4.5.2009 | 20:10
Aftur til framtíðar eða fram til fortíðar
Jú, hysterían sem keyrð hefur verið í fjölmiðlum heimsins vegna svínaflensufaraldursins, sem nú grasserar, er svo sannanlega smitandi. Og Svínka litla hefur fulla ástæðu til að óttast þennan grímuklædda náunga í tvennum skilningi. Hysterían gæti kallað á að tilskipun um allsherjar niðurskurð á svínastofnum væri gefin út eins og nýlega gerðist í Egyptalandi og þá væri Svínka komin með himneska vængi. En Svínka þarf ekki síður að vara sig á pestinni sem karlsvínið við hliðina á henni gæti borið í hana.
Reyndar er hann nú þegar búinn að smita litla skinnið. Staulinn skrapp til Mexico, náði sér í pestina og flutti hana heim til Kanada í nösunum þar sem hann snýtti henni beint framan í Svíknu án þess, svo mikið sem að biðjast afsökunar.
Svínka varð dálítið domm, missti matarlyst og fékk hita, en er nú á batavegi. Hún fékk bara smá svínapest.
Hvað gerist ef nýr svínahirðir tekur til starfa í stíunni hennar Svínku? Það er stóra spurningin. Dettur hann niður dauður með það sama eða snýtir hann sér bara hressilega og heldur áfram að moka flórinn. Bandaríska smitvarnaeftirlitið mun fylgjast með því.
Hvort pestin tekur sér far á hringekju víxlverkana "maður-svín-maður" og magnast upp eða dofnar og deyr, þá getum við bókað að ný hystería mun taka við af þessar áður en við náum að segja ATCHJÚ, þvÍ við erum orðin þrælar hysteríufíknarinnar.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Já og hvers vegna ekki?
Að minnsta kosti auðveldara að hræða pöbulinn með ógn gegn sinni eigin heilsu og lífi en einhverju fjarlægu tali um "global warming", fjármálakrísu og stríðinu í Írak. Hérna er hægt að setja grímur á almenning og hræða úr honum líftóruna með beinum hætti.
Geir Ágústsson, 4.5.2009 kl. 21:28
"Global warming" var ekki að virka lengur eftir að milljónir heimila í BNA voru langtímum saman án húshitunar vegna ísingar á rafmagnslínunum. Ný tilskipun hefur verið gefin út. Nú eru það "loftlagsbreytingarnar" sem við eigum að óttast mest (þ.e. fyrir utan svínaflensur "and what not").
Ef loftslagsbreytingar duga ekki til að hræða líftóruna úr okkur má alltaf bæta við "af mannavöldum".
Slíkt er samviskubit heimsins.
Ragnhildur Kolka, 4.5.2009 kl. 22:07
Því miður var spænska veikin, sem geisaði m.a. hér á Íslandi 1918, engin "hysteríupest". Móðuramma mín, Hildur Stefánsdóttir, og nýfædd dóttir hennar, þriðja barn, fengu hana og lágu fársjúkar frostaveturinn mikla. Ef ekki hefði komið til góður læknir, sem leit til þeirra daglega, hefðu þær ekki lifað af -og móðir mín og seinni systkin aldrei fæðst.
Fæsta langar væntanlega að taka þátt í ímyndunarveiki. En gleymum því samt ekki hvað sagan er stutt -eða þannig.
Hildur Helga Sigurðardóttir, 7.5.2009 kl. 01:58
Spænska veikin vara engin "hysteríupest". Einhvers staðar á bilinu 20-50 milljónir manna létust úr þeirri illu flensu, sem framreiknað miðað við mannfjöldaaukningu gæti losað 350 milljónir í dag. En aðstæður voru aðrar en í dag; hermenn pakkaðir í skotgrafir og húsakostur lélegur auk almennrar fátæktar. Við verðum líka að vona að læknisfræðinni hafi fleytt e-ð fram síðan 1920.
En við lifum á tímum hysteríufíknar. Fuglaflensan kallaði fram eitt slíkt ofurkvíðakast þótt WHO segi aðeins 257 manns hafi látist úr þeirri flensu. Þar á undan SARS óðagotið sem lagði 774 í valinn og kúariðan; dauðsföll af völdum hennar ku vera 150.
Í BNA látast 30.000 manns árlega úr hversdagsflensunni sem lítur líka inn til okkar og það þarf ekki annað en líta á dánartilkynningar dagblaðanna á útmánuðum til að sjá tollinn sem hún tekur hér. Einhvernvegin virðist sú flensa vekja litla athygli.
Því kalla ég þetta fár sem nú hefur geisað hysteríu, því umræðan er keyrð áfram af fjölmiðlum sem þurfa á viðstöðulausri innspýtingu að halda.
Kannski maður ætti frekar að kalla þetta fréttafár.
Afi minn fékk sína eldskírn í læknisfræði í Spænsku veikinni. Geri ekki ráð fyrir að það hafi verið hann sem leit til ömmu þinnar, en get tekið undir með þér að það hefði verið skaði skeður ef genin hefðu lagt upp laupana hjá Hildi Stefánsdóttur.
Ragnhildur Kolka, 7.5.2009 kl. 17:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.