Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Já, nú er það svart .......

..... og þá á ég ekki við öskufallið undir Eyjafjöllum eða nýjustu skoðanakönnun Gallup um fylgi flokkanna. Myrkrið sem yfir heimsbyggðina hvolfist nú er svartara en myrkur miðaldanna. Í það minnsta vissu miðaldamenn ekki betur. En hafi menn einhvern tímann efast um að Sameinuðu þjóðirnar væru heillum horfnar þá ættu þeir að líta nánar á stöðuna.

Í vikunni var skipað (án atkvæðagreiðslu) í nefnd um kvenréttindi innan Efnahags og félagsmálaráðs Sameinuðu þjóðanna. Ellefu sæti þurfti að fylla til 4 ára og sannaðist það sem áður hefur verið dagljóst að Sþ lúta nú í einu og öllu forsjá og fyrirmælum Samtaka íslamskra ríkja (OIC).

Til að tryggja velferð kvenna í heiminum taldi ráðið að fulltrúi Íran kæmi að bestum notum, en hingað til hafa þeir ekki dregið af sér að því að sýna konum hvernig virða beri yfirvaldið. 

iran_hanging_woman_3Íran nægir ekki að sveipa konur svörtum kuflum frá hvirfli til ilja. Sjáist sólbrúnka á kvenholdi kallar það á hýðingu, meint lauslæti kostar lífið. Íran hengir karla, konur, börn og gamalmenni. Að auki getur kona átt von á að vera grafin í jörð og grýtt til bana. Sitji hún nógu lengi í steininum sjá verðir laganna um raðnauðganirnar. Þá getur jafnvel dauðinn orðið tilhlökkunarefni. 

Það verður fróðlegt að fylgjast með hvort þessi frétt ratar inn í fréttatíma RÚV eða hvort mannréttindasamtök gera athugasemdir við þessa skipun. Íran hefur yfirleitt ekki náð að vekja mannréttindasamtök til dáða. Öll starfsorka mannréttindasamtaka Sþ (HRW) hefur hingað til farið í að skrifa skýrslur um og samþykkja ályktanir gegn Ísrael.

Þar sem Sþ gefa fordæmið er ekki við að búast að fólkið sem á svo greiðan aðgang að Kastljósinu og Rás2 og lýsir þar í smáatriðum mannvonsku Ísraelmanna, hafi hugmynd um að mannréttindabrot séu framin annars staðar í heiminum. Það verður þó að segjast að þessi glórulausa einsýni vekur mann óneitanlega til umhugsunar um að eitthvað annað búi að baki umhyggjunni en barátta fyrir mannréttindum.

En stendur það þá ekki upp á femínista að láta til sín taka í málinu? GrýtingGetum við t.d. búist við að íslenskir femínistar láti sig þessa nefndarskipun varða. Því miður eru litlar líkur til þess. Þetta byggi ég á viðhorfi aðstoðarkonu fyrrverandi heilbrigðisráðherra sem kynnti sér hlutskipti kvenna í Austurlöndum nær og skrifaði um það lærða bók. Taldi aðstoðarkonan ekkert skorta upp á sjálfstæði þessara múslímsku kvenna sem hún hitti og fannst það bara dálítið sætt hvernig menn tóku að sér að lýsa "skoðunum" eiginkvenna sinna, enda líklega aldrei hvarflað að henni að taka orðið af sínum manni.

Í raun eru íslenskir femínistar ekki ósvipaðir múllunum. Komi eitthvað við kviku þeirra er það léttúð og eggjandi ásýnd. Femínistar eru því líklegir til að grípa til boða og banna rétt eins og múllarnir. Bann við lostafullum magadansi mun fyrr hreyfa við þeim en kúgun og kvalræði kvenna. En áður en það getur orði má allt eins ímynda sér að múllarnir verði fyrr til. Sveipi þær svörtum kuflum og sendi á hlýðni námskeið svo þær læri að bera virðingu fyrir sér æðri verum.  

Það mun ekki nást samstaða um nein mótmæli vegna þessa nýjasta skandals hjá Sþ. Hvorki á Íslandi né annars staðar vegna þess að hið margrómaða lýðræði á í vök að verjast. Miðaldaöfl sækja að því. Það er í alvarlegri kreppu og þessi nefndarskipun er birtingarmynd hennar.

5. maí

NRO bendir á að Susan Rice, sendiherra BNA hjá Sþ. hafi ekki einu sinni verið viðstödd þegar Íran var skipað til sætis í nefnd um réttindamál kvenna. Bendir þetta til að kvennréttindamál séu hátt á lista ríkisstjórnar BNA?

 


Kynning á skuldabagga þjóðarinnar fyrir einfaldar sálir

Daniel Hannan setti þetta athygli verða myndband inn á síðuna sína með þessum orðum: "Hverning er hægt að útskýra tölur sem eru svo stórar að mannsheilinn, sem hannaður var fyrir lífið á gresjum Afríku jökultímans (2.588 - 12000 milljón árum Fyrir Nútímann (1950)), hefur ekki grænan grun um hvernig eigi að byrjað að ímynda sér?"

Þetta myndbanda svarar spurningu Daniels. 

 

Eflaust er þjóðarskuld Íslendinga ekkert í líkingu við þennan hrylling og því síður þann breska, en gæti eitthvert talnaglöggt ofurmenni sett skuldabagga þjóðarinnar með Icesave-sökkunni (ásamt vöxtum) upp á álíka einfaldan hátt svo einfaldar sálir skilji hvað verið er að hengja á þær.

Við þyrftum þá ekki að deila um þetta LÍTILRÆÐI sem Jóhanna og Steingrímur Joð segja það vera.


Ein með öllu; Ísland í dag

Fjármálahrunið, ÓRG og Eyjafjallajökull; er á ástandið bætandi? 

Ísland í hnotskurn

Hvað skyldu þessar drunur merkja? Er íslenskur almenningur að láta vita að þolinmæði hans sé þrotinn eða er annað hrun í vændum? Eftir það sem á undan er gengið eru Fannie og Freddie ekki beinlínis það sem mamma og pabbi vilja sjá Baby koma heim með.

 Þarf ekki einhver að láta Fjallkonuna vita að AEJAFJEILAJÓGUL er lentur í slæmum félagsskap? 

Mynd: www.townhall.com

 


Nýtt Ísland eða Gamalt

Endalaust þvaður um afsökunarbeiðnir og tuð um styrki, sem alla (líka fjölmiðlamenn) dreymdi um fyrir ekki svo löngu, tröllríður umræðunni á ljósvakanum. Jafnvel háskólamenn sem þrá ekkert heitar en að komast í styrkjakerfi ESB láta nú sem þeir séu hafnir yfir stjórnmálamennina sem glötuðu dómgreind sinni til Mammons.

Eitt gott kom þó fram á RÚV í dag. Svanur Kristjánsson "hótaði" að segja sig frá stjórmálaþátttöku ef flokkarnir tækju ekki til í styrkjamálum sínum og stjórnlagaþingi verði ekki komið á.

Gerum okkar besta til að láta Svan standa við loforð sín. 


After the Ball is over ....

Hrundrottningin greinir sjúkdóminn Whistling

Hrundrottningin

Loksins þegar skýrsla rannsóknarnefndarinnar kom út og Samfylkingin gat ekki lengur vikist undan ábyrgð þá leitaði hún skjóls í fórnarlambshlutverkinu. Heiðskírir sakleysingjarnir í Samfylkingunni höfðu ekki uggt að sér. Hinir ógurlegu vírusar, nýfrjálshyggjan og Blairisminn, sem leikið hafa lausum hala í heimi viðskipta síðan Sóvétríkin féllu, náðu taki á trúgirni samfylkingarmanna og höfðu þá undir. Samfylkingin trúir þessu sjálf enda varla til önnur skýring á afturhvarfi flokksins til hugmyndafræði gömlu kommanna. Enginn skyldi vanmeta pólitíska yfirbót. Allra síst þegar hún er böðuð tárum. Flott show.

En söguskýringar Samfylkingarinnar eiga sér sjaldnast styrkar stoðir. Hér þarf samfylkingarfólk að velja milli ræðu Jóhönnu á laugardag og Borgarnesræðu Ingibjargar Sólrúnar. Var það ekki í Borgarnesræðu sem Ingibjörg Sólrún vændi Blair um að hafa stolið hugmyndum Kvennalistans og gert að sínum? Það verður því að teljast ómaklegt af Samfylkingunni að gera Blair að blóraböggli í þessari tilraun flokksins til hvítþvottar. Þvert á móti, sé málið skoðað gerir Borgarnesræðan Blair að fórnarlambi framsækinna (sic) mussukellinga og því ótrúverðugt að koma með svona eftirá skýringu. Nema, náttúrlega, við séum hér áhorfendur að uppgjöri þeirra Jóhönnu og Ingibjargar.

Og Jóhanna heldur áfram að velta sér uppúr vitleysunni, þegar hún segir nýfrjálshyggju vera Samfylkingarvírussmitið sem orsakaði sjúklegt ástands flokksins. Veit Jóhanna yfir höfuð hvað hún er að tala um? Hvar kemur nýfrjálshyggja inn í sjúkdómsmynd Samfylkingarinnar? 

Nýfrjálshyggja er týpískur orðaleppur sem samfylkingarfólk slær um sig með, án þess að gera minnstu tilraun til að útskýra merkingu hans. Fyrir utan þá staðreynd að grundvallarforsendur NÝFRJÁLSHYGGJU (neoconsevatism) eru ekki fysískt til staðar á Íslandi, þá fellur ímynd orðins engan veginn að stjórnarháttum Sjálfstæðisflokksins. Betur að svo hefði verið. Eða hvernig útskýrir Samfylkingin 37% fjölgun opinberra starfsmanna á síðustu 8 árum stjórnarsetu Sjálfstæðisflokksins sem óbeislaða "nýfrjálshyggju"? Eða 43 nýjar ríkisstofnanir á 14 árum, flestar sem við gætum hæglega komist af án? Var það kannski nýfrjálshyggja Sjálfstæðisflokksins sem neyddi Samfylkinguna til að samþykkja 20% hækkun á fjárlögum milli áranna 2007-2008, hækkun sem að mestu leyti fór til að blása út ráðuneyti Samfylkingar? Tuttugu prósent hækkun sem enn stefndi þráðbeint upp í loftið þegar Hrunið varð. 

Samfylkingin þarf að horfast í augu við að hún getur ekki skellt skuldinni á aðra. Blairismi og nýfrjálshyggja útskýra ekki meinið sem nagar flokkinn. Óheilindi, ráðleysi og dáðleysi eru höfuðeinkenni Samfylkingarinnar. Í þeim efnum eru hún enginn eftirbátur Steingríms Joð og félaga í einbeittum brotavilja gegn íslenskri þjóð.  

 

Mynd1: www.vb.is

Mynd2: www.unicef.org

 

 


Listin að leika á lagabókstafinn

Vilhjálmur BjarnasonVilhjálmur Bjarnason er hetja helgarinnar. Hingað til hefur krafa almennings verið á hendur stjórnmálamanna, viðskiptalífsins og fjármálageirans að taka til í sínum ranni. Það sem höfnun Vilhjálms á gjöfum gangsteranna sýndi umfram allt var að ábyrgð siðbótar liggur hjá hverjum og einum. Vilhjálmur er maðurinn úti í bæ sem gerði okkur ljóst að þegar við þiggjum mútur þá erum við samsek. Hver og einn getur nú litið í eigin barm og spurt sig -hvað gerði ég og hvað get ég gert til að bæta fyrir brot mín?

En þótt við eigum öll einhvern þátt í því hvernig fór erum við þó ekki öll jafn sek. Hafi Vilhjálmur verið hetja helgarinnar, þá voru skúrkarnir þó fleiri. Lekinn úr tölvupóstum stjórnenda Glitnis opinberar hina kaldrifjuðu aðför sem þeir gerðu að viðskiptamönnum og smærri hluthöfum bankans. Lekinn sýnir, svo ekki verður um villst, þá spillingu sem viðgekkst í bankakerfinu undir það síðasta. Ekki bara hvernig stjórnendur bankans ráðskuðust með fjármuni fólks sem lagt hafði sparnað sinn í hendur þeirra heldur sýnir hann líka hvernig mörk góðra starfshátta voru afmáð og brotin þvers og kruss. Græðgi, hroki, barnalegur sjálfbirgingsháttur og siðblinda réðu ferð. Það voru mér því gríðarleg vonbrigði í morgun þegar ég heyrði talað um að samkvæmt einhverjum  niðurstöðum í meistararitgerðar laganema við HÍ væru slíkar gloppur í lagasetningu um ábyrgð eigenda, (sérstaklega varðandi skuggastjórnendur) sem gerðu að verkum að þeir yrðu ekki sakfeldir. Þar var átt við skuggabaldurinn sjálfan, Jón Ásgeir, nema fleiri stjórnarmenn hafi tekið þátt í leiknum. En svona rúlla teningarnir í réttarríkinu og Jón Ásgeir vissi nákvæmlega hvar hnífsegg lagabókstafsins lá.

Viðskipta mógúll

Þrátt fyrir vonbrigðin kemur mér það ekki sérstaklega á óvart að topparnir eigi kannski eftir að sleppa óskaddaðir frá þessum hrunadansi. Frístundir mínar hafa verið fáar undanfarin ár, en Páskafríið núna gaf mér tækifæri til að hvílast frá amstri hversdagsins og lesa nokkrar bækur mér til skemmtunar. Tvær þeirra eru mér eftirminnilegastar og má segja að þær fleigi á undarlegan hátt fréttir þessarar viku. Önnur fjallar um dreng með Asperger´s heilkenni, The Curious Incident of the Dog in the Night-Time  og hin fjallar um bókhaldsbrellur. Stolen without a Gun; Confessions from inside history´s biggest accounting fraud  er hrein opinberun á hvernig fjarskiptafyrirtækið MCI í Bandaríkjunum beitti ótrúlegum brellum til að halda verðgildi hlutabréfa uppi meðan stjórnendur þess unnu að því að koma fyrirtækinu í sölu. Allt stemmdi að því að hámarka arð eigendanna. Goldsmith-æfingarnar hjá Glitni gefa þeim loftfimleikum ekkert eftir.

Stjórnendur MCI höfðu erindi sem erfiði, losuðu sig við fyrirtækið í faðm WorldCom sem uppgötvaði ekki fyrr en eftir á að það hafði keypt köttinn í sekknum. Kaupverðið, $37 milljarðar reyndist 50% hærra en eignir félagsins, sem var þó snöktum skárra en verðmiði WorldCom eftir að FBI hafði farið höndum um það. Vinnubrögðin hjá WorldCom voru ekki svo ýkja frábrugðin því sem átti sér stað hjá MCI, enda byggði FBI rannsókn sína á MCI vinnunni þegar þeir tókust á við risann WorldCom; stærsta fjársvikamál sem flett hafði verið ofan af þar til Enron og undirmálslánin sprungu í andlit eigenda sinna.

WorldCom varð svo að segja gjaldþrota þegar virði þess á markaði fór úr $153 milljörðum í 6.8 en hluthafar og æðstu stjórnendur MCI gengu hins vegar frá sínu flaki með fullar hendur fjár. Starfsmenn á plani sem séð höfðu um skítverkin fengu svo nýtt hlutverk við að telja sprungurnar á innveggjum ríkisfangelsanna. Hver örlög Jóns Ásgeirs og kumpána verða er ekki gott að segja en einhvern veginn læðist að manni sá grunur að þeir komist frá þessu án verulegra áverka og bókhaldið dæmist á ábyrgð skúringakonunnar.

Samkvæmið var á heimsvísu alstaðar eins; ungir hungraðir menn án samvisku:  Wall Street traders

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En þá komum við að þessum skemmtilegu tilviljunum sem lífið er alltaf að skenkja okkur. Í vikunni las ég grein í DailyTelegraph sem tengdi Páskalesninguna mína svo undarlega saman, þ.e. bókhaldsbrellurnar og Asperges heilkennið. Í greininni var fjallað um náungann sem varð milljóner á undirmálslána-brellunum sem urðu fjárglæframönnum í íslensku bönkunum að falli. Það er með ólíkindum að heimurinn skuli riða til falls vegna bólu sem var hönnuð af manni sem hafði ekki grundvallarkunnáttu í viðskiptafræði og aðeins tekið einn kúrs í tölvunarfræði og það skuli vera til í þessu sama sólkerfi læknir, haldinn þeirri undarlegu hegðun sem kallast Asperger´s sem gerði honum kleift að lesa í gegnum textann á þessum banvænu skuldabréfavafningum og græða á því fúlgur fjár.

Til að skilja hvað keyrði hina djöfullegu atburðarás áfram þarf hinn almenni borgari, sem í mesta lagi hefur verið þátttakandi í þeim bókhaldsbrellum sem felast í kaupum á svartri vinnu, að lesa sig til. Óþarfi að einskorða sig við "gulldrengina" okkar því hér erum við að tala um atburði og hegðun á heimsvísu og nóg er af bókum á markaði þótt misgóðar séu. Einn fyrrverandi verðbréfasali, Michael Lewis, hefur gert það gott í bókabransanum. Hann lýsti atburðarásinni á Wall Street fyrst í bók sinni Liar´s Poker og hefur nú skrifað nýja bók um það sem leiddi til þeirra vandamála sem þjóðir heims eru nú að berjast við. Nýja bókin heitir The Big Short: Inside the Doomsday Machine og gefur, samkvæmt greinarhöfundi DT, þeirri fyrri ekkert eftir. "dómsdags maskínan" ætti því að vera bitastæðari lesning en hvítþvottabækurnar sem þátttakendurnir í íslenska samkvæminu hafa lagt á náttborð landsmanna, það er að segja ef menn vilja skilja atburðarásina.

Þeir sem vilja feta í fótspor Vilhjálms geta svo t.d. lagt sitt af mörkum til betra samfélags næst þegar þeim er boðin svört vinna.

Allt telur.

 

Mynd1: www.photoshelter.com

Mynd2: www.dv.is

Mynd3: www.nymag.com


Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband