11.2.2011 | 15:30
Vanir menn eða viðvaningar?
Því hefur verið haldið fram að viðbrögð Bandaríkjaforseta við fregnum frá Egyptalandi hafi verið eins og þegar dádýr lendir í ljósgeisla bíls. Mörgum finnst lítil nýjung felast í því, því þannig hafa viðbrögðin verið við flestum fréttum sem ekki eru sérstaklega hannaðar í Hvítahúsinu. Má þá nefna viðbrögð hans við kröfu McCristals um aukningu í herafla til Afganistan ef einhver von ætti að verða um sigur í stríðinu þar. Það tók Obama 3 mánuði að bregðast við henni. Viðbrögðin við olíulekanum í Mexicoflóa voru á svipuðum nótum. Villta vinstrið, sem nokkrum árum áður fór af hjörunum vegna fellibyls í sama flóa, lét sér nú fátt um finnast. Enda annar forseti við völd.
En aftur að Egyptalandi. Loksins þegar Obama tók við sér þá var það aðeins til að koma öllum í uppnám. Nokkuð vel af sér vikið af manni sem sagður var mestur allra pólitískra snillinga. Hinn útvaldi, sem átti að færa heimsbyggðinni frið. Jafnvel nýtt upphaf. Hann hefur ekki aðeins valdið ótta og tortryggni í Ísrael, því nú er jafnvel Sáda kóngurinn sjálfur að rísa upp á afturlappirnar. Abdulla er sagður hafa hótað því að taka yfir fjárstuðning til Egypta sem Obama hótar að afnema láti Múbarak ekki af embætti. Abdulla telur þetta ekki aðeins vera afskipti af innanríkismálum heldur sé Obama að niðurlægja Múbarak í leiðinni. Og Abdulla er sagður vinur BNA. Það er erfitt að sjá, hvort sem litið er til utanríkismála eða efnahagsmála að Obama sé mikið að auka veg BNA í heiminum.
En Bandaríkjaforseti er ekki einn um að láta lítið fyrir sér fara þegar heimsviðburðir láta á sér kræla. Fyrstir til að skríða í skjól er brjóstvörn friðar og frelsis í heiminum, Sameinuðu þjóðirnar. Kannski létu Sþ sig hverfa svo Múslímska bræðralagi gæti komið sér snyrtilega fyrir í Kairo áður en leiksýning Sþ hæfist. After all, er ekki einkaspæjara þeirra, þessum sem aldrei fann nein merki um kjarnorku í Íran, tekið með opnum örmum hjá bræðralaginu. Eitt er víst að værðin sem fallið hefur á Vestræna fjölmiðla vegna atburðarásarinnar er ekki mjög traustvekjandi. Það er klifað á því að margir ólíkir hópar standi að mótmælum í Egyptalandi, en engin umræða um það að eini hópurinn sem býr við fastmótaða stefnu og skipulag er Múslímska bræðralagi. Ef eitthvað er þá ættu sporin á Gaza að hræða.
Við upphaf borgarastyrjaldarinnar á Spáni 1936-1939 voru Anarkistar og Sósíaldemókratar í miklum meirihluta meðal lýðveldissinna. Höfðu um það bil 4 milljónir manna á bak við sig. Kommúnistar studdust við fylgi 150 þúsund kjósenda. Þegar yfir lauk réðu kommúnistar öllu og Anarkistar og Sd engu. Hvers vegna? jú vegna þess að kommúnistar voru organíseraðir, höfðu pólitíska maskínu á bak við sig og ólu á sundrung meðal hinna. Georg Orwell skrifaði merka bók, Homage to Catalonia, um svikin sem áttu sér stað og þó hann hafi verið harður kommi, þegar hann hélt til Spánar til að leggja lýðveldinu lið, þá snéri hann til baka vonsvikinn maður.
Í baráttunni um tilnefningu Demókrataflokksins til forsetaframboðs spurði Hillary Clinton spurningar sem margir spyrja sig nú. "Klukkan er þrjú um nótt og rödd segir............... Er Obama tilbúinn?"
Svarið liggur orðið nokkuð ljóst fyrir.
Viðbót. Sem dæmi um hve BNA hafa orðið utangátta í atburðarásinni í Egyptalandi er að ekkert samráð var haft um afsögn Múbaraks. Obama frétti það bara í sjónvarpinu eins og hver annar "nobody", sjá Yahoo frétt: http://news.yahoo.com/s/ap/20110211/ap_on_re_us/us_us_egypt
Mynd1: www.townhall.com
Mynd2: www.townhall.com
Mynd3: www.thecanadiansentinel.blogspot.com
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.