31.3.2011 | 20:40
Sagan endurtekur sig
Og svo eru það þeir sem trúa á breytingar, jafnvel í endurtekningunni.
Þetta eru erfiðir dagar fyrir Obama aðdáendur ekki síður en fyrir Vinstri græn.
Mynd: www.townhall.com
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2011 | 17:53
Aldrei of mikið í lagt eða hvað?
Héldu þeir að þeir gætu leikið þetta eftir?
Það er óborganlega fyndið að fylgjast með fréttum af landinu eina þessa dagana. Á meðan allt er á hvínandi kúpunni: kjarasamningar í uppnámi, Icesave óafgreitt (blessunarlega), ríkisstjórnin komin í stríð við Gaddafi og Össur farin að gefa G5, 7 eða 9 ráð þá kemur ríkisstjórnin sér saman um að það sem mest liggur á þessa stundina sé að fjölga í sveitastjórnum.
OR á hausnum og borgarstjórinn og kónar hans uppteknir við eigin frama í skemmtanabransanum, nú eða á sviði hinna skapandi lista þar sem eftirherman ríkir ofar öllu. Þá þarf að fjölga í borgarstjórn svo "þessir fulltrúar fólksins" geti enn frekar sinnt sínum ómetanlegu hugðarefnum. Ekki færri en 23 þarf til að stjórna borginni og ef það reynist þeim of þungbært þá má bæta við 7 til viðbótar. Og blessuð ríkisstjórnin sem heldur að skattar leysi öll mál tekur flugið með þeim.
En þó þau 36% aula sem kusu þennan ófögnuð yfir okkur tækju höndum saman um að stjórna borginni þá dygði það ekki til. Borginni verður aldrei stjórnað af aulum. Til að vinna verk þarf aðeins einn með viti og nokkra sem hafa skilning á því.
Það er allt og sumt.
Mynd: WWW.hi5.com
Viðbót dagsin 30. apríl
Með vísun í þessa færslu legg ég til að forsíðumynd Moggans í dag verði tilnefnd sem upplýsinga- MYND ÁRSIN. Eins og þriðjungur þjóðarinnar veit (sem les Moggann) þá er myndin af Borgmeister og öðrum fyrirmönnum borgarkerfisin. Hún lýsir því sem lýsa þarf um getuna sem í þesum forsprökkum býr.
(ef vantar einhver "s" á stangli í þessa færslu þá er tölvan mín að stríða mér þessa dagana. S-leti hrjáir hana og ekki útséð um að fáist lækning. Bætið bara s-um við þar sem ykkur þykir vanta.)
Bloggar | Breytt 30.3.2011 kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2011 | 20:16
Allt vald á einni hendi
Vegna anna læti ég hér fljóta með grein sem ég sendi Morgunblaðinu fyrir stuttu. Blaðið var svo vinsamlegt að birta hana almennigi og þótt ég geri fastlega ráð fyrir að lesendur síðu minnar séu dyggir áskrifendur Moggans er sjálfsagt að gera ráð fyrir undantekningunum. Þær gera jú lífið svo undursamlega skemmtilegt.
Hér kemur greinin:
Allt vald á einni hendi
Allt frá stofnun lýðveldisins hefur Ísland verið í hópi hefðbundinna lýðræðisríkja þar sem stjórnskipanin byggist á þrískiptingu valdsins: Alþingi setur þegnunum lög, framkvæmdavaldið framfylgir þeim og dómsvaldið sér um að rétta af kúrsinn þegar lög eru brotin. En svo breyttist allt. Siðleysingjar hrifsuðu til sín tauma efnahagslífsins og lögðu landið í rúst. Þegar fyrsta áfallið var yfirgengið reis almenningur upp og krafðist nýs Íslands. Burt með vanhæfa ríkisstjórn hrópaði lýðurinn á Austurvelli og kveikti elda. Siðvæðingar var krafist ekki bara í viðskiptalífinu heldur einnig stjórnmálunum. Langar skýrslur voru skrifaðar um orsök falls efnahagslífsins en lítið hefur farið fyrir umbótum á grundvelli þeirra. Í umrótinu sem upp kom náðu valdasjúkir lýðskrumarar fótfestu. Ný ríkisstjórn var kosin undir kjörorðinu gagnsæi og heiðarleiki. Út með spillinguna var lofað. Skjaldborg um heimilin var lofað. Endurnýjun trausts umheimsins var lofað. Hverjar hafa svo efndirnar orðið? Öll loforð hafa verið svikin katagórískt. Samfylkingin sem þegið hefur allt sitt frá bófunum sem keyrðu landið í þrot situr sem fastast á valdastólum sínum og hegðar sér nú eins og hrein mey á útihátíð; tilbúin að gefa dýrasta djásnið. Vinstri græn hafa helst til frægðar unnið að svíkja öll sín kosningaloforð. Fram að setu í ríkisstjórn hafði flokkurinn orð á sér fyrir heiðarleika, en lítið fer fyrir þeim eiginleika um þessar mundir. Þetta er í stuttu máli saga síðustu tveggja ár þótt atriði eins og aðgerðaleysi í atvinnumálum og fólksflótti af landinu séu einnig ofarlega á afrekaskrá þessarar fyrstu hreinu vinstristjórnar sem hér gengur í takt við allar aðrar slíkar stjórnir.
Snemma á ferli þessarar ríkisstjórnar varð vart við ofríki hennar gagnvart þingheimi. Ógleymanleg er atkvæðagreiðslan um umsókn að Evrópusambandinu, þar sem nokkrir þingmenn Vinstri grænna greiddu kjökrandi atkvæði með tillögunni. Við þá afgreiðslu urðu vatnaskil fyrir þingflokk þann. Heiðarleika og hugsjónum var varpað fyrir róða en valdið afhent Samfylkingunni fyrir fullt og allt. Enginn rís undir slíkum svikum. Við þetta má nú flokkurinn búa. Með afsali hugsjónanna voru mörkin milli þings og framkvæmdavalds afnumin og þingið er nú djúpt í vasa ríkisstjórnarinnar. Dauðakippir hugsjónafólksins minna aðeins á voðaverkið.
Og þá var röðin komin að hinu víginu. Næsta fórnarlamb alræðisstjórnarinnar er dómsvaldið. Árásir á dómstólana eru daglegt brauð og ganga þar fremstir forsætisráðherra og dóms- og innanríkisráðherra. Falli dómar ekki ráðherrum í hag eru dyggustu stuðningsmenn stjórnarinnar sendir út á torg, hrópandi lagatæknar - pólitískir dómarar - siðleysingjar. Siðleysi hrópandanna er þó sýnilegast. Einhvern tíma hefði heyrst sagt heggur sá er hlífa skyldi, en ekki núna. Nýjasta atlaga skötuhjúanna beinist að Hæstarétti landsins sem vogaði sér að dæma gæluverkefni forsætisráðherrans, stjórnlagaþingið, ógilt. Þetta er annar dómur af tveimur sem fallið hefur gegn ráðherravaldinu, en varla sá síðasti. Klúður á klúður ofan varð til þess að rétturinn komst ekki hjá því að taka þessa afstöðu. Sex dómarar sammála. En einræðisherrann í brúnni sættir sig ekki við að landslög nái til verka ríkisstjórnarinnar. Nú eiga hinir handjárnuðu þrælar á Alþingi að afhenda stjórninni þriðja valdið og dæma Hæstarétt ógildan. Engu skiptir í umræðunni að dómarar dæma eftir lögum. Lögum sem sett hafa verið af Alþingi. Auðvita má halda því fram - og upphrópanirnar bera það með sér - að alviturt alræðisvaldið sé hæfast til að hafa vit fyrir okkur. Það tókst svo bærilega í Ráðstjórnarríkjunum. En ættum við þá ekki bara að viðurkenna að hér ríkir alræðisstjórn og leggja af óþarfa stofnanir eins og Alþingi sem stritar við að semja lög sem ekki þarf að fara eftir.
Sparnaður við að leggja Alþingi niður yrði 2.994 milljónir á ári samkvæmt nýjustu fjárlögum, en sparnaður er ekki á hugtakalista ríkisstjórnarinnar og auðvitað er óhugsandi að hún fari að leggja áróðursmaskínu sína niður. Hún er einræðisherrunum ómissandi. Þegar horft er yfir sviðið er ekki að sjá mikinn mun á vinnubrögðum ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna og þeim einræðisstjórnum sem berjast fyrir lífi sínu um alla norðanverða Afríku þessa dagana. Valdahungrið er hið sama en kannski ekki eins mikið blóð ... og þó. Atvinnulausum, heimilislausum og landflótta Íslendingum blæðir undan verkum ríkisstjórnarinnar. Og siðleysið er hér jafnvel meira því hér fara stjórnvöld fram undir gauðrifnum fána lýðræðis. Hræsnin speglast í öfugmælunum norræn velferðarstjórn.
Mynd: www.vladimiramichalkova.edublogs.org
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2011 | 22:19
Er allt réttlætanlegt í kjarabaráttu?
Hey, hey, ho, ho, Scott Walker has got to go.
Harðvítug pólitísk deila hefur staðið í Madison, Wisconsin um nokkurra vikna skeið. Deilan snýst um að koma böndum á fjárlagahalla fylkisins, en Wisconsin er líkt og mörg önnur fylki Bandaríkjanna illa statt fjárhagslega. Fylkisstjórinn Walker lagði til að opinberir starfsmenn tækju meiri þátt í eftirlaunagreiðslum sínum og að réttur þeirra til samninga umfram aðra hópa væri afnuminn, svo og skylduaðild þeirra að verkalýðsfélögum. Allt fór í háaloft á þingi og brugðu þingmenn demókrata á það ráð að flýja yfir fylkislínu til að koma í veg fyrir atkvæðagreiðslu um málið, en repúblikana vantaði einn upp á að 2/3 þingmanna væru til staðar. Samkvæmt lögum má þingið ekki fjalla um fjárhagslegar skuldbindingar nema að 2/3 þingmanna séu til staðar.
Valið sem Walker stóð frammi fyrir var annað hvort að segja upp 1500 manns eða skuldsetja fylkið enn frekar. Eftir 4 vikna þrátefli tók hann ákvörðun um að kljúfa réttindi starfsmanna frá launaliðnum og fékk það samþykkt. Afnumin var félagaskyldan, sjálfkrafa hækkanir og samningsrétturinn heftur á ýmsan veg. Allann tímann var þinghúsið umsetið og mótmælagöngur farnar þar sem læknar buðu veikindavottorð til skrópandi starfsmanna. Gífuryrði féllu og fengu nokkrir þingmenn morðhótanir svo fátt eitt sé nefnt.
Enginn vill missa þau réttindi sem hann hefur náð sér í, en er réttlætanlegt að senda börn út á vígvöllinn? Hér hefur það verið gert og má spyrja sig hvort þau hafi öll skilið slagorðin sem kennarar þeirra lögðu þeim í munn. Efast má um það.
Mynd: www.townhall.com
Bloggar | Breytt 16.3.2011 kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2011 | 16:31
Sjálfkjörnir heiðursmeðlimir evrópskra samtaka landráðamanna (ESL)
Fullveldissinnaður lífeyrisþegi lét í sér heyra í Morgunblaðinu í vikunni. Taldi hann landráðamenn vinna ljóst og leynt að afsali fullveldis Íslands þótt ekki færi hann nánar út í þá sálma. En hitt hafði hann á hreinu að eftir sölu Landsbankans til Björgólfsfeðga var bankinn kominn í einkaeigu og því ekki legngur á ábyrgð þjóðarinnar. Nei við Icesave var því niðurstaða þessa heiðursmanns.
En auðvita er rétt hjá manninum að landráð eru nú framin á Íslandi af óþjóðhollri Samfylkingu og meðreiðarsveinum hennar. Takist þessum landráðalýð ætlunarverk sitt munu þeir finna fyrir félagsskap við hæfi. Daniel Hannan, þingmaður breska íhaldsflokksins á Evrópusambandsþingi, birti bréf á síðu sinni í Daily Telegraph í síðustu viku sem sýnir að Össur, Jóka, kompaní og co munu ekki verða tiltakanlega utanveltu þegar þau taka sæti á þeirri samkundu. Bréfið var frá Evrópuþingsmanni Lib Dem, Andrew Duff til þingforsetans Jerzy Buzek um hvernig sniðganga megi grunnsamninga þjóða ESB, svokallaðan Rómarsáttmála.
Duff sem er heitur aðildarsinni hefur fylgst með vaxandi óánægja Breta hvað varðar yfirgang ESB á fullveldisrétti þeirra. Þessi óánægja hefur verið að magnast síðustu misserin og eiga úrskurðir Mannréttindadómstóls Evrópu stóran þátt í þeirri óánægju. Er nú svo komið að breska þingið er þessa dagana að fjalla um frumvarp sem gerir ráð fyrir að allt fullveldisframsal verði borið undir þjóðaratkvæði í framtíðinni. Líkur eru á að frumvarpið fáist samþykkt.
Þar koma landráðasvikin inn. Duff leggur til við þingforsetann að breytingar verði gerðar á Rómarsáttmálanum til að koma í veg fyrir að þjóðarvilji nái fram að ganga. Og við erum hér að tala um vilja hans eigin þjóðar. Breytingartillaga Duffs felst í að í stað þess að öll ríki samþykki breytingartillögur samkvæmt Rómarsáttmálanum samhljóma, þá verði sá háttur hafður að breytingar á sáttmálum taki gildi þegar 4/5 ríkja hafa ljáð þeim samþykki. Þeirri ákvörðun verði svo ekki áfrýjað þótt einstök ríki hafni breytingunni, eins og núgildandi sáttmáli gerir ráð fyrir. Óþjóhollusta Duffs er hrópandi en hún mun ekki ýfa háar öldur í höfuðstöðvum Samfylkingarinnar.
Sama landráðahugsun ríkir hér meðal aðildarsinna. Við höfum kynnst henni í orðræðunni um aðildarumsókn eða aðlögunarferli. Við höfum kynnst henni í yfirlýsingum utanríkisráðherra um skapandi samningaviðræður sem ekki þurfa að taka tillit til veruleikans og við höfum kynnst henni í viðhorfum viðskiptaráðherra til upptöku evrunnar, þótt ekkert bendi til að evran leysi sinn eigin vanda hvað þá heldur okkar. ESB er í öllum tilvikum upphaf og endir vitsmunalífs aðildarsinna. "Come hell or high water".
Draumurinn um sameinaða Evrópu byggir á tálhugmynd sem aldrei getur orðið. Bandaríki Evrópu verða aldrei að veruleika, því þúsund ára saga Evrópu leyfir það ekki.
Svikarar eins og Duff, Össur og Jóka breyta ekki þeirri mynd.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.2.2011 | 20:56
Að hafa taumhald á tímanum!
Þarf að segja eitthvað meira?
Obama bíður eftir að Sþ og EU taki á málum í Norður-Afríku sem bendir til að hann hafi yfirhöfuð ekki neina utanríkisstefnu, því enginn með tvær sellur til að nudda saman í toppstykkinu býst við að Sþ eða EU geri eitthvað í málinu.
Samfélagssmíði er verkefnið á heimavellinum.
Mynd: www.townhall.com
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2011 | 21:27
Er heyrnin að gefa sig?
Stutt frétt á Stöð 2 fékk mig til að trúa að heyrn mín væri að gefa sig, en samkvæmt fréttinni eru Íslendingar nú komnir á kaf í hergagnaflutninga Bandaríkjahers til Afganistan.
Eitt augnablik hélt ég að ýtt hefði verið á rangan takka og frétt frá 2003 óvart farið í loftið, þar sem skúrkarnir Halldór og Davíð léku illvirkjana. Nei, fréttin er splunkuný og nú var það hinn vammlausi innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, sem brugðið hafði sér í gervi bandítsins m.þ.a. veita Atlanta flugfélaginu leyfi fyrir vopnaflutninga til Afganistan; útsett hina "friðelskandi" og vopnlausu íslensku þjóð fyrir grimmri hefnd Talibananna. Þetta er sami Ögmundur Jónasson sem haldið hefur brennheitar ræður um böl stríðs, meðal annars hjá Ungum Vinstri grænum þar sem kjörorðin voru "heilbrigða stefnu í utanríkismálum" og "að Ísland verði herlaust land og taki ekki þátt í stríðsaðgerðum af neinu tagi". Ögmundur sem sagði "að Halldór og Davíð (hafi gert) okkur samsek um Íraksstríðið". Ögmundur sem á síðasta ári lagði fram þingsályktunartillögu um rannsóknanefnd á aðdraganda ákvörðunar um stuðning Íslands við innrásina í Írak. Ögmundur sem sendi atvinnulausum á Reykjanesi langt nef þegar hann hafnaði að veita ECA rekstrarleyfi til viðhaldsþjónustu á hervélum með orðunum "Að mínu mati væri verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni með því að gefa þessu fyrirtæki leyfi og fyrir mitt leyti er þetta mál útaf borðinu".
Nú situr þessi Ögmundur í innanríkisráðuneytinu og stimplar skotleyfi á Íslendinga fyrir Talibanana, svo notaðar séu hans eigin ályktanir.
Mynd: www.mbl.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2011 | 14:32
ESB styður nýsköpun í atvinnumálum á Spáni
ESB kemur atvinnuleysingjum á Spáni til aðstoðar. Kannski ekki nægilega rausnarlega til að útrýma atvinnuleysi hjá þessum 20.3 prósentum sem hanga á hurðarhúni vinnumálastofnunar Zapateros, en þó nóg til að sýna lit.
Ríkisstjórn Íslands sem hefur inngöngu í ESB á dagskrá ætti að íhuga að bæta umsókn til slíkra nýsköpunarverkefna í styrkumsóknabunkann. Kannski innanríkisráðherrann og aðstoðarmaður hans sjái um útfyllingu beiðninnar. Ekki fylgir fréttinni hvort þarna gildi fyrstir-koma-fyrstir-fá eða samkeppnissjónarmið en engin ástæða er til að draga lappirnar þegar 20 þúsund manns eru án atvinnu.
Nálgast má eyðublöðin hjá Evrópska félagsmálasjóðnum:
The front page of German newspaper Bild reports that Open Europe has discovered that the EU has funded a Spanish sex shop, with money coming from the European Social Fund. The shop received 611.15 in order to "improve the employability of the unemployed". (Open Europe 21.febrúar 2011)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2011 | 21:03
Friðsamleg valdayfirfærsla!
Það hefur mikið verið talað um nauðsyn þess að valdaskipti í Egyptalandi verði að fara friðsamlega fram. Nú er Múbarak farinn frá, en valdaskipti hafa ekki farið fram því gamla valdaklíkan er enn við völd. Hvort framhald verði á í þeim málum er allsendis óvíst. Fólk í leit að frelsi gerir sér ekki alltaf grein fyrir hvað felst í hugtakinu frelsi. Þegar járntjaldið illræmda féll var um að ræða friðsamlega valdayfirfærslu. Engu að síður kom fljótlega í ljós að illvígur kjarni komst yfir allar eignir sem einhvers virði voru. Gamla valdaklíkan snéri þá aftur, á grundvelli þess að fólkið kynni fótum sínum ekki forráð. Nú hyllir undir að Egyptar fái að kjósa sér nýja stjórnarskrá, þing, jafnvel forseta ef það embætti verður skrifað inn í stjórnaskrána. Sérfræði álitin eru nú þegar jafnmörg og sérfræðingarnir sem þau gefa. Álitin stangast á, því þegar upp er staðið veit engin hvað tekur við að kosningum loknum.
Þessi litli brandari frá snillingnum Matt hjá Daily Telegraph segir allt sem segja þarf um valdabaráttu og hverjir vinna. Það er alltaf hinn sterkari.
Það veltur á ýmsu hver endar á toppnum í Egyptalandi. Reynslan frá Rússlandi sýnir að þótt svokölluð frjálslynd öfl nái að komast í oddastöðu í fyrstu atrennu, þá er allt eins líklegt að harðlínuöfl bíði handan hornsins þegar hugmyndin um lýðræði er jafn óljós og hún er í Egyptalandi í dag. Hver hefði veðjað á það árið 1991 að KGB-tæknirinn Putin tæki yfir hið nýfundna lýðræði Rússlands nokkrum árum síðar.
Á hliðarlínunni í Egyptalandi stendur Múslímska bræðralagið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2011 | 15:30
Vanir menn eða viðvaningar?
Því hefur verið haldið fram að viðbrögð Bandaríkjaforseta við fregnum frá Egyptalandi hafi verið eins og þegar dádýr lendir í ljósgeisla bíls. Mörgum finnst lítil nýjung felast í því, því þannig hafa viðbrögðin verið við flestum fréttum sem ekki eru sérstaklega hannaðar í Hvítahúsinu. Má þá nefna viðbrögð hans við kröfu McCristals um aukningu í herafla til Afganistan ef einhver von ætti að verða um sigur í stríðinu þar. Það tók Obama 3 mánuði að bregðast við henni. Viðbrögðin við olíulekanum í Mexicoflóa voru á svipuðum nótum. Villta vinstrið, sem nokkrum árum áður fór af hjörunum vegna fellibyls í sama flóa, lét sér nú fátt um finnast. Enda annar forseti við völd.
En aftur að Egyptalandi. Loksins þegar Obama tók við sér þá var það aðeins til að koma öllum í uppnám. Nokkuð vel af sér vikið af manni sem sagður var mestur allra pólitískra snillinga. Hinn útvaldi, sem átti að færa heimsbyggðinni frið. Jafnvel nýtt upphaf. Hann hefur ekki aðeins valdið ótta og tortryggni í Ísrael, því nú er jafnvel Sáda kóngurinn sjálfur að rísa upp á afturlappirnar. Abdulla er sagður hafa hótað því að taka yfir fjárstuðning til Egypta sem Obama hótar að afnema láti Múbarak ekki af embætti. Abdulla telur þetta ekki aðeins vera afskipti af innanríkismálum heldur sé Obama að niðurlægja Múbarak í leiðinni. Og Abdulla er sagður vinur BNA. Það er erfitt að sjá, hvort sem litið er til utanríkismála eða efnahagsmála að Obama sé mikið að auka veg BNA í heiminum.
En Bandaríkjaforseti er ekki einn um að láta lítið fyrir sér fara þegar heimsviðburðir láta á sér kræla. Fyrstir til að skríða í skjól er brjóstvörn friðar og frelsis í heiminum, Sameinuðu þjóðirnar. Kannski létu Sþ sig hverfa svo Múslímska bræðralagi gæti komið sér snyrtilega fyrir í Kairo áður en leiksýning Sþ hæfist. After all, er ekki einkaspæjara þeirra, þessum sem aldrei fann nein merki um kjarnorku í Íran, tekið með opnum örmum hjá bræðralaginu. Eitt er víst að værðin sem fallið hefur á Vestræna fjölmiðla vegna atburðarásarinnar er ekki mjög traustvekjandi. Það er klifað á því að margir ólíkir hópar standi að mótmælum í Egyptalandi, en engin umræða um það að eini hópurinn sem býr við fastmótaða stefnu og skipulag er Múslímska bræðralagi. Ef eitthvað er þá ættu sporin á Gaza að hræða.
Við upphaf borgarastyrjaldarinnar á Spáni 1936-1939 voru Anarkistar og Sósíaldemókratar í miklum meirihluta meðal lýðveldissinna. Höfðu um það bil 4 milljónir manna á bak við sig. Kommúnistar studdust við fylgi 150 þúsund kjósenda. Þegar yfir lauk réðu kommúnistar öllu og Anarkistar og Sd engu. Hvers vegna? jú vegna þess að kommúnistar voru organíseraðir, höfðu pólitíska maskínu á bak við sig og ólu á sundrung meðal hinna. Georg Orwell skrifaði merka bók, Homage to Catalonia, um svikin sem áttu sér stað og þó hann hafi verið harður kommi, þegar hann hélt til Spánar til að leggja lýðveldinu lið, þá snéri hann til baka vonsvikinn maður.
Í baráttunni um tilnefningu Demókrataflokksins til forsetaframboðs spurði Hillary Clinton spurningar sem margir spyrja sig nú. "Klukkan er þrjú um nótt og rödd segir............... Er Obama tilbúinn?"
Svarið liggur orðið nokkuð ljóst fyrir.
Viðbót. Sem dæmi um hve BNA hafa orðið utangátta í atburðarásinni í Egyptalandi er að ekkert samráð var haft um afsögn Múbaraks. Obama frétti það bara í sjónvarpinu eins og hver annar "nobody", sjá Yahoo frétt: http://news.yahoo.com/s/ap/20110211/ap_on_re_us/us_us_egypt
Mynd1: www.townhall.com
Mynd2: www.townhall.com
Mynd3: www.thecanadiansentinel.blogspot.com
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.