8.12.2008 | 22:46
Trúgirni almennings í höndum loddara
Sumar fréttir fara ekki mjög hátt og stundum fara þær svo lágt að það læðist að manni grunur um að þær hafi aldrei gerst. Ein þessara ófullkomnuðu frétta er sagan af undirskriftasöfnuninni sem um tíma ærði þjóðina. Það var reyndar áður en menn uppgötvuðu skemmtanagildið sem falið er í því að grýta eggjum og öðru lauslegu í Alþingishúsið, sletta málningu og bíta lögregluþjóna.
Það er eins og vanti botn í fréttina. Hvar voru undirskriftirnar afhentar, hver tók við þeim og hverju breyttu þær? Vilja aðstandendur söfnunarinnar ekki vinsamlegast standa upp og gera grein fyrir þessum þáttum? Eða voru þeir bara að nýta sér trúgirni almennings til að koma sjálfum sér inn í umræðuna.
Ég tók þátt í undirskriftasöfnuninni því mér ofbauð harka Breta gegn varnarlausri þjóð. Var þó minnug óbilgirni þeirra í þorskastríðinu. Nú líður mér eins og ég hafi verið höfð að fífli (unga fólkið í dag mundi orða það grafískara) og mun hugsa mig um tvisvar áður en ég læt einhverja loddara slá sér upp á minn kostnað í framtíðinni.
Þetta sama eru Írar líklega að hugsa þessa dagana, eftir að fréttist af hádegisverðarfundinum á laugardaginn, þar sem nokkrir útvaldir sendiherrar frá Brussel lögðu á ráðin um hvernig kalla mætti írsku þjóðina aftur að kjörborðinu vegna Lissabon sáttmálans. Sáttmálinn sem hafnað var í júní síðast liðnum og látið var með eins og þar hafi honum verið greitt náðarhöggið.
En hrossaprangararnir í ESB láta ekki smámuni eins og þjóðarvilja leiða sig af braut. Þeirra mottó er: "If at first ou don´t succeed, try, try, try again". Getum við lært eitthvað af þessu?
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
-
baldher
-
gattin
-
tilveran-i-esb
-
gun
-
gustaf
-
haddi9001
-
heimssyn
-
aglow
-
jonvalurjensson
-
ksh
-
altice
-
skrafarinn
-
sigurgeirorri
-
blauturdropi
-
postdoc
-
olijoe
-
hugsun
-
iceberg
-
annabjorghjartardottir
-
borgfirska-birnan
-
eeelle
-
gessi
-
elnino
-
muggi69
-
gustafskulason
-
bassinn
-
krist
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
valdimarjohannesson
-
thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Kæra Ragnhildur! Undirskriftir okkar eru mikilvægar - þetta skilar sér - þó hægt fari. Kveðja!
Hlédís, 8.12.2008 kl. 22:50
Sé nú að við erum - einnig - sammála í VARKÁRNI gagnavart ESB ! það er e-r furðuleg samsuða - sem síst myndi gera okkur gagn.
Hlédís, 8.12.2008 kl. 22:54
Þakka fyrir þennan pistil Ragnhildur
Forseta Tékklands, Václav Klaus, var tilkynnt núna um helgina að Evrópusambandinu væri alveg sama um hans álit á stjórnarskrá Evrópusambandins. Forsetinn var svo reiður eftir þennan fund að hann birti opinberlega "transcript" af því sem fór fram á fundinum. Hér í styttri þýðingu The Telegraph EU 'doesn't care about your opinions'
Heimasíða forsetaembættis Tékklands, þar sem þetta birtist fyrst (hér keyrt í genum Google þýðingu)
Minutes of the adoption of the European Parliament delegation to the President of the Republic Vaclav Klaus
Ceske Noviny um þennan atburð:
Klaus criticises behaviour at meeting with MEPs as unprecedented
Heimasíða Václav Klaus
Ten Years of Euro: A Reason for Celebration?
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 8.12.2008 kl. 23:37
Þakka ykkur báðum fyrir innlitið og athugasemdirnar.
Hlé-G: Undirskriftasöfnuninni var einmitt komið á af því einhver hulduher taldi ríkisstjórnina svifaseina í samskiptum við Breta - þeir væru að leika gamla heimsvaldaleikinn, þ.e. eitt sagt við trúgjarna innfædda á meðan launráð væru brugguð gegn þeim.
Við sem skrifuðum undir eigum rétt á að vita hverjir stóðu á bak við söfnunina, hver raunverulegur tilgangur var og hvað forsprakkarnir eru að gera núna.
Gunnar: Þakka þér þessar sendingar, ég geymi mér að lesa þær þar til í kvöld. Greinina þína í Þjóðmálum les ég um helgina. Veit hún verður ekki síður upplýsandi en sú sem birtist í síðasta hefti. Sú grein var virkilegur "eye opener".
Ragnhildur Kolka, 9.12.2008 kl. 09:36
Ragnhildur
Varðandi svínakjötið þá flæðir hér inn kjöt, um 1000 tonn það sem af er ári og um 300 tonn af svínakjöti. það er ástæðan fyrir því að við erum berjast fyrir því að fá að nota fánan á vörur sem eru sannanlega íslenskar Bónus er verst því þessar vörur eru merktar íslenskum Kjötvinslum. Stærstir í innflutningi er Ferskar kjötvörur
Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 10.12.2008 kl. 23:34
Íslendingar geyma þjóðfánann ínni í skáp og nota hann sem sjaldnast - sökum obbosslegrar VIRÐINGAR!?
Hlédís, 11.12.2008 kl. 08:27
Gunnar: Endilega halda áfram að krefjast sérmerkinga. Ég hafði ekki hugmynd um að allt þetta kjöt væri flutt inn allra síst svínakjöt, sem ég hélt að bændur ættu ekki í vandræðum með að fylla kvótann af. Kaupi aldrei aftur neinar afurðir merktar Ferskum kjötvörum.
Hlé-G: Ég mundi frekar nota orðið heimóttarskapur en VIRÐING. Íslendingar eru afar spéhræddir (eins og svo margir með minnimáttarkennd) og meðan völlurinn var sem mestur í útrásinni, þá vildu þeir ekki láta bendla sig við neitt svona "þjóðlegt", nema auðvitað ef forsetinn lagði nafn sitt við það. Þá mátti nota fánann sem borðdúk undir eðalveitingarnar.
Ragnhildur Kolka, 11.12.2008 kl. 09:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.