Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010

Illa meðferð ....... og gott betur

Jón GnarrJóni Gnarr er að verða búin að ná tökum á orðræðu pólitíkusanna. Steingrímur Joð er fyrirmyndin hvað sjálfshól og hroka varðar, þ.e.a.s. hafi það ekki bara verið sjálfur Muhammed Ali sem sat þarna í stólnum andspænir Brynju í Kastljósinu í kvöld, ók sér og klórað eins og hann væri illa setinn af óværu. Það efaðist svo sem enginn um að Gnarr væri ágætis leikari, en það dugir bara ekki að vera státinn og drjúgur með sig þegar við öllum blasir botnlaust umkomuleysi og vitund um vanhæfi. 

Það sem maður mátti horfa uppá í sjónvarpinu í kvöld hefði með réttu átt að banna undir liðnum "ill meðferð á ómálga skepnum". Þarna sat "geimveran" og ók sér öllum og klóraði eins og flærnar væru á árshátíð. En ólíkt fyrirmyndinni, StJoð, sem steytir hnefana þegar að honum er þrengt, þá notaði Gnarrinn loppurnar til að pússa í sífellu borðið fyrir framan hann. Með löngum sjálfandi fingrum strauk hann það eins og væri það líflína sem héldi í burtu myrkrinu sem geymir ljóta kallinn. Hefði Jón haft skott hefði hann eflaust líka notað það til að dusta borðið sem aldrei ætlaði að verða hreint.

Góður leikari lærir hlutverkið sitt áður en hann stígur á sviðið. Jón Gnarr sýndi kjósendum sínum ekki  þá virðingu. En hafi verið hægt að vorkenna Jóni þarna í Kastljósinu, þá gildir ekki það sama um kjósendur hans, sem misbuðu sínum lýðræðislega rétti með því að kasta atkvæði sínu á innantómt gaspur trúðsins.

Brandarinn hittir þá fyrir.

 

Mynd: http://www.zooweekly.com.au/funny-stuff/freaks/is-mel-the-worlds-biggest-idiot.htm

 


Lítill heimur

Við höfum tilhneigingu til að álíta að nafla alheimsins sé að finna á Íslandi. Aðrir halda því fram að hann sé í Brussel en enn sem komið er verða flestir að beygja sig undir þá staðreynd að augu heimsins falla á Bandaríkin þegar þungavigtin þar hristir sig. 

En svo undarlega vildi til á Íslandi og í BNA að í dag spegluðust atburðir sem einn væri. Æðsta vald þessara tveggja landa baðst griða af andstæðingum sínum. Fyrir Barack Obama var þetta nýlunda, því allt frá því að hann tilkynnti pólitískum andstæðingum sínum í upphafi forsetatíðar sinnar "I won" hefur hann ekki virt skoðanir þeirra viðlits. Í dag lýsti hann því yfir að nú þyrftu allir að vinna saman að þjóðarhag. Hver kannast ekki við þennan "þjóðarhag" sem sífellt dúkkar upp þegar Jóhanna Sigurðardóttir stendur ráðþrota andspænis viðfangsefnum sínum. Og samkvæmt hefð ákallaði hún því stjórnarandstöðuna í dag til að sýna ábyrgð og vinna með stjórninni að koma fjárlagafrumvarpi á koppinn. Björgunarhringur ríkisstjórnarinnarEn stjórnarandstaðan hefur fengið nóg af að kasta björgunarhringjum í steindautt lík sem kallar sig ríkisstjórn, en er bara samsafn sérhagsmunaseggja sem sjá ekki út úr eigin nafla.

Það var virkilega tímabært fyrir Bjarna Benediktsson að neita að taka þátt í málamiðlunum með eigin tillögur, þegar ekkert annað en stimpils stjórnarandsöðunnar, á vonlausar tillögur ríkisstjórnarinnar, er krafist. Jóhanna á ekkert inni hjá stjórnarandstöðunni. Engu að síður getur steingeldur hugarheimur hennar ekki náð utan um skilaboðin sem hún fékk í dag. Hún grípur til hótana eins og alltaf þegar hún fær ekki það sem hún vill. Og hverju hótar hún? Hún hótar að ríkisstjórnin leggi þá bara sitt eigið fjárlagafrumvarp fram. Hvað annað. Er þetta ekki meirihlutastjórn?

Þessum brandara getur stjórnarandstaðan hlegið að allar götur til kosninga. 

Jóhanna, Steingrímur og öll hin vanhæfa ríkisstjórn eru steindauð. Það á aðeins eftir að skrifa undir dánarvottorðið. Það verður hins vegar erfiðara fyrir Obama að þrauka næstu tvö árin. Markmiðum hans var slátrað í kosningunum í gær. En Obama verður nú að eyða allri sinni orku í að dansa við þing sem ekki hefur enn gleymt orðum hans "I won". Hann er því strax farinn að spinna vörn sína gegn atlögu republikana gegn heilbrigðislöggjöfinn sem hann þvingaði í gegn án nokkurs samráðs við stjórnarandstöðuna, gegn umhverfislöggjöfinni sem fór í gegn með sömu aðferðum og gegn löggjöf um fjármálastarfsemi sem var beinlínis troðið ofan í kok á andstæðingnum. 

Með því að leggja alla áhersluna á efnahagsástandið sem aðal ástæðu kosningaósigursins getur hann látið George Bush (og þá repúblikana) taka hluta byrðarinnar.

Morðvopnið
 

En það breytir ekki þeirri staðreynd að gæluverkefnin sem hann hefur þröngvað upp á þjóðina hafa þrefaldað fjárlagahallann sem Bush skildi eftir og á eftir sökkva þessu mikla veldi ef ekki er tekið í taumana.

Það er einmitt það sem kjósendur í BNA nýttu sinn lýðræðislega rétt til að koma á framfæri í kosningunum í gær.

 

Mynd1: www.dreamstime.com

Mynd2: www.townhall.com

Viðbót dagsins 8. nóvember

Hver stjórnmálamaður á sinn fjandmann. Verða það gleðióp Ingibjargar Sólrúnar sem hljóma hæst þegar stjórn Jóhönnu hrökklast frá? Hver veit?

Kátt í höllinni

 

Mynd: www.townhall.com

 

 


Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband