Leita í fréttum mbl.is

Hvernig skal tekið á móti vágestinum?

Viðbrögð við Wuhan faraldrinum hafa verið á ýmsan veg, en eftir því sem ferli farsóttarinnar vindur fram koma fleiri möguleikar í ljós. Blóðvökvagjafir, lyfjakokteilar og náttúrulegar varnir eru á borðinu hver um sig studd vísindalegum rökum. Sem eldri borgari varðar mig um hvað er að gerast í heimi covid-vísindanna og vegna skorts á upplýsingum frá hinu heilaga þríeyki fer ég mínar egin leiðir við að afla mér þeirra. Í dag er það tiltölulega auðvelt því of mikið hefur nú þegar verið birt til að læknavísindin geti aftur vakið upp mátt töfralæknanna. Því síður dugar það Kára að uppnefna fólk sem andmæla tillögum hans, því við erum komin þónokkurn spöl frá miðöldum og látum ekki lengur þagga niður í okkur.

Svo, hvar liggur varnarlínan í dag?

Screenshot (79)

Vonir sem bundnar voru við blóðvökvagjafir munu ekki duga nema fyrir fáa. Mótefnin í blóðvökvanum þurfa að vera í háum títer til að gagnast sem best og þau þarf að gefa mjög snemma í ferlinu. Innan við 4 daga frá innlögn. Mótefnin í blóðvökvanum gegn veirunni geta linað sjúkdómseinkenni og flýtt fyrir bata. En misjafnt er hve mikið hver einstaklingur framleiða af mótefnum gegn veirunni og þau hafa aðeins ákveðin líftíma. Blóðvökvagjöf er líka háð því að fólk sé tilbúið að koma inn og láta tappa af sér. Því mun aðferðin aldrei gagnast nema tiltölulega fáum. En er á meðan er.

Lyfjanotkun er flóknara mál og kannski aldrei eins og nú eftir að pólitíkin komst í spilið. Án þess að hafa fullvissu fyrir því grunar mig að hér heima byggi lyfjagjöf helst á notkun stera. Þá er Dexamethasone líklegasti kandidatin, þótt nýlega birtar niðurstöður sýni að aðrir sterar komi einnig að notum. Dexamethasone bætir lífslíkur inniliggjandi sjúklinga umtalsvert. Það sýna líka nýlegar niðurstöður belgískra lækna um notkun lágskammta Hydroxychloroquine (HCQ) gjafa, en á það má víst ekki minnast því þá fer hið heilaga apparat á hvolf. En HCQ kemur að bestu notum þegar sjúkdómurinn er á byrjunarstigi.Það ætti því að vera undrunarefni hvers vegna stóru rannsóknirnar á vegum OCEBM og WHO leyfðu sér að nota margfalda ráðlagða skammta til að kanna réttmæti fyllyrðinganna um gildi HCQ þegar þær komu fyrst fram. Skammtar sem kölluðu fram margvíslegar aukaverkanir og hugsanlega óþarfa dauðsföll. En eftir að hafa fylgst með pólitíkinni sem umlykur lyfjabransann og hatrið á Trump (sem missti út úr sér að honum litist bara vel á HCQ- meðferðina) á maður víst ekki að verða hissa þótt fæti sé brugðið fyrir óæskilega upplýsingar. 

Sjúklingur á áttræðisaldri tjáði sig í Morgunblaðinu í vikunni og kom þar í ljós að hann hafði fengið veirulyfið Remdesisivir ásamt súrefnisgjöf. Við þær aðstæður er Remdesivir líklegast til að koma að gagni, þ.e. meðan sjúklingur er á súrefni en áður en hann þarf á öndunarvél að halda. En ólíkt hinum tveimur lyfjunum sem nefnd eru, þá er Remdesivir rándýrt lyf og til í takmörkuðu magni. Samkvæmt athugun frá BNA kostar meðhöndlun hvers covid-19 sjúklings $3200 á meðan Dexamethasone meðhöndlun kostar innan við $100. Ennþá ódýrara væri að setja alla á lágskammta HCQ strax við greiningu og losna við sem flestar innlagnir. Það er því undrunarefni öllum sem skoða þessa belgísku rannsókn, sem náði til 8000 einstaklinga, hvers vegna stóru rannsóknirnar sem OCEBM og WHO settu af stað til að kanna gagnsemi HCQ, studdust við margfaldan ráðlagða skammta af lyfinu sem aftur kallaði fram margvíslegar aukaverkanir. 

En meðan beðið er eftir brúklegu bóluefni er ekki úr vegi að skoða nýlega rannsókn á vegum Southhampton háskólans og lyfjaþróunarfyrirtækisins Synairgen. Um er að ræða tvíblinda rannsókn með lyfleysu viðmiðunarhópi, þar sem könnuð voru áhrif beta-interferon nefúða og komist að áhugaverðri niðurstöðu, þ.e. að 79% þátttakenda í áhættuhópi áttu síður á hættu að verða alvarlega veikir af vírusnum borið saman við sambærilegan hóp sem fékk lyfleysu. Öndunarörðuleikar voru jafnframt tvöfalt minni en þeirra í lyfleysu hópnum. Beta-interferon er nú þegar notað gegn MS og því eru verkanir þess kunnar. Úrtakið var 101 og því þarf að prófa þetta í stærri hópi, en það lofar góðu.     

Beta-interferon er náttúrulegt boðefni sem er framleitt í sýktum frumum. Það virkar bæði innan og utan frumu, hindrar m.a. fjölföldun RNA sem er veirunni nauðsynlegt til að hún nái að fjölga sér og eftir losun úr sýktri frumu binst það sama viðtaka sem veiran notar til að komast inn í frumur. Nokurskonar lok, lok og læs protein sem gagnast ekki bara gegn þessari veiru heldur getur líka gagnast gegn öðrum veirum, s.s. flensuveirum. Gæti verið mjög spennandi valkostur þegar hin árlega flensa heldur af stað í hrigferð sína um hnöttinnog hittir fyrir covid-sjúka.

Það þarf greinilega að hafa margt í huga þegar pestin er annars vegar. Eftir sem áður er vænlegast að þvo sér vel um hendur, passa upp á fjarlægðarmörk og bera grímu í mannþröng og koma þannig fyrir smit.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband