29.8.2010 | 15:31
Er eignaréttur hugverka í ESB í hættu?
Það er ekki nóg með að ESB leggi hald á sjávarauðlindir þjóða heldur er stefnt að skipulagningu allra auðlindanýtingar aðildarlandanna frá Brussel. Í því skipulagi mun fiskur sem syndir í sjónum við Íslandsstrendur ekki finna grið í íslenskri landhelgi ef ESB kemst hér inn með tærnar og Spánverjar kast á hann girndarauga. Innan sambandsins hefur einnig verið bryddað á því að setja brusselska stjórn yfir nýtingu orkuauðlinda sambandslanda. Því var reyndar ekki vel tekið af Bretum, en sé það vilji ESB þá verður bara valtað yfir mótþróa þeirra þegar þar að kemur. Teknókratarnir vita alltaf best hver vilji annarra er. Okkar auðlindir ætla þeir að fá fyrir nokkra milljarða. Ekki er að efa að afstaða Norðmanna til ESB-inngöngu mótast, ekki hvað síst, af ótta við þessa botnlausu yfirgangssemi sambandsins.
Auðlindir hafa verið skilgreindar sem eign sem gefur af sér arð. Fiskur sem syndir í sjónum er skilgreindur sem auðlind. Olía í iðrum jarðar er skilgreind sem auðlind. Eins er með jarðhiti og fallvötn sem gefa af sér arð ef nýttar. En það er fleira matur en feitt kjöt. Bresk blöð fjalla nú um að ESB hafi komist að þeirri niðurstöðu að hugvit og hönnun geti ekki flokkast sem auðlind í einkaeign. Ekki sé réttlætanlegt að eyða tíma lögreglunnar í að eltast við svikahrappa sem stela hugmyndum annarra og selja eftirlíkingar af Gicci, Louis Vuitton eða Armani á götuhornum. Glæpur er ekki glæpur nema hann sé skilgreindur sem slíkur og fjölmargir munu styðja röksemdafærslu ESB. Iðnaðurinn sem byggir á þessari svikastarfsemi veltir skv. áætlun 1.3 milljörðum punda í Bretlandi einu. Það eru því ófáir viðskiptavinirnir sem taka þátt í leiknum og miðað við grein í Daily Telegraph þá virðast kúnnarnir bara ánægðir með sinn hlut og telja í fínu lagi að skarta stolnum hugverkum.
Lyfjaframleiðendur hafa glímt við þennan vanda og hafa ekki uppskorið mikla samúð. Fólki finnst það eiga rétt á að fá lyf fyrir lítið "af því lyfjafyrirtækin græða svo mikið". Að setja lyf á markað kostar mikið fé og fráleitt að öll lyf sem sett eru í þróun nái að ljúka því ferli, en þeim vangaveltum er ýtt til hliðar þegar umræðan snýr að þessum fyrirtækjum.
Það er svo aftur spurning hvar mörkin verða dregin. Verða þau dregin við verk sem fólki finnst lítið til koma (tískuvarning sem ótrúlega margir þrá þó að skarta), verða þau dregin við lyfjafyrirtækin sem fólk telur að græði of mikið eða dugar bara að öfundast til að réttlæta þjófnaðinn. Ef Brussel stjórnar því hvaða "auðlindir" falla utan einkaeignarréttar hvenær kemur þá röðin að hugverkum þeirra sem falla í flokk svokallaðra "listamanna"? Er nokkur ástæða til að rithöfundar, myndlistamenn eða tónskáld öðlist frægð í eigin nafni. Verða þeir ekki líka að leggja sitt til sambýlis ESB þjóðanna. Liggur stefnan kannski inn í gamalkunnugt form "listiðnaðarframleiðslu" í anda sóvét þar sem listamaðurinn syngur lofgjörð til dýrðar ESB.
Er ekki sagt að lífið sé eilíf hringrás.
Mynd1: chicstories.com/.../
;ynd2: http://dalje.com/slike/slike_3/r2/g2008/m07/x139176324403728620_4.jpg
Mynd3: 2.bp.blogspot.com/.../s400/serov-lenin.jpg
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.