Leita í fréttum mbl.is

Sekt eða sakleysi, dugur eða dugleysi

Þessa dagana er hart veist að sjálfstæðismönnum og látið eins og þær umbætur sem átt hafa sér stað á síðustu 17 árum hafi allar verið í óþökk þjóðarinnar. Menn hrópa "Spillinguna burt" eða "Lýðræðið til fólksins" eins og flokkar séu eitthvað annað en fólkið sem kaus þá; spilling sé eitthvað sem sumir séu ataðir í á meðan aðrir séu hreinir sem hvítvoðungar. Í þessu sem mörgu öðru vill gleymast að lífið er ekki slagorð. Við erum öll þátttakendur og hver á sinn hátt, hversu lítill sem hann er, ber ábyrgð.

Öll íslenska þjóðin hefur notið góðs af setu Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn. Fólk sló ekki hendinni á móti bættum efnahag (þótt hann væri byggður á fé fólks í öðrum löndum). Endalaus lán voru tekin og almenningur flykktist til útlanda, tvær, þrjár eða fleiri ferðir á ári. Verslunarferðir íslendinga voru fréttamatur beggja vegna Atlantsála. Enginn spurði hvaðan peningarnir komu.

Það voru ekki bara "bankamenn og útrásarfurstar" sem bárust á. Venjulegir launþegar og ekki síður ríkisstarfsmenn nutu ávaxtanna. Lúxusjeppar urðu stöðutákn: bílastæði stofnana eins og Landspítalasjúkrahúss hefur um nokkurra ára skeið verið þéttsetið jeppum og þó líta heilbrigðisstarfsmenn ekki á sig sem ofurlaunamenn. Umferðarvandamál hafa verið martröð borgaryfirvalda.

Íslendingar urðu of fínir til að vinna "skítverk". Fólk var flutt inn frá fátækum löndum til að sjá um grunnþjónustu: þrif, umönnun barna, gamalmenna og sjúkra. Og fiskvinnslu lét enginn bendla sig við. Íslendingar vildu vinna hvítflibbastörf.

Nú er komið að skuldadögum og við þurfum nú að greiða fyrir óhófið sem við tókum þátt í. Það þýðir ekkert að láta eins og það sé allt öðrum að kenna. Það þýðir heldur ekki að hlaupa í skjól ESB-pilsfaldsins, hann er sjálfur allur að trosna. Ellin verður ESB að falli. Nú um helgina voru fréttir af verkföllum í Frakklandi vegna ákvarðana um hækkun eftirlaunaaldurs. Hækkun eftirlaunaaldurs er að eiga sér stað um alla Evrópu. Ekki vegna þess að menn séu svo vinnusamir heldur vegna þess að eftirlaunasjóðirnir standa ekki undir greiðslunum. Kreppan flýtir fyrir þessu. Kreppan eykur líka við atvinnuleysið og er það þó ærið fyrir. Það er ekki af góðmennsku sem ESB breiðir út faðm sinn fyrir okkur.   Við erum ungviðið í norðri sem er tilbúið að láta auðlindir sínar af hendi í þessa botnlausu hít  ESB gegn því einu að fá að njóta verndar mömmu. Við fengum smjörþefinn af samningatækni ESB nú í tengslum við IMF lánið. Eru virkilega einhverjir enn svo bláeygir að halda að það sé manngæska sem ræður atlotum ESB.

Við erum ung þjóð og við getum tekist á við þau áföll sem við stöndum frammi fyrir núna. Látum ESB og IMF, og hvað þær nú allar heita þessar stofnanir sem fólk lítur á sem bjarghringi, lönd og leið. Við stöndum ekki í sömu sporum og þegar kreppan reið yfir 1929. Nú búum við yfir góðri menntun á fjölmörgum sviðum og grundvöllur þjóðarbúsins stendur styrkum fótum. Hér ríkir ekkert þurrabúðar ástand. Erum við ekki öfundsverð af því? Ef eignir Landsbankans og Icesave samningurinn losar okkur undan skuldabyrðinni þá eigum við alla möguleika á að hrista þetta af okkur á stuttum tíma. Vinna okkur út úr vandanum.

Sýnum hvað í okkur býr.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir góðan pistil Ragnhildur.

Þetta er víst allt dagsatt, og augljóst mál núna þegar allir eru orðnir allsberir.

Núna þarf að setja upp nýja meðferðarstöð, fyrir banka- fjármálamenn í afneitun.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.11.2008 kl. 21:30

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þakka kveðjuna Gunnar.

Heilsuverndarstöðin er víst laus um þessar mundir. Hún gæti hentað ágætlega sem meðferðarstöð.

Ragnhildur Kolka, 17.11.2008 kl. 00:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband