Leita í fréttum mbl.is

Ert ţú međ réttu smáköku uppskriftina?

Eđa er búiđ ađ koma ţér fyrir í skjalaskáp Nýja-Stasi í Arnarhváli?

Skjalageymslur Stasi

Athyglisverđ grein í Mogganum í morgunn. Hef hvergi séđ á hana minnst í fréttum eđa á bloggi, sem gerir hana enn athyglisverđari. Hélt í fyrstu ađ nú vćru karlarnir farnir ađ keppa um bestu jólasmáköku uppskriftina, en ţegar betur var ađ gáđ voru smákökurnar ekki ćtlađar á jólaborđiđ.

Náungi sem titlar sig stjórnsýslufrćđing upplýsir ađ ţeir sem notfćrđu sér vefinn "kosning.is" til ađ rađa frambjóđendum fyrir stjórnlagaţing hafi fengiđ smákökur sendar inn á tölvuna sína frá dómsmálaráđuneytinu. Ráđuneytiđ hafi ţar međ getađ fylgst međ tölvunotkun viđkomandi. StasiOg ţar sem ráđuneytiđ opnađi jafnframt ađgang ađ IP-tölu notandans hefur ţađ jafnvel átt möguleika á ađ greina strauma í ađdraganda kosningar og stýra viđbrögđum frambjóđenda. Ekki ţađ ađ náunginn sé ađ halda ţví fram, ađeins ađ hugmyndin ein og sér, ađ ráđuneyti sé ađ senda slíkt inn á tölvur borgaranna sé "ekki fyrir viđkvćma" og ţví afar "langsótt".

Nú vill svo skemmtilega til ađ dómsmálaráđherra er Ögmundur Jónasson. Góđur og gegn vörđur mannréttinda borgara ţessa lands og skýrir ţađ eflaust ţögnina sem ríkt hefur um máliđ.

En getur einhver ímyndađ sér kliđinn í loftinu ef dómsmálaráđherrann hefđi heitiđ Björn Bjarnason? Jafnvel tunnubyltinartónaflóđiđ 4. október hefđi drukknađ í ţeirri stríđóma hljómkviđu.

 

Mynd1: www.daylife.com

Mynd2: www.ebookx.com

    


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ţetta eru afhjúpađar smákökur, en uppskriftin gćti veriđ ađ austan. En hver ćtli geymi kökuboxiđ, ef Assange er ţá ekki búinn ađ stela ţví.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 10.12.2010 kl. 00:53

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Trúi ekki öđru en Ömmi frćndi sitji kyrfilega á kökuboxinu. Assanginn er hins vegar kunnáttumađur í sínu fagi og gćti, ţess vegna, hafa tćmt ţađ jafnóđum.

Ragnhildur Kolka, 10.12.2010 kl. 11:15

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband