Leita í fréttum mbl.is

Að vera fyrstur

Hvað kemur til að mannvinurinn mikli Bill Gates stekkur upp á nef sér og vænir Lyfjaeftirlits stofnun Bandaríkjanna (FDA) um undirlægjuhátt við Trump og varar landa sína við að þiggja bóluefni sem Trump stjórnin vill gefa henni? Maðurinn sem hefur helgað líf sitt leitinni að bóluefni sem linað gæti þjáningar fátækra í þróunarlöndum. Maðurinn sem barist hefur af hörku gegn anti-vaxxers sem ekki hafa vilja þiggja af gnægtarbrunni gæsku hans tekur sér nú stöðu við hlið þeirra. Maður verður létt hvumsa.

En svo minnist maður þess að Bill Gates og frú eru stærstu einstöku kostunaraðilar Alþjóða heilbrigðis stofnunarinnar nú þegar Bandaríkin hafa sagt sig frá henni. Bill Gates er nánast eigandi stofnunarinnar eftir að hafa lagt henni til $2.4 milljarða síðan árið 2000. Á síðasta ári nam beinn stuðningur hans $250 milljónum og er þá ekki talin með fyrirtæki og stofnanir sem hann á drjúgan hlut í en bera ekki nafn hans. Ólíklegt er að skálkurinn Tedros Adhanom  Ghebreyesus væri nú höfuð stofnunarinnar ef ekki hefði notið stuðnings hans og Kína við ráðninguna. WHO og Gates eiga mikið undir að "rétta" bóluefnið komi fyrst á markað enda hefur Gates ásamt fleiri stórlöxum (t.d. George Soros, Anthony Fauci) veðjað á að Gilead verði fyrst í mark. Gilead* er eitt af mörgum lyfjarisum sem lagt hefur WHO til fjármagn og vill líklega fá eitthvað fyrir sinn snúð. Gilead er einnig fyrirtækið sem framleiðir lyfið Remdesivir og græddi á tá og fingri þegar WHO, FDA og CDC lögðust á eitt við að kveða niður orðróm um gagnsemi Hydroxychloroquine vegna CoV-19. Hræbillegt lyf sem nú hefur verið sýnt fram á að dugar vel sem fyrsta vörn gegn sjúkdómnum, en eitthvað varð að gera svo hluthafarnir töpuðu ekki á fjárfestingunni. En nú steðja ógnir að. Talið er að AstraZeneka og/eða Pfizer, jafnvel Moderna geti orðið á undan með bóluefni (þrátt fyrir smá hikst) og þá ríður á að bregða fæti fyrir sigurvegarann. Að það geti svo komið Trump illa er bara bónus. 

Screenshot (84)En kannski er þetta ekki bara einföld spurning um peningar, kannski er þarna líka spurning um orðspor. Fyrr í þessum mánuði þurfti WHO að viðurkenna að þeim hafi orðið á í messunni. Aðeins viku eftir að hafa gefið út yfirlýsingu um að lömunarveiki hafi nú verið útrýmt í Afríku þurfti WHO að gefa út viðvörun um að bóluefnið sem notað hefur verið hafi orsakað lömunarveiki af týpu 2. Tilgreind eru 2 tilfelli í Súdan, en staðreyndin er sú að veikin hefur grasserað í Chad, Eritreu, Eþíópíu og allar götur þvert yfir Afríku til Nígeríu. Auk þess eru börn að veikjast eftir bólusetningar í Pakistan og Afganistan en þar grasserar að auki "wild type" (þ.e. sjálfsprottin) týpa 2 lömunarveiki. Týpa 2 er veikluð veira ólík bóluefninu sem við fáum þegar við ferðumst til þessara landa. Meira en 200 tilfelli hafa verið skráð síðan 2018 en engin leið að staðfesta að þar hafi engu verið leynt. Þó er vitað að Eþíópía lét eyða 7000 skömmtum af týpu 2 bóluefninu eftir svipaðan faraldur þar í landi. Það er ansi hart að eftir 30 ára vinnu og $16 milljónir skuli bólusetningar nú vera einn helsti valdur lömunarveiki í Afríku. Bill Gates hefur lagt mikla peninga í þetta prógram, sem hugsanlega hefði aldrei farið af stað ef hans hefði ekki notið við. Orðspor er því mikilvægt og gott að geta varpað athyglinni annað. 

Fæstir hugsa út í hvernig bóluefni verður til. Hugsanlega sjá menn fyrir sér hvítklætt fólk með hanska og grímur flytja vökva milli glasa á dauðhreinsaðri rannsóknastofu. Það er myndin sem fjölmiðlar varpa að okkur. En áður en bóluefnið kemur til okkar er búið að gera margvíslegar tilraunir með það. Mýs, rottur og mjög líklega apar koma þar við sögu. Og svo eru það menn. Fólk í fátækum þróunarlöndum er tilraunadýr áður en óhætt er að kynna okkur fyrir töfralyfinu sem á eftir að verja okkur fyrir aragrúa af sjúkdómum. Rússland, Kína, Indland og Suður-Ameríka hafa löngum verið þar fremst en eftir því sem efnahagur þessara landa hefur batna hefur orðið erfiðra að fá fólk til að taka þátt. Nú hafa Suður-Afríka og Kenýa tekið við. Samkvæmt clinicaltrials.gov eru yfir 2000 tilraunir með bóluefni og lyf ýmist í gangi eða á teikniborðinu í Suður-Afríku. Þótt margar þessara tilrauna bæti líf okkkar, þá eru aðrar sem skilja eftir ómældan skaða. Skaða sem oft er ekki bættur.   

Týpu 2 lömunarveikisbóluefnið var gefið að undirlagi Global Polio Eradication Initiative sem fjármagnað er af Bill&Melinda Gates stofnuninni. GAVI Vaccine Alliance sem einnig er fjármagnað af Gates er nú að gera 3ja fasa tilraunir með CoV-19 bóluefni á um 20 þúsund Suður-Afríku búum. Við skulum vona að þar fari betur. 

 

*https://www.dr-rath-foundation.org/2019/01/world-health-organization-gates-foundation-now-second-largest-funder-after-u-s-government/ 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband