4.11.2008 | 12:48
Davíð gæti eflaust tekið undir með Þorgerði
Þorgerður kveinkar sér undan því að kastljósinu sé nú beint að henni og eiginmanninum. Umræðan um afskriftir skulda hjá Kaupþingi, þar sem eiginmaður hennar er lykilstarfsmaður hlýtur þó, eðli málsins samkvæmt að einhverju leyti snúa að henni. Þegar íslenska þjóðin þarf að taka á sig ábyrgð skulda sem hún átti engan þátt í að skapa, á fólk rétt á því að allt sé uppi á borðinu.
Það er ekki gott að liggja undir grun um misferli, en ætli Davíð Oddsson gæti ekki sagt það sama. Þorgerður hefur verið óspör á að varpa skuldinni á Davíð og Seðlabankann. Ég hef ekki heyrt hana minnast einu orði á þær viðvaranir sem Davíð sendi til bankanna sem stóðu fyrir sukkinu. Eitraðar örvar hennar stefna allar á Davíð. Maður spyr sig hvort vernd bankastarfsmanna standi henni kannski nær en hagur þjóðarinnar.
Of margir hafa misst ævisparnað sinn til að meðaumkun ráði því hverjir fá syndaaflausn og hverjir ekki.
Óþolandi að líða fyrir tortryggni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Það fer ekkert á milli mála að Davíð Oddsson hefur ekki verið vinsælastur manna meðal bankamanna. Það kann að stafa af fleiri orsökum en þeim að hann hafi varað við að farið væri ógætilega. Hvað sem það er, er nauðsynlegt að það komi upp á borðið eins og annað. Davíð hefur til að mynda verið mikill stuðningsmaður krónunnar og er enn, en ég held að krónan sé vandamálið að nokkrum hluta. Án krónunnar á Íslandi hefðum við án efa haft erlenda banka á Íslandi, en enginn slíkra banka treysti sér að starfa hér vegna krónunnar. Það hefði án efa dregið úr högginu sem varð er bankakerfið hér hrundi til grunna.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 5.11.2008 kl. 11:47
Að einu leiti er ég sammála Sigurgeiri hér að ofan og það er að hefðu hér verið erlendir bankar starfandi, þá hefði það mögulega dregið úr högginu sem varð, auk þess sem það hefði mögulega veitt íslensku bönkunum aðhald.
Örvar Már Marteinsson, 5.11.2008 kl. 18:57
Ég nefndi nú bara þessar viðvaranir sem dæmi og eflaust hefur Davíð nuddað einhverja öfugt í bankakerfinu á margvíslegan hátt. Engu að síður vissu bankamenn að landið bar ekki þessi taumlausu umsvif og hefðu átt að taka tillit til þess.
En þeir voru á grenjandi túr og hlógu bara að tilraunum Seðlabankans til að hefta verðbólgu með háum stýrivöxtum. Markmið Seðlabankans var jú að hafa hemil á henni. Við því skelltu bankamenn skollaeyrum og bentu bara fólki á að taka myntkörfulán. Þeir héldu að þeir væru ódauðlegir.
Ríkisstjórn og Alþingi sem samþykktu 20% aukningu á fjárlögum hjálpaði ekki til.
Ég er ekki í neinu trúnaðarsambandi við krónuna eða nokkurn annan gjaldmiðil. Mér er sama með hverju ég borga, svo fremi sem ég fæ eitthvað fyrir minn snúð. En ég tel aðild að Evrópusambandinu of hátt gjald að greiða fyrir aðgang að evru og er til í að skoða nánast hvaða gjaldmiðil sem er nema að vera skyldi zimbawiskt pund (peseta, rand eða rúblu).
Ragnhildur Kolka, 5.11.2008 kl. 20:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.