27.4.2010 | 20:24
Ein með öllu; Ísland í dag
Fjármálahrunið, ÓRG og Eyjafjallajökull; er á ástandið bætandi?
Hvað skyldu þessar drunur merkja? Er íslenskur almenningur að láta vita að þolinmæði hans sé þrotinn eða er annað hrun í vændum? Eftir það sem á undan er gengið eru Fannie og Freddie ekki beinlínis það sem mamma og pabbi vilja sjá Baby koma heim með.
Þarf ekki einhver að láta Fjallkonuna vita að AEJAFJEILAJÓGUL er lentur í slæmum félagsskap?
Mynd: www.townhall.com
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Ég ólst upp, eins og allir íslendingar, í þeirri vissu að forsetinn væri neyðarbremsa á Alþingi. Þegar forsetinn hlýðir á vilja þjóðarinnar og gerir nákvæmlega það sem þjóðin óskar og vill (í skjóli Stjórnarskrár sem etv.fór ekki út í öll tæknileg útfærsluatriði, þá var hún þó afar skýr í tilætlan sinni), þá stekkur hjörðin þæg til þegar smalinn smellir í svipunni. Vaknið af svefninum og takið sjálfstæða afstöðu til mála... ekki láta stjórnast af metnaðarlausum fjölmiðlum sem hoppa og stökkva eftir vilja eigenda sinna.
Ég hef nú ekki mælandi áhyggjur af þér kæra Ragnhildur, en varðandi Eyjafjallajökul og árásir á ÓRG vegna ummælanna.... þetta er sama leikhúsið og við höfum spilað hirðfíflin í svo lengi...allir fjölmiðlar virkjaðir og öllu til tjaldað gegn Ólafi... hvers vegna, jú af því að hann skrifaði ekki undir Icesave. Dettur nokkrum manni í hug að dvínandi sókn ferðamanna mælist taka kipp vegna ora Ólafs...ekki sjéns !
Það má ýmislegt um Ólaf segja, en bara alls ekki láta teyma sig inn í leikritið þar sem við hoppum sjálfvirkt með af meðvirkni og ógagnrýnni nálgun hjarðarinna.....
Ég læt hér mikið og beini því til lesenda þinna. Þú ert svo langt yfir þessa meðvirkni hafin að það þarf ekki orðum á það að eyða.
Haraldur Baldursson, 27.4.2010 kl. 21:37
Þú misskilur mig alveg, Haraldur, ef þú heldur að ég sé að hæðast að ákvörðun Ólafs þegar hann hafnaði undirritun Icesavelaganna. Ég tel að með því hafi hann bætt að nokkru fyrir allt hið skaðlega sem hann afrekaði á löngum ferli. Í þessum orðum felst aðeins viðurkenning á því að "enginn er með öllu illur". Lengra er ég ekki tilbúin að ganga..
Vísun í ÓRG hér að ofan á við setninguna "You ain´t seen nothing yet" sem hann lét falla á fundi í London 2005. Dekur hans við auðrónana var hlekkur í þeirri keðju sem leiddi til falls íslensku bankanna. Setningin gæti einnig vísað í digurbarka fjármálaráðherrans og þá í tengslum við ekki síðra tjón fyrir íslensku þjóðina, þ.e. endurreisn efnahagslífsins á grundvelli ofurskatta.
Engu að síður er sketsan athygli verð, því hún vísar í öll þau vandamál sem við stöndum frammi fyrir í dag: fjármálahrunið, flugbannið um norðurhvel jarðar auk skaðvaldanna og fyrrum flokksbræðranna ÓRG og StJoð.
Eflaust er það tilviljun að Eyjafjallajökull lendir í þessum slæma félagsskap og ekki hvarflar að mér að ætla höfundinum að draga taum e-s í íslenskri pólitík. Hann gæti þó hafa lesið ummæli ÓRG. Frekar gæti ég trúað að vísunin sé í regluverkið sem Obama er að reyna að koma í gegnum þingið. Eitthvað þarf að gera eftir það sem á undan er gengið, en frumvarpið mun ekki koma í veg fyrir bankahrun í framtíðinni. Skaðræðisparið Fannie og Freddie eru tilbúin í nýjan kollhnís.
Það er gaman að fá staðfestingu þess sem Tómas kvað forðum "hve hjörtum manna svipar saman í Súdan og Grímsnesinu". Hrunið snertir allan heiminn, en líklega er sketsan bara sönnun þess að glóbalíseringin hefur fangað okkur öll.
Ragnhildur Kolka, 28.4.2010 kl. 00:00
:-)
Það má vitanlega deila á Eyjafjallajökuls/Kötlu tilvitnun ÓRG...
en ég var svo sannarlega ekki að deila á þig...ég endurtek því :
"Ég læt hér mikið og beini því til lesenda þinna. Þú ert svo langt yfir þessa meðvirkni hafin að það þarf ekki orðum á það að eyða."
Haraldur Baldursson, 28.4.2010 kl. 00:22
Ég er ekki yfir neitt hafin, Haraldur, en vertu ávallt velkominn.
Ragnhildur Kolka, 28.4.2010 kl. 10:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.