17.7.2009 | 23:36
Klíkukeppni Íslands
Stjórnarklíkan 2007
Það hefur nokkuð verið bloggað um klíkuskap í dag. Páll Vilhjámsson bloggaði um kommaklíkuna sem tryggt hefur Íslendingum stöðu þræla um ókomin ár. Flott færsla frá innanbúðarmanni. Egill Helga reyndi að "neutralisera" færslu Páls með hálfgildings hrákasmíð, sem stendur ekki undir álitsgjafanafnbótinni sem sumir hafa viljað krýna hann með, en er í raun ekkert annað en grautarsleif í áróðurspotti krataklíkunnar sem hann þjónar. Sem aftur þjónar Baugsklíkunni:
Valdaklíkan mætir til leiks
Egill vildi ekki vera minni maður en Páll og gerði sér ferð í bæinn til að styrkja sig í trúnni. Hann segist hafa tekið marga tali og flestir sammála um að ESB væri hið besta mál en, "aðallega (vildu þeir) losna undan klíkunum sem hafa stjórnað á Íslandi ...... Peningaklíkunum, flokksklíkunum, gömluvinaklíkunum, hagsmunaklíkunum". Egill gleymdi þó einni klíku í upptalningunni, en það er fjölmennasta ættar- og vinaklíka á öllu Íslandi. Klíkan sem hann sjálfur tilheyrir og í daglegu tali nefnist RÚV.
Engin stofnun á Íslandi, nema ef vera kynni TR, getur státað af jafn flóknu og fjölskrúðugu tengslaneti. Ef nafngiftin "krosseignatengdur nepotismi" hefur einhvern tímann átt rétt á sér, þá er það innan veggja þessarar einokunarstofnunar sem einfeldningar kalla "útvarp allra landsmanna" og eru skyldaðir til að halda í rekstri að viðlögðum refsingum. Stofnun sem aldrei auglýsir lausa stöðu en finnur alltaf pláss fyrir kunningja og ættmenni sem duga ekki til neins annars. Þarna er að finna fólk sem fæddist inn í fyrirtækið eða konungdæmið eins og nú þekkist t.d. í N-Kóreu; fólk sem er þarna innanbúðar jafnvel í þriðji eða fjórði ættlið. Elstu menn muna ekki hvenær partýið hófst.
Rétt til að sýna hvernig þessir kaup gerast á RÚV-eyrinni endursegi ég samtalsbrot frá því í morgunútvarpinu. Strax eftir átta fréttir mætti galvaskur KK til leiks og byrjar á því að ávarpa hljóðstofufélaga:
KK: Hver ert þú?
Mjó kvenmannsrödd svarar að bragði: Ég heiti Ellen Kristjánsdóttir. Ég er systir þín og ég ætla að leysa þig af í næstu viku.
Hér er ekkert verið að fara fínt í hlutina, enda óþarfi því þetta er hin hefðbundna aðferð hjá RÚV. Ellen er vorkunn að átta sig ekki á hvernig aðrir bera sig að því að verða sér út um vinnu, enda tilheyrir Ellen flóknustu ættartengslaklíku sem um getur í sögu stofnunarinnar. Spila þar inn ástir og örlög fólks sem engin sápa gæti gert betri skil.
Návist Egils við spillinguna sem ræður ríkjum á RÚV getur hafa byrgt honum sýn, en þar sem hann er í svo góðu sambandi við spillingarbanann sjálfann, hana Evu Joly, væri ekki úr vegi að hann gaukaði þessu að henni.
Fyrir okkur sem enga rödd eigum í "útvarpi allra landsmanna" væri það gustukaverk að senda Joly inn með uppbrettar ermar til að lofta dálítið út.
Mogginn
icanhascheezburger.com/2007/05/18/in-ur-yardz/
www.ibiblio.org/wm/paint/auth/kitaj/
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Það er spurning hvar niðurskurðarhnífinn ber niður í haust. Ljóst er að það þarf að skera niður og ljóst er að netið hefur leyst fréttaþjónustu Ríkisútvarpsins af hólmi. Það er ekki lengur hægt, eins og í gamla daga, að stjórna upplýsingaflæðinu með RÚV. Þjóðin, og einkum stjórnmálamennirnir, hafa verið að átta sig á þessu síðkastið. Raunar hafa þessar breytingar komið eins og hlandblaut tuska í andlitið á þeim.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 23.7.2009 kl. 20:06
Allt satt og rétt sem þú segir, en bágt á ég með að trúa að ríkisstjórnarflokkarnir setji niðurskurðarhnífinn á þennan bandamann sinn. Það sparar þessum flokkum milljónir að hafa þessa áróðursmaskínu stöðugt í gangi.
Ragnhildur Kolka, 23.7.2009 kl. 20:52
Rosalega gaman að lesa svona kellingarnöldur! En reistu þig nú aðeins við og komdu endilega með alla söguna um Ellen og hvaða klíku hún tengist eða tengslaneti á RÚV!
Magnús Geir Guðmundsson, 27.7.2009 kl. 19:42
Fórstu vitlausu meginn framúr?
Ellen tók ég bara sem dæmi. En hún er birtingarmynd klíkuskaparins á RÚV, hvorki upphaf né endir. Tengslanet hennar inn á RÚV er öllum aðgengilegt og óþarfi að tíunda það frekar.
Ragnhildur Kolka, 27.7.2009 kl. 20:03
Ellen bara dæmi já um klíkuskapin sem viðgengst, er ekki upphaf hans né endir og tengslanet hennar öllum opið og ljóst?
Og hvað?
Í hverju felst glæpurinn minn mín kæra, hvaða klíka réð hana þarna til að leysa Kk af og hvernig kemur þetta svokallaða tengslanet þar við sögu?
Ef þú getur ekki svarað þessu með rökum og haldbærum sannindum, þá ertu bara með ómerkilegar dylgjur og ósannindi!
Fer alltaf réttu megin fram úr.
En gaman væri svo að heyra af fleiri starfsmönnum RÚV og hvernig þeir eru klíkutengdir og þá á ég bæði við núverandi og fyrrverandi.
Til dæmis hvernig það er með pál Magnússon, Elínu hirst, Bjarna Guðmundsson, Þorgerði K. Gunnarsdóttur, Ólaf Teit Guðnason, Samúel Örn Erlingsson, Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur Magnús Orra Scram, Láru Ómarsdóttur, Hannes Holmstein Gissurarson... og þannig mætti áfram telja. Hver voru svo sömuleiðis tengslanet þessa fólk inn á stofnunina svo það fékk að starfa þar við mismunandi verkefni og á ólíkum grunni?
Magnús Geir Guðmundsson, 28.7.2009 kl. 18:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.