Leita í fréttum mbl.is

Endist fataskápur Palin til 2012?

Frægð er hvikult fyrirbæri og hefur mislangan líftíma. Sumir eignast sitt augnablik og er þá talað um 15 mínútna frægð. Kvikmyndarformið hentar vel slíku stundarfyrirbæri. Frægð í fréttum er þó yfirleitt styttri, svona 1-2 mínútur "at most". Til að öðlast langlífi þarf frétt að búa yfir einhverjum skelfilegum hörmungum þar sem hægt er að fylgjast með dauðastríð manna yfir langan tíma. Helst margra manna. En jafnvel flóðbylgjan í Asíu hafði tiltölulega stutt fréttagildi, þ.e. miðað við þjáningar þeirra sem fyrir hörmungunum urðu.

Þessu fréttamati hefur mbl.is nú snúið á hvolf. Fataskápur Söru Palin ætlar að taka vinninginn fram yfir flest annað. Stríð, kreppa og látlaust hungur í Afríku verður að víkja fyrir þessum frægasta fataskáp sögunnar. Kannski varð pressan fyrir vonbrigðum yfir að Palin mætti ekki á selskinnsskónum sínum og í bjarndýrsfeldinum svona til að sanna fyrir þeim frumbyggjaandann.

En fjármál repúblikanaflokksins standa mbl.is mönnu hjarta nær. Og hefur ekkert sést þessu líkt síðan kreditkortafærslur Jóns Ásgeirs voru grandskoðað í fjölmiðlum. Þá fékk öll þjóðin að vita að hann átti til með að splæsa í Armani svona þegar hann átti leiði á pulsuvagninn. Svei mér ef það var ekki Opalpakki og kók sem þá þótti lýsandi fyrir eyðslusem hans og bruðl. Nú hefur kreppan greinilega náð tökum á mbl.is fyrst fataskápur Palin er orðin aðalfrétt dag eftir dag. $150 þúsund til að fata 6 manna fjölskyldu hefði varla þótt frétt hér á Íslandi fyrir svona tveimur mánuðum. En þá voru menn heldur ekki að telja aurana. Jafnvel frauðplastsúlurnar sem skreyttu Obama á útnefningarhátíðinni í byrjun september náðu aldrei athygli fréttahaukanna.  Súlurnar kostuðu þó drjúgt meira en fataskápurinn, eða litla 600.000 dollara og voru þó bara til "engangs" brúks.

Maður hlýtur að hafa samúð með fólki sem býr við slíka fréttþurrð í fámennu landi, en hafið miskunn með okkur. Gefið okkur smá frið, þá skal ég ekki kvarta þótt þið endurlífgið fataskápinn 2012.


mbl.is Palin fór í gegnum fataskápinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband