Leita í fréttum mbl.is

Ađ trúa á sjálfan sig

 

 Baltnesk sólarströnd!
Rokrass
Ţađ er víđar rok en í Reykjavík.

Síđan haustiđ 2008 hefur aumingjaskapur, öfund og heift ráđiđ umfjöllun á Íslandi en ţađ var ţá sem hin útblásna ego-blađra, sem ţjóđin trúđi á,  sprakk međ hvelli og lćgstu hvatir tóku völdin. Minnimáttarkennd og skortur á sjálfsvirđingu hefur síđan ráđiđ ferđ. Stjórnvöld hafa ekki boriđ gćfu til ađ rétta af kúrsinn enda komust ţau til valda međ hefnd í huga; baksýnisspegill vinstrimennskunnar er nýttur til fulls og framtíđinni gefiđ langt nef. Svo gersamlega hefur stjórninni mistekist ađ tala kjark í ţjóđina ađ örvćntingarfullir kjósendur töldu stand-up skemmtikrafta líklegasta til ađ leiđa sig út úr öngţveitinu.

Í Eistlandi býr ţjóđ sem hefur búiđ viđ fátćkt og kúgun um aldir og fyrir ekki svo löngu átti hún sér jafnvel ekki von um framtíđ. Síđan gerđist undriđ. Sovét féll og smáţjóđ í miđju Atlandshafi sem trúđi á eigin ágćti, lýsti yfir stuđningi viđ sjálfstćđi Eista. Fyrir ţađ eru ţeir ţakklátir.

DSCN3260Íslendingum ţakk

Eftir 50 ára einangrun og kúgun byggja Eistar nú upp sitt land og horfa til vesturs. Fyrir ţeim eru hnignandi Vesturlönd framtíđ og frelsi, sem ţeir vilja tengjast sem sterkustum böndum. 

Meistarar brúđuleikhúsannaSovét hernámiđ er látiđ grotna niđur af sjálfu sér. Fyrir ţví fer eins og Snorrabúđ Jónasar Hallgrímssonar, náttúran tekur ţađ til sín. Á 20 árum hefur baltneski skógurinn náđ ađ brjóta niđur húsakynni innrásarhersins, ţannig ađ ţök hafa lyfst og ađeins veggir standa eftir. Ţetta er hefnd ţjóđar sem fékk engu um örlög sín ráđiđ í 50 ár. En eins og flestar ţjóđir sem legiđ hafa undir ţungum hrammi bjarnarinsí Austri hafa Eistar tileinkađ sér hefđir brúđuleikhússins, ţar sem litlu var til kostađ en margt var sagt. Í Tallinn er brúđuleikhús opiđ langt fram á kvöld.

Arfleifđ sinni halda ţeir lifandi međ ţví ađ  Old Hansa

varđveita gamla bćinn í sinni upprunalegu mynd og ţeir gera úr á ađ endurvekja stemningu fyrri alda. Old Hansa býđur upp á miđalda mat og drykk sem borinn er fram af ţjónustufólki í miđalda búningum viđ undirleik miđaldatónlistar. En ţeir ţjóna líka ţörfum nútímamannsins og bjóđa upp á veitingastađi ţar sem exotískur matur frá öllum heimshornum er borinn fram. Á ađaltorginu er ađ finna einn besta indverska veitingastađ sem ég hef heimsótt lengi. Hundrađ metrum ofar staldrađi ég viđ til ađ fá mér einn expresso á ítölskum stađ ţar sem klykkt var út međ ţví ađ 5 fílefldir lögregluţjónar handtóku náungann á nćsta borđi. Án allra fordóma fannst mér hann ţó meira traustvekjandi en ţjónarnir á stađnum sem allir litu út fyrir ađ vera statistar úr Martin Scorsese mynd um NY gengin.

Utan múra gamla bćjarins hefur nútíminn rutt sér til rúms međ tilheyrandi  glerháhýsum; hótelum sem bjóđa uppá sundlaugar og Spa svo heilsuhungrađir heimsborgarar geti haldiđ sér í formi án ţess ađ neita sér um lystisemdir lífsins.

nýtt og gamaltEistar eru á hrađferđ inn í nútímann og víla ekki fyrir sér ađ blanda ţví gamla viđ ţađ nýja eins og ţessi miđalda sölukona gerđi ţegar hún ţurfti í skyndi ađ ná sambandi viđ fjarstaddan ćttingja. Eistar hafa ţurft ađ starta frá núlli. Ekki eins og Íslendingar sem lifđu af Hruniđ međ alla sína bankareikninga tryggđa af ríkinu heldur međ tvćr hendur tómar og engar ađrar eignir til ađ halla sér ađ. Enga peninga nema 3000 rúblur sem hverjum fullvaxta einstaklingi var leyft ađ skipta yfir í eistneskar krónur eftir ađ landiđ varđ aftur sjálfstćtt ríki.

 Ţađ ríkir hér biturđ og reiđi í garđ Rússa, en Eistar hafa fulla trú á sjálfum sér og ađ ţeir komist út úr sinni fátćkt.

Ţađ er lífskraftur í ţessu landi.

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband