Leita í fréttum mbl.is

Er ekki tímabært að kippa í spottann?

Ólafur Ragnar hefur enn einu sinni tekið bitið milli tannanna. Aldrei, frá stofnun lýðveldisins hefur íslenska þjóðin þurft að bera annan eins skaða af því að reka þetta óþarfa embætti og nú. Tækifærismennska hefur einkennt allan feril Ólafs.  Aldrei hefur hann setið á friðarstóli; stundaði flokkaflakk þegar hann fékk ekki vilja sínum framgengt og enginn hefur átt annan eins illvígaferil á þing.

Þegar hann ákvað að sækjast eftir forsetaembættinu snéri hann hinni hliðinni fram, skipti um taktík og náði að blekkja kjósendur eina ferðina enn. Hann var fljótur að líma sig á peningamennina og varð ein helsta stjarna Séð og Heyrt um tíma. En gamli ÓRG gat ekki á sér setið til lengdar og fjölmiðlafrumvarpið varð honum tilefni til að hrifsa til sín völdin. En Ólafur misreiknaði sig þar, því eftir valdaránið varð Ólafur, ríkisstjórnin og þjóðin leiksoppar auðvaldsins. Nú þegar auðvaldið er komið út í horn snýr hann einu sinni enn við blaðinu.

Nú birtist aftur gamli Ólafur. Ódannaður eins og við munum hann og kjaftfor. Í þetta sinn fengu gestir þjóðarinnar og umboðsmenn erlendra ríkja að finna fyrir því. Grundvallarregla í samskiptum siðaðra er að þiggja ekki boð af þeim sem maður ekki getur þakkað. Það innifelur meðal annars að maður móðgar ekki gestgjafann eða veldur öðrum óþægindum. Nú er skaðinn skeður og ef ekkert er gert sitjum við uppi með ÓRG í þrjú ár í viðbót.

 Það er löngu tímabært að leggja þetta embætti niður, en meðan við bíðum eftir því þarf ríkisstjórnin að koma sér saman um að taka manninn úr umferð. Það er augljóst að þessar hefðir sem "samskipti forseta og erlenda sendiherra" byggja á og "falla ekki undir (Utanríkis)ráðuneytið" hafa verið þverbrotnar og ekki ástæða til að bíða eftir frekari prímadonnu tilburðum. Nóg er nú samt.


mbl.is Ræða ekki borin undir ráðuneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Maðurinn er alveg ótrúlegur tækifærissinni og það hefur aldrei hvarflað að mér að setja x mitt við hann, ég þarf ekki að hafa það á samviskunni.

En ég þarf að hugsa upp nýtt frjálshygguna því ég er frjálshyggjumaður af verstu gerð

Ég er að komast á þá skoðun fjármagnskerfi og orkumál þar með talin matur þurfi  að lúta ákveðnum öryggisreglum sem má ekki gambla með.

Ps Mig hefur langað oft komennta á þér en bloggið hjá mér hefur ekki virkað í langan tíma 

bloggið þitt er mjög hnitmiðað og skemmtilegt

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 12.11.2008 kl. 21:58

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þakka innleggið Gunnar.

Já, Ólafur flaggar þeim litum sem henta hverju sinni. Hann er kamelljón og trúandi til alls. Hádegisverðarskandallinn gæti þess vegna hafa verið liður í stóra planinu; til að koma sér aftur innundir hjá þjóðinni, sem loksins hafði áttað sig á prúttaranum. Það eru alltaf einhverjir sem halda að það eigi tala við hefðarfólk (les sendiherra) með tveimur hrútshornum. Ólafur fór langt út fyrir sitt svið. Hann niðurlægði íslenska þjóð með þessum ruddaskap. Kastljósið var ekkert annað en gott PR.

Það er sjálfsagt hjá þér að endurskoða öll þín viðhorf. Viðhorf manns eiga í raun alltaf að vera í endurskoðun. Svo fremi sem maður hefur grunninn í lagi má alltaf sníða til vankantana. Við lifum nefnilega ekki í fullkomnum heimi.  Engu að síður er það frjálshyggjan sem skilar manninum mestu. Það sem átti sér stað hér síðustu árin var ekki frjálshyggja heldur óhamin ágirnd á sterum. 

Ragnhildur Kolka, 12.11.2008 kl. 22:34

3 identicon

Takk fyrir þarfan og góðan pistil.

Með kveðju,

Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 22:40

4 Smámynd: Ragnhildur Ingunn Jónsdóttir

Já, ég tek sko undir þetta. Ekki svo langt síðan ég skrifaði um það á mínu bloggi að ég hefði ekki áhuga á að Steingrímur kæmist í ofvaldamikla stöðu þar sem hann getur aldrei verið kurteis eða amk orðað hlutina sem hann meinar kurteislega og það er það sem við verðum að gera eins og staðan er í dag. Við megum ekki við að þjóðir úti í heimi missi meira álit á okkur, nóg er það nú þegar. En jú, auðvitað tókst Ólafi Ragnari þetta, án þess að hugsa sig um tvisvar virðist vera. Ég sé ekkert að því að fólk beri undir utanríkisráðuneytið ræður sínar áður en þeir fara að tjá sig við háttsett fólk erlendis, staðan er bara það viðkvæm.

Og ég vil líka þakka Sigmari í Kastljósi kærlega fyrir að sýna sína réttu hlið, það er að vera dónalegur og glataður umræðustjórnarndi við þá sem honum líkar ekki við og undirlægja annarra eins og sást svo vel í gær.

Þín frænks,

Ringa

Ragnhildur Ingunn Jónsdóttir, 13.11.2008 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband