Leita í fréttum mbl.is

Riddari Hjörvar kemur til bjargar

 Riddarinn með norskum félaga

H HjörvarÞað var dásamlegt að sjá yfirlætislegt brosið á Helga Hjörvar í Kastljósaþættinum í fyrrakvöld, þegar hann lagði Margréti Tryggvadóttur lið og benti á að við gætum veitt af viskubrunni okkar í fiskveiðistjórnunarmálum, þegar við værum gengin í ESB.

Margrét er nýjasti grænjaxlinn á þingi og Helgi er greinilega tilbúinn að leggja henni "föðurleg" ráð, í það minnsta á meðan hún leggur öll sín spil á borðið Samfylkingunni til hagsbóta. Helgi sá ekki ástæðu til að benda Margréti á að Spánverjar, sem hvað harðast hafa gengið fram í að skylda EFTA löndin til þátttöku í niðurgreiðslu uppbyggingar ESB, munu seint sjá sér hag í að breyta fiskveiðistefnunni sem gefið hefur þeim svo vel í aðra hönd. EFTA löndin áttu ekki roð í þá þá. Er líklegt að við, með Össur í fararbroddi, eigum eitthvað í þá núna?

Margrét hefði haft meira gagn af því að fá upplýsingar um netsíður sem nýst geta alþingismönnum sem þurfa að taka ákvarðanir er varða afkomu þjóðarinnar. Síður eins og FishSubsidy.org og fis.com svo ekki sé minnst á followthemoney.eu þar sem finna má gagnlegar upplýsingar um hvernig skattpeningum ESB borgaranna er varið til að útrýma síðasta þorskinum í sjónum. Þar gæti  hún ennfremur fengið upplýsingar um sjóðasukkið sem tröllríður ESB og sem Samfylkingin getur ekki beðið með að taka þátt í.

Styrkir til sjávarútvegs ESB nema 8.5 milljörðum í 97,260 útgreiðslum á 12 ára tímabili frá 1994-2006. Þetta er fyrir utan þá styrki (niðurgreiðslur) sem einstaka þjóðir leggja flotum sínum til. Ekki að undra þótt fiskinum fækki og ESB renni hýru auga til Íslands sem girnilegs bólfélaga.

 SpanishArmada

Spánn ber ægishjálm yfir aðra hvað þessa fiskveiðistyrki varðar, því þangað renna hvorki meira né minna en 48% allra styrkja ESB til fiskveiða. Látið er sem styrkirnir fari til úreldingar skip en engin fylgist með því styrkirnir eru á naf eigenda og úreltu skipin dúkka upp á ölmusulistanum ár eftir ár. Spánverjar senda fiskiskipaflota sinn til veiða um allt suðurhvel jarðar og leita nú leiða til að leggja undir sig Norður-Atlantshafið. Hlutfall stórfiskveiðiþjóða á borð við Breta, Frakka og Dana í styrkjatöku nær aðeins eins stafs tölu.

Um þessar mundir þarf meira en hátæknibúnað til að finna þessa fáu sporða sem enn smjúga vatnið, en samt ætlar sambandið að leggja 4.3 milljarða í sukkið á fiskveiðitímabilinu 2007-2013. Þetta eru engir smáaurar og Spánn með sína sprungnu byggingarbólu mun ekki láta einhverja lukkuriddara frá Íslandi hirða af sér gullkistuna.

Líklegra er að riddari Hjörvar endi sem lóðs fyrir suðræna flotann á Halamiðum áður en hann nær að telja upp að tíu.

 

Mynd 1:hvuttar.net/?nid=1120

Mynd 2: http://www.1335.com/Archive/kt0507.html


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gústaf Níelsson

Var það ekki norski sjávarútvegsráðherrann sem lét fyrir stuttu hafa eftir sér að Íslendingar gætu allt eins trúað á jólasveininn, eins og að gera sér vonir um varanlegar undanþágur frá sjávarútvegsstefnu ESB? Auðvitað bíða hinir stóru fiskveiðiflotar Spánar og Portúgals eftir tækifæri til að veiða á Íslandsmiðum. Og þeir munu leggja allt í sölurnar til að ná því markmiði, meira að segja reyna dómstólaleiðinni. Til hvers var þá barist allan tímann? Voru tíu þorskastríð háð til þess eins að afhenda miðin til ráðstöfunar hjá kontóristum í Brussell, sem ekki nokkur maður kaus til starfa?

Gústaf Níelsson, 15.7.2009 kl. 17:51

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Hver hefði trúað að óreyndu að heill stjórnmálaflokkur væri starfræktur um rétt manna til að trúa á jólasveininn?

Ragnhildur Kolka, 15.7.2009 kl. 18:35

3 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Sama hvernig á það er litið, er afar mikilvægt að þjóðin fái að segja hug sinn um það hvort Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Það er etv. núna sem tækifærið fyrir aðildarsinna er vegna þess að eftir að búið er að skrifa upp á Icesave ánauðina uppfyllir landið ekki skilyrðin fyrir inngöngu.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 15.7.2009 kl. 22:35

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Samfylkingin og nú líka Vg kæra sig kollótt um hvernig okkur verður troðið inn í ESB, bara að við endum þar örugglega. Jóhanna verður tekin í Sf guðatölu, Egill Helga fær sínar "ódýru" kjúklingabringur og Grímur Gosi fær kannski að sitja á ráðherrastóli fram að næstu kosningum.

Láttu þig ekki dreyma um að Evrópusambandið hafni okkur. Það eru fleiri en Rússar sem renna hýru auga til Drekasvæðisins og þörf ESB fyrir orkugjafa mun fá þá til að kyngja gjaldþrota Íslandi, rétt eins og þeir kyngdu innrás Rússa í Georgíu og kyngdu kjarnorkuáætlun Írana án þess að blikna.

Kok Steingríms Gosa er vítt en það kemst ekki í hálfkvist við vídd koks Evrópusambandsins.

Spánverjar munu svo sjá um að ryksuga sjóinn í kringum Ísland.

Eru ekki allir hamingjusamir?

Ragnhildur Kolka, 15.7.2009 kl. 23:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband