og ekki má gleyma, inngöngu í ESB.

Í Bandaríkjunum er staðan sú að hvor frambjóðandinn ásakar hinn um hvernig komið er - hvorugur hefur ráð og báðir þreyja þorrann og bíða niðurstöðu fjármálaráðuneytis og seðlabanka. Báðir hafa nokkuð til síns máls. Báðir stóru flokkarnir bera mikla ábyrgð á því hvernig komið er. Allt tal um hrun frjálshyggju fellur með því að ríkið hefur frá upphafi verið með fingurnar í kökunni

Demókratar fyrir sífelldan þrýsting á að bankakerfið dragi úr kröfum um lánaábyrgð- svo fleiri og fleiri sem ekki standast kröfur um greiðslugetu, geti keypt sér húsnæði. Þessi saga nær aftur til forsetatíðar Carters og stærsti kippurinn í þessari sorgarsögu átti sér stað í forsetatíð Clintons. Þarna eru það ríkisafskipti sem skipta mestu máli.

Repúblikanar fyrir að hafa dregið úr regluverkinu með skipulegum hætti án þessa að tryggja að ríkisafskipti á lánamarkaði séu aflögð. McCain hefur verið andsnúinn regluverkinu og unnið gegn því. Engu að síður kom að því að hann sá að í óefni stefndi hjá Fanny og Freddy og árið 2005 gerði hann tilraun til að koma böndum á þessi fyrirtæki. Demókratar stóðu gegn því.

Á sínum stutta ferli í Öldungadeild þingsins tókst Obama að verða næst hæsti þiggjandi greiðslna frá Fanny fyrir að verja hagsmuni fyrirtækisins á þingi, þ.e. >$126,000 í þjórfé. Maður snýtir sér ekki á slíkum aurum.

Ágætt myndband um fjölskyldutengsl Fanny Mae og Demókrataflokksins má sjá á YouTube þessa dagana, þar sem forstjóri FM þakkar svörtum þingmönnum (þ.m.t. Obama) fyrir aðstoðina og biður um skilning og umburðarlyndi gagnvart stöðunni sem komin er upp í fyrirtækinu. Myndbandið er ´frá 2005 og á því er að skilja að staðan sé ekki góð. Þessum upplýsingum höfðu viðstaddir þingmenn ekki fyrir að koma áfram, hvorki til almennings eða inn á þingið.

http://www.youtube.com/watch?v=usvG-s_Ssb0


mbl.is Obama vinnur á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf ekki líka að vana þá?

Það er svolítið fyndið að heyra að ISG telur ástæðu til að senda fjármálafúskarana í meðferð. Þeir hafa þó skapað henni og Samfylkingunni óendanleg tækifæri til að tala niður krónuna og velta sér upp úr Evrópuboðskapnum. Engir hafa gert sér jafnmikinn mat úr þessari peningakrísu og Ingibjörg Sólrún, Björgvin G. og Össur og talað jafn óábyrgt. Og nú á bara að senda gulldrengina í meðferð.

Máltækið "Sjaldan launar kálfur ofeldið" á hér vel við.

 


mbl.is Áhættufíklar sendir í meðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjar eru kröfurnar?

Hverjar eru kröfurnar til íslenskra fyrirtækja, þegar kemur að mengunarmálum? Hér ætlar allt um koll að keyra ef erlend fyrirtæki vilja reka niður staur og ekki eru lætin minni þegar einkaaðilar (ísl) eiga í hlut; hvernig er þessum kröfum háttað með opinber íslensk fyrirtæki?

Árum saman hafa verið gerðar gróðurfarslegar athuganir á umhverfinu í kringum Straumsvík og umræðan um hreinsibúnað álversins í Reyðarfirði ætlaði aldrei að taka enda.  Allir virtust hafa vit á því hvernig ætti að standa að mengunarvörnum. En þessi mikla viska nær ekki til athafna innlendra. Nú vakna menn upp við það að "vistvænu" hitaveiturnar hans Ólafs Ragnars eru að leggja landið í auðn.

Getur verið að önnur lögmál gildi um íslensk fyrirtæki en erlend?


mbl.is Gróðurskemmdir í Svartsengi vegna loftmengunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðugt verkefni

og fyllilega á okkar valdi að standa undir. Við gerðum betur að tryggja börnum í þriðja heiminum leskunnáttu, en eyða kröftum okkar í að sækjast eftir silkihúfum í öryggisráði SÞ.
mbl.is Rithöfundar hvetja til aðgerða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband