26.4.2010 | 20:04
Nýtt Ísland eða Gamalt
Endalaust þvaður um afsökunarbeiðnir og tuð um styrki, sem alla (líka fjölmiðlamenn) dreymdi um fyrir ekki svo löngu, tröllríður umræðunni á ljósvakanum. Jafnvel háskólamenn sem þrá ekkert heitar en að komast í styrkjakerfi ESB láta nú sem þeir séu hafnir yfir stjórnmálamennina sem glötuðu dómgreind sinni til Mammons.
Eitt gott kom þó fram á RÚV í dag. Svanur Kristjánsson "hótaði" að segja sig frá stjórmálaþátttöku ef flokkarnir tækju ekki til í styrkjamálum sínum og stjórnlagaþingi verði ekki komið á.
Gerum okkar besta til að láta Svan standa við loforð sín.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Alveg missti ég af þessarri yfirlýsingu Svans í dag. Hélt reyndar að hann væri akademiker, ekki stjórnmálamaður. Skil því ekki alveg þetta sem þú hefur eftir honum með "stjórnmálaþátttöku".
Viðurkenni hins vegar -en iðrast ekki- að hafa stundum huxað í miðju gargandi góðærinu, sem ég náði aldrei alveg utanum, hvort ekki væri nú lag að sækja um einhvern af þessum milljónastyrkjum, sem allir í kringum mig voru að fá, hægri og vinstri.
Aldrei gekk þessi hugsun nú langt -og mikið er ég fegin í dag að hún skyldi ekki gera það.
Hildur Helga Sigurðardóttir, 28.4.2010 kl. 02:08
Svanur reyndi fyrir sér í Samfylkingarpólitíkinni en hafði ekki erindi sem erfiði. Líklega orðaði hann þessa hótun þannig að hann myndi "hætta afskiptum að stjórnmálum ef ekki yrði farið að .....", sem er jafnvel enn betra fyrir hlustendur RÚV framtíðarinnar.
Það er hræsnin eða tvískynuggurinn í styrkjaumræðunni sem fer mest fyrir brjóstið á mér. Það rann styrkjaæði á alla sem komist gátu yfir A4 blaðsnepil og kunnu að skrifa nafnið sitt: listamenn, vísindamenn, fræðimenn, fjölmiðlamenn og félagasamtök streymdu að fyrirtækjum og peningamönnum. Peningar voru í boði og fólk var tilbúið að taka á móti.
Nú þykist þetta fólk umkomið að dæma aðra.
Ragnhildur Kolka, 28.4.2010 kl. 07:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.