Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2010

Á Njáluslóðum

"Skein yfir landi sól á sumarvegi/ og silfurbláan Eyjafjallatind...."  Hann er reyndar ekki svo blár lengur, meira svona SVARTUR. Svartur jökullinn

En Guðni Ágústson hóf erindi sitt um Njálu í ljósi stjórnmála dagsins í dag á vísun í Gunnarshólma Jónasar. Það var ekki illa til fundið af þeim feðgum, sem reka gistiheimilið Ásgarð á Hvolsvelli, að fá Guðna til að flytja erindi sitt í þessum unaðsreit, því fyrr en varði fylltist húsið og flytja varð samkunduna út á verönd. Guðni sprengdi utan af sér húsið sem sýnir að þótt Guðni ÁgústssonGuðni sé horfin af sviði stjórnmálanna þá býr hann enn yfir hæfileikanum að láta að sér kveða á mannamótum. Var fólk víða að komið og kom fram að einhverjir höfðu jafnvel gert sér ferð alla leið frá Ísafirði þegar þeir heyrðu af fundarefninu, sem var auðvitað að blanda pólitík fornaldar við gruggugan mjöð stjórnmála dagsins í dag. Hvort lestur Guðna á þessari dramatísku sögu og heimfæring upp á nútímann er alltaf samkvæmt fræðastöðlum skal ósagt látið, en enginn efast um dálæti hans á sögunni. Hefur hann, samkvæmt eigin sögn, til dæmis ekki enn fyrirgefið Gissuri hvíta aðförina að Gunnari á Hlíðarenda þótt liðin séu þúsund ár. Telur Davíð Oddsson þetta sýna eindæma langrækni Guðna og neitar Guðni því ekki.

Guðni heimfærði sögupersónur Njálu upp á nokkra þeirra sem nú standa í orrahríð stjórnmálanna í dag. Var það skemmtilega framsett, þótt ekki væru kannski allir sammála greiningu Guðna. Best þótti mér honum takast  upp með líkingu Ögmundar við Skarphéðinn, Össurar við Mörð Valgarðsson, Bjarna Ben við Höskuld Hvítanesgoð og Ólöfu Norðdal við Hildigunni Starkaðardóttur (þótt ekki sé hún enn farin að kasta blóðugum klæðum manns síns í andlit andstæðinga hans). Sjálfur líkti Guðni sér við Kára Sölmundarson. Byggði líkingin á þvíHúsfylli!að báðir hefðu stokkið upp úr eldhafinu þegar verst lét og bjargast. Verður því ekki neitað að nokkuð hefur Guðni til síns máls hvað það varðar. Einn fundargesta taldi Hallgerði langbrók eiga sér "doppelgänger" á þingi og vildi meina að Ólína Þorvarðardóttir smellpassaði í hlutverkið. Enginn varð til að mæla því í mót, sem gæti verið umhugsunarefni fyrir Sigurð mann hennar ef hann léti ekki að stjórn. 

Vegur Framsóknarflokksins í samanburði Guðna við fornkappana var líka nokkuð meiri en tímarnir segja til um. Líkti Guðni viðfangsefni Sigmundar Davíðs innan flokksins sem fótameini sem hann þyrfti að losa sig við. Hrædd er ég um að eitthvað meira en fótamein hrjái flokkinn, því varla hefði kappi á borð við Guðna flúð eldhafið útaf slíkum smámunum.

Gott og kaffi og nýbakaðar vöfflur bíða samkomugesta inni í gömlu kennslustofunni í Ásgarði. Var þetta allt saman hin best skemmtun.

Háloftastemmningin hélt svo áfram inn eftir hlíðinni þar sem flughátíð var haldin á Múlakotsvellinum. Þar var margt um manninn og léku kappar listir sínar á farkostum ýmissa gerða. Ekki var það síðra "show" en Gunnar og Njálssynir buðu uppá á forðum daga. Flughátíð í Múlakoti

 


« Fyrri síða

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband