Leita í fréttum mbl.is

Mannréttindi út af borðinu

Hillary beijing

Öðruvísi mér áður brá. RÚV var í kvöld með frétt af ferð Hillary Clinton til Kína. Þar kom fram að mannréttindi yrðu ekki ofarlega á dagskrá á fundum með ráðamönnum þar. Áherslan yrði á efnahagsmál og mannréttindi mættu ekki trufla þær umræður. Enfremur greindi fréttastofan frá því að "talsmenn" mannréttindasamtaka hafa lýst yfir undrun og hneykslun á afstöðu Clinton".

Þetta var fremur hógvær nálgun bæði hjá RÚV og Amnesty, sem hafa farið á flipp síðustu ár þegar sendimenn Bandaríkjastjórnar hafa ekki farið í einu og öllu eftir vilja þeirra og visku. Reyndar segir talsmaður Amnesty að þau þar séu í áfalli en lengra nær það ekki.

Frétt kemur í kjölfar fréttar um að stjórn Barack Obama ætli ekki að breyta réttarstöðu fanga í Bagram fangelsinu í Afganistan. Þeir munu ekki leyfa réttarhöld yfir þeim eins og farið hefur verið fram á. Fréttin fór í loftið eins og hver önnur sumarblíðufrétt, engin gífuryrði, engar mótmælaöldur boðaðar um allan heim, með viðeigandi Bush brennum. Messias Obama er enn á stalli.

Hvað það verður lengi er óvíst, því skríbentar á Huffpost eru farnir að ókyrrast. Þar eru menn farnir að sjá munstur sem þeim líkar ekki. Yfirlýsing um lokun Guantanamo mun ekki friða þá lengi því enn veit enginn hvert á að flytja fangana sem enginn vill taka við. Hvað þá heldur þá sem föðurland þeirra þráir að sameina við ættjörðina (í orðsins fyllstu merkingu). Ofan á þetta bætist að Obma beitir nú sérstökum rétti ríkisins til að hindra málsókn á hendur Boeing Co. vegna fangaflutninga milli landa. Það skyldi þó ekki vera að hafaríið um millinafn Obama hafi allt verið á miskilningi byggt, það skyldi þó ekki vera að hann heiti eftir allt Barack Bushein Obama.

Það verður fróðlegt að fylgjast með hvernig Huffpo, RÚV og Amnesty höndla það að Hinn Smurði standi kannski ekki alveg undir væntingum. Hillary er búin að fatta það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Það skyldi þó aldrei fara svo að Mrs. Clinton komi til með að standa með pálmann í höndunum?

Þráinn Jökull Elísson, 24.2.2009 kl. 12:21

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Barack Obama er slóttugur refur. Frú Clinton taldi sig ganga nokkuð tryggilega frá stöðu sinni þegar hún ákvað að taka við utanríkisráðuneytinu. Þetta var, jú talið nokkuð góður biti. En staðan veitir engin stjórnskipuleg réttindi; hún er að öllu leyti undir forsetanum komið. Og Obama hefur nú sýnt Hillary hvaða hlutverk hann ætlar henni að hafa.

Sem fyrrum keppinautur um forsetaembættið er Hillary ekki beinlínis í innsta hring forsetans. Þar er hinsvegar Samantha Powers og James Jones sem bæði hafa stór hlutverk í Þjóðaröryggisráðinu, svo og Susan Rice sem fékk sendiherrastöðuna hjá SÞ. Öll tengdust framboði Obama og öll hafa skrifstofur í Hvítahúsinu.

Þegar við bætist að Richard Holbrooke hefur verið skipaður sérlegur sendimaður stjórnarinnar til Afganistan og Pakistan. Georg Mitchell gegnir sama hlutverki í deilu Araba og Ísraela og varaforsetinn hefur gefið í skyn að stefnan í utanríkismálum verði á hans könnu.

Það eru þá ekki orðin ýkja mörg málin sem berast inn á borð hjá Frú Clinton í komandi framtíð. Það hefur ekki verið auðvelt fyrir hana að fara með betlistaf til Kína, því hún hafði talað digurbarkalega um afstöðu sína til Kína í kosningabaráttunni. 

Fyrir þetta sagði hún sig frá öldungadeildarsæti.

Ragnhildur Kolka, 24.2.2009 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband