16.2.2009 | 19:30
Þjóðin er fundin!
Allar götur frá því að Ingibjörg Sólrún setti fram þá fullyrðingu að "Borgarafundur" í Háskólabíó væri ekki þjóðin hefur styr staðið um hugtakið "ÞJÓÐIN". Margir vilja eigna sér það, en í raun er það aðeins til sem safnheiti þegar "ÞJÓÐIN" sýnir vald sitt í kosningum eða sýnir samstöðu gagnvart einhverjum ósegjanlegum harmleik. Á öðrum tímum á einstaklingurinn völlinn.
Þótt mér sé ekki tamt að taka orð ISG sérlega trúanleg, minnist ég þess að hafa átt í nokkru orðaskaki við ungann mann um þetta, hér á moggablogginu, þótt sumt af þeim samskiptum hafi nú gufað upp. Varði ég fullyrðingu Ingibjargar á þeirri forsendu að samkundan sem slík hafi ekki getað talist fulltrúar þjóðarinnar frekar en alþingismenn, sem gjarnir eru á að líta sig sem fulltrúa þjóðarinnar, geta aðeins talað fyrir hönd þeirra sem þá kusu.
En nú er þjóðin fundin. Hún virðist reyndar hafa verið í Háskólabíó þetta umrædda kvöld. Þjóðin er að því er virðist fjölskyldufyrirtæki - sjálfsprottin (vinstri græn) hreyfing - sem sló sig til hásætisins við eldhúsborðið. Kjarnafjölskyldan: Gunnar, Halla og Davíðeru þjóðin. Davíð er ungi maðurinn sem lét að því liggja við mig að hann væri að ræða framboðsmál við "ýmsa áhugaverða" hópa. Grasrótina. Nú kemur í ljós að hann var allan tímann heitbundinn VG, ekki bara samkvæmt hefðbundnum skilningi heldur líka í pólitískum skilningi. Visir.is tilkynnir um að Davíð (mynd að láni frá visi.is) gefi kost á sér í 2-3 sæti VG listans og gerð er grein fyrir fjölskyldutengslunum, sem kannski voru öllum vinstri grænum ljós, en komu flatt upp á mig (og eflaust fleiri) sem taldi hann bara tilfinningatrekkta taugahrúgu.
Vissi "ÞJÓÐIN" að hún var þarna í boði VG? Það efast ég um. Í húsinu var fólk sem var reitt, hrætt og sárt en hver á sínum forsendum. Þarna var líka fólk sem myndi aldrei láta sjá sig á samkomum sem boðað væri til af VG. Kannski var það þess vegna sem því var haldið svo stíft fram að þarna kæmi þjóðin saman.
Ætla Vinstri grænir að bjóða fram undir nýju heiti í komandi kosningum? Þjóðarflokkurinn?
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Víst er að stjórnmálamenn hafa ekki fundið þjóðina, hvað þá hlustað á hana, síst VG. Af hverju hafa þeir ekki kallað sig "öfga græningjar" og sleppt þessu vinstra forskeyti, er þetta e-h sem skiptir þessa öfgamenn máli. Þeir kannski nefna sig græna fjölskylduflokkinn ásamt e-h öðru oftúlkuðu grænu orði
Svavar Guðmundsson, 16.2.2009 kl. 21:58
Ég veit ekki hvort "þjóðin " sé sammála um eitt né neitt. Skiptir ekki máli, því sem einstaklingur er ég partur af þjóð sem samansett er úr 330.000 öðrum einstaklingum sem allir hafa sinn rétt til að vera örðuvísi. Það merkir þó ekki að þeir eigi rétt á að villa á sér heimildir.
Burt séð frá því minntu Borgarafundirnir, sem sýndir voru á RÚV, mig á sértrúarhóp þar sem nýliðar voru hvattir til að "vitna". Hver veit nema þeim hefði líka verið dýft í vatn ef leigutími salarins hefði leyft það.
Ragnhildur Kolka, 16.2.2009 kl. 22:43
Það er nú að einhverju leyti rétt að kalla þá sem sitja á löggjafarsamkundunni fulltrúa þjóðarinnar, en þessir bölvuðu ræflar sem trana sér fram óbeðnir og þykjast vera „Rödd fólksins“ „Þjóðin“ eða hvaða bjánalega alltumlykjandi rangnefni þeir taka sér, þeir eru sannarlega ekki á vegum þjóðarinnar. Sjálfsagt er að halda fundi en þá á að gera það á réttum forsendum. Vinstri grænir og aðrir af því sauðahúsi eru sérstaklega lagnir við þetta. Fjölmiðlar og bloggarar (eins og við) eigum að benda á þetta og vona að sem flestir heimsæki síðurnar okkar. Mér skilst að íslenskir fjölmiðlar, einkum sá ríkisrekni, hafi algerlega misst sig í eltingaleik við þessa sjálftökumenn.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 18.2.2009 kl. 07:45
Það segir sig sjálft, að þegar fólk þarf að villa á sér heimildir þá er málstaðurinn ekki góður.
Í upphafi fannst mér hugmyndin góð að fólk ræddi málin á opnum fundum, en ekki æpandi slagorð á torgum. Þar gæfist fólki tækifæri til að koma mismunandi sjónarmiðum á framfæri. En þessir tveir fundir sem sjónvarpað var frá sýndu, svo ekki var um villst, að þetta voru áróðurssamkomur í anda kommunískrar hugmyndafræði. Nokkrir velvaldir vinir Samfylkingarinnar í pontu staðfestu aðeins að SF er lengra til vinstri en þeir vilja vera láta.
Fyrirbærið Wade er svo kapituli út af fyrir sig.
Ragnhildur Kolka, 18.2.2009 kl. 08:58
Þakka þér fyrir innlitið, Davíð.
Ég ætla ekki að elta ólar við fjölskyldumál þín, þau liggja nú ljós fyrir, þótt þau hafi ekki verið mér kunn þegar samskipti okkar, hin fyrri, fóru fram. Hitt er á hreinu að það skiptir megin máli að láta lita svo út sem þessir fundir væru ópólitískir. Það tókst næstum því eða þangað til farið var að útvarpa þeim.
Það þurfti ekki að hlusta lengi á ræðurnar sem þar voru haldnar til að átta sig á að þær voru þræl pólitískar. Sumar í anda byltingarkommúnismans sem ég, satt að segja, hélt löngu útdauðann. Þín lína liggur aðeins til suðurs frá þeim og krefst ekki eins mikilla blóðsúthellinga. Lengi lifi rómantíkin.
Ræður SF voru á þessum venjulegu persónuníðsnótum sem sá flokkur hefur sérhæft sig í til að komast hjá að ræða málefni. Það var athyglisvert að hlusta á hinn harða stjórnarandstöðuanda sem þar birtist. Það skyldi þó ekki vera að stjórnarmyndunarviðræðurnar hafi þá þegar verið komnar á dagskrá.
Framsóknarmenn og sjálfstæðismenn voru álíka sýnilegir og Dódó fuglinn í pontu. En það er rétt hjá þér, það var allslags fólk í salnum, eins og ég benti líka á í upphaflega pistlinum mínum. Það eiga margir um sárt að binda þessa dagana.
Mín sannfæring er ekki sterkari en svo að ég gef mér tíma til að kíkja á skoðanir annarra. Kjósi ég að andmæla þeim þá geri ég það. Það er aldrei að vita nema einhver, einhvern tíma sannfæri mig um eitthvað annað. Þú gerir það ekki.
En vertu velkominn í heimsókn hvenær sem er.
Ragnhildur Kolka, 20.2.2009 kl. 23:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.