1.3.2008 | 23:37
Hvað segja kannanir
Því verður seint haldið fram að afstaða Íslendinga sé ófyrirsjáanleg. Í kvöldfréttum kom það fram að 97% Íslendinga væru því fylgjandi að næsti forseti Bandaríkanna yrði demókrati. Aðeins 3% studdu John McCain. Verður að segjast að fjölmiðlum hafi orðið nokkuð ágengt að koma áróðursstefnu sinni á framfæri. 'Islenskir fjölmiðlar skera sig þannig ekki frá bandarískum fjölmiðlum, en talið var að þegar Clinton (l'homme) bauð sig fram til forseta, hafi 85% blaða-og fjölmiðlamanna í Washington D.C. stutt framboð hans. Bar kosningabaráttan merki þess. Nú sýpur spúsan seiðið af vonbrigðum þessara fyrrum stuðningsmanna og sagt er að hún sé nú meðhöndluð af fjölmiðlum sem væri hún repúblikani. Enda stendur hún nú í ströngu. Barak er nýja goðið.
Íslendingar hafa ekki alveg fylgt þessu eftir. Hér fer afstaðan nefnilega eftir kyni eða kynþætti, eða því sem hver heldur að sé í mestri andstöðu við "kananna, kommúnista banann". Þeir sem styðja konu í hvaða embætti sem er, gera sér ekki grillur yfir smámunum eins og því hvað Hillary hafi unnið sér til ágætis. Þeir sem styðja kynþátt eru þeir sem vilja sýna "sjálfstæða skoðun" og þá skiptir afrekaskrá heldur engu máli. Þau andlegu afbrigðilegheit sem lagst hafa á sálir vestrænna manna vegna Íraksstríðsins, vega þyngst.
Ekki kom fram í könnuninni hvar í flokki þetta fólk stóð, en eitt er víst að enginn virðist hafa lesið ágætan pistil Andrésar Magnússonar í Viðskiptablaðinu um miðjan febrúar, sem fjallaði um málefnaskrá Hillary Clinton. Málefnaskrá Baraks Obama er copía af henni. Eða hafi pistillinn verið lesinn hefur enginn talið sig þurfa að taka afstöðu til þeirra mála. Aðeins er hlustað á orð þessara pólitíkusa um að þeir ætli að draga herliðið út úr Írak. Skiptir þá engu hvað af hlýst. Jafnað skal um Georg W. hvað sem það kostar. Reyndar er rennt blint í sjóinn hvað varðar Barak Obama, en Hillary Clinton er það vel sjóuð í pólitík að hún veit að brottkvaðning hersins frá Írak setur Mið-Austurlönd í algert uppnám. Svör hennar við slíkum spurningum hafa líka verið nokkuð loðin.
Kannanir sem þessar segja akkúrat ekkert annað en að fjölmiðlar hafa staðið sig í stykkinu. Stimplað sínar hugmyndir inn í heilabú Íslendinga, með beinum útsendingum af húsþökum heimsborgarinnar og með illkvittnislegum athugasemdum um þá sem ekki eru þóknanlegir - við erum í hringiðunni - við höfum eitthvað að segja. Niðurstaðan fyrirsjáanleg. En hvernig sem málinu er snúið hafa íslenskir kjósendur ekkert um málið að segja, frekar en aðrir Evrópubúar.
Nýverið gerði Fréttablaðið könnun fyrir eiganda sinn, svo hann mætti vita hver áhrif orða hans um gjaldþrot bankanna hefðu verið. Ekki brást hin síkvika íslandshjörð. Allt í einu vildi meirihluti þjóðarinnar halla sér að breiðum barmi Evrópusambandsins. Skítt með þorskinn og auðlindirnar. Afstaðan túlkuð sem viðsnúningur viðhorfa án þess að nokkuð nýtt hafði komið fram um Evrópuaðild. Engin ný meðrök og því síður gagnrök. En þau hafa oft verið nýtt þegar harðnar á dalnum. Aðeins orð auðjöfursins, sem hingað til hefur ekki verið að spyrja þjóðina álits hvernig hann vill verja fjármunum sínum.
Er einhver nær um niðurstöður þessara kannana, skipta þær einhvern, annan en fréttastofurnar, máli?
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Væntanlega er Hannes Hólmsteinn einn af þessum 3 prósentum. Hann var ólatur að predika þá skoðun sína hve Bush væri betri kostur en Gore, fyrir 8 árum.
Það að geta átt þess kost að stofna sinn týpíska launaleikning í hvaða banka sem er á evrusvæðinu, finnast mér rök fyrir að aðhyllast aðild að evrópusambandinu. að losna undan einokun og áþján íslensku okrarannna. geta tekið lán á eðlilegum vöxtum, án þess að þurfa að greiða einhverjum umba vexti sem eru jafnvel hærri en LIBOR vextirnir og smyrjast ofan á allt saman. þurfa svo að búa við gengisóvissuna. með þessa jójómynt sem krónan er.
Brjánn Guðjónsson, 2.3.2008 kl. 00:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.