7.3.2009 | 23:01
RÚV er enn í gamla gírnum
Í dag hafa fréttastofur RÚV verið uppteknar af því að segja okkur frá and-fasískum óeirðum í Svíþjóð. Grímuklæddir óeirðaseggir hafa barist við lögreglulið og valdi spjöllum. Slíkar óeirðir eru að verða svo hversdagslegar að maður tekur varla eftir þeim, en þessi frétt sýnir hvað okkar ágæta ríkisútvarp leggur lítið á sig við upplýsingaöflun. Óeirðirnar voru nefnilega ekkert sérstaklega and-fasískar að öðru leyti en því að RÚV gat ekki nefnt þær sínu rétta nafni. Þetta voru rasista óeirðir öðru nafni gyðingahatur.
Það hefur lengi verið vitað að stefndi í þessar óeirðir og í raun má segja að Svíar hafi lagt sig fram sérstaklega fram við að bjóða upp á þær. Davis bikarkeppnin í tennis er einn stærsti viðburður í liðakeppni sem um getur. Þegar séð var að ein keppnin færi fram í Svíþjóð og að einn keppandinn yrði Ísraeli átti gestgjafinn kost á að velja hvar keppnin færi fram. Svíar völdu Malmö. Í Malmö eru 25% íbúa múslimar. Í Malmö hefur allt logað í óeirðum milli múslima og lögreglu síðustu ár og ekki lengra síðan en desember sem bílabrennur a la Paris lögðu Rosengaarden hverfið í rúst. Malmö var því einstaklega heppileg borg til að halda keppnina. Og vegna fyrirsjáanlegra óeirða var keppnin haldin fyrir lokuðum dyrum svo að segja. Aðeins 300 vel valdir áhorfendur fengu að njóta þessa stórviðburðar í tennis. Aðrir tennisunnendur fengu bara ánægjuna af því að fylgjast með grímuklæddum óeirðaseggjum kasta grjóti í lögregluna í sjónvarpinu.
Sameinaða Arabíska furstadæmið tók líka þátt í þessu móti og byrjaði á því að neita ísraelsku þátttakendunum um vegabréfsáritun. Ísraelska tenniskonan Shaha Peer varð af keppni en þá mannaði alþjóðlega tennissambandið sig upp og sektaði mótshaldarana um $300 þúsund og hótaði að bannsetja þá. Það hefði líklega ekki haft mikla þýðingu ef ekki hefði verið fyrir að allir helstu tenniskappar heims hótuðu að mæta ekki á mótið. Andy Ram (sá sem líka keppti í Svíþjóð) fékk því að koma til landsins undir strangri gæslu og almennt fáránlegum keppnisaðstæðum. Engin samstaða um "boycott" náðist meðal kvenkeppenda og því fékk Shaha ekki tækifæri til að spreyta sig.
Pólitísk rétthugsun liggur yfir ríkisútvarpinu eins og mara. Passað er upp á að nefna hlutina aldrei sínu rétta nafni og séð til að ekkert samhengi komi í ljós þegar fjallað er um óeirðir sem rekja má til kynþáttahaturs eða ofbeldis múslimskra í Evrópu.
En hversu djúpt sem menn stinga hausnum í sandinn mun vandamálið ekki hverfa. Að trúa því er hreinn barnaskapur.
(mynd: Chicagotribune.com)
Smá viðbót við fyrri færslu:
http://online.wsj.com/article/SB123663456334076141.html
Þessi grein birtist í Wall Steet Journal þann 10. mars. Líkt og mér þykir þeim það hið undarlegasta mál að Svíar skuli nota þessa tenniskeppni í pólitískum tilgangi. Greinin ber nafnið Sænska furstadæmið, sem lýsir ótrúlega vel hvernig komið er fyrir Svíþjóð. Í raun eru öll Norðurlöndin seld undir þessa sök, þ.m.t. Ísland með RÚV í fararbroddi.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Netið er mikið lán fyrir þá sem hafa áttað sig á takmörkum íslenskra fréttamiðla.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 8.3.2009 kl. 16:19
Tennis er ekki beinlínis á áhugasviði mínu, en þegar ég rak augun í að Svíar hefðu valið keppninni stað í Malmö fór ég að skoða þetta betur.
Svíar völdu að setja þetta í brennipunktinn, vitandi að þarna yrðu óeirðir, jafnvel hugsanlega mannsmorð. RÚV leikur leikinn með Svíum og lætur eins og þetta hafi verið alger tilviljun. En prógrammið var skipulagt fyrir mörgum vikum, jafnvel mánuðum.
RÚV tók svo að sér að bera hræsnina áfram til Íslendinga.
Ragnhildur Kolka, 8.3.2009 kl. 20:44
Er þér alvara, kona? Ætlarðu í alvöru að flokka andstöðu við útþenslustefnu Ísraela sem rasisma? RÚV fer ekkert sérlega fögrum orðum um þá sem báru grímur í óeirðunum, öll umfjöllunin lyktar að minnsta kosti af því að fréttaritari flokki þá sem glæpamenn. Ætlarðu ef til vill að meina að íslenskir fjölmiðlar hafa hallað máli Palestínu í hag?
Einar Axel Helgason, 8.3.2009 kl. 21:18
Sæll Einar.
Áttu í einhverjum vandræðum með að skilja að óeirðirnar í Malmö voru í boði Svía eða réttara sagt sænska tennissambandsins. Ákvörðunin um staðsetningu var meðvituð og lýsir kannski best hræsni Svía. RÚV tók þátt í leiknum.
Áróður "Vina Palestínu" breytir þar engu um..
Ragnhildur Kolka, 9.3.2009 kl. 08:09
Þú ert ekki með fullum fimm. Það að halda íþróttamót í Malmö þykir mér eðlilegt, þetta er þriðja stærsta borg í Svíþjóð, svo ef halda á íþróttamót þar í landi, þá er væntanlega jafneðilegt og hvað annað að borgaryfirvöld Malmö reyni að ná réttinum. Auk þess er borgin staðsett nærri brúnni yfir Eyrarsund. Í Stokkhólmi eru reyndar um 28% íbúa innflytjendur – en 27% í Malmö. Hefði kannski átt að halda mótið í Stokkhólmi?
RÚV matar okkur sífellt á rangfærslum um ástandið í Palestínu. Til dæmis er óbrigðult að Hamas er nefnt sem hryðjuverkasamtök. Hamas eru hins vegar múslimsk stjórnmálasamtök í Palestínu, sem standa meðal annars fyrir rekstri skóla og sjúkrahúsa. Samtökin hafa sinn vopnaða væng – en það er tæpast hægt að kalla það hryðjuverkavæng, því þessi samtök er eina hernaðarvald Palestínumanna. Þess vegna er hægt að segja okkur að Ísrael hafi aðeins miðað á aðsetur hryðjuverkamanna, þegar þeir sprengja bæði skóla og sjúkrahús.
Einar Axel Helgason, 9.3.2009 kl. 09:56
Einar Axel, af hverju ættu borgaryfirvöld að sækjast eftir að halda stórmót í íþróttum ef engir áhorfendur fá að sækja atburðinn? Það skiptir engu þótt brúað sé yfir hálfan hnöttinn ef enginn fær að kaupa sig inn á leikinn.
Þegar ofan á það bætist að gera megi ráð fyrir að fleiri þúsund múslimar í vígamóð mæti til að berjast við lögregluna þá getur það ekki verið fýsilegur kostur. Tölur um hlutfall múslima í Malmö voru gamlar, þ.e. frá 2005 og þakka ég þér fyrir að upplýsa mig. Tel þó að breytingin frá 25-27% geri valkostinn ekki fýsilegri.
Hamas er á skrá hjá ESB sem hryðjuverkasamtök. Stjórnmálaþátttaka er aðeins að nafninu til, því Hamas er armur Múslimska bræðralagsins, sem hefur öfgafulla íslamiseringu á stefnuskrá og hún innifelur útrýmingu gyðinga og annarra vantrúaðra.
Reyndar er það svo að mannslíf skiptir Hamas litlu máli nema til að nýta í áróðursskyni. Börnum er att út í bardagana og þau alin upp við tilhugsunina að sprengja sig í loft upp. Hatur er grunnmótíf í uppeldi barna. Skólarnir og sjúkrahúsin hafa verið notuð sem skjól fyrir byssumenn og sem skotpallar fyrir eldflaugar, eins og reyndar starfsmenn Sþ hafa viðurkennt.
Frá því að Ísraelsmenn yfirgáfu Gaza hefur fleiri þúsund eldflaugum verið skotið þaðan yfir til Ísrael. Hamas samtökin báru sigur úr bítum eftir að sjálfsstjórn var komið á, en engin uppbygging hefur átt sér stað hvað atvinnu varðar og gróðurhúsin sem Ísraelar skildu eftir og velviljaðir menn gáfu Gazabúum voru snarlega jöfnuð við jörðu svo ekkert sér af nema ryðgaðir burðarbitar og glerbrot.
Hins vegar hafa Hamas haft nægilegt fé til að byggja upp sitt vopnabúr og er skemmst að minnast að einn frammámaður í Hamas var nýlega tekin við landamæri Egyptalands með á annan milljarð í dollurum og evrum. Þeim peningum var ætlað að endurnýja vopnabyrgðir eftir síðustu átök. Hamas ætla alþjóðasamfélaginu að sjá um skólana og sjúkrahúsin.
Ef einhver lýsir því yfir við mig að hann ætli að drepa mig og útrýma öllum mínum skyldmennum, þá hika ég ekki við að snúast til varnar. Ísrael er umkringt þjóðum ( 400 milljónir manna) sem eiga þá ósk heitasta að útrýma gyðingum; hrekja þá í hafið. Þér finnst eðlilegt að 7000 manns mæti til að hrekja einn tennisleikara úr landi með grjótkasti og barsmíðum.
Ef þú værir tennisleikarinn hvernig heldurðu að þér yrði við?
Ragnhildur Kolka, 9.3.2009 kl. 18:07
Gyðingahatur er virkilega óhuggulegt en við skulum nú ekki gleyma því að flestir múslímar hata ekki gyðinga og lifa hóparnir að mestu í sátt við hvorn annan.
Ég tel það leyfilegt að gagnrýna Ísrael en alltof oft finnst mér gagnrýnin leiða til gyðingahaturs.
Þakka þér svo kærlega fyrir bloggvináttuna Ragnhildur mín.
Hilmar Gunnlaugsson, 10.3.2009 kl. 18:08
Hilmar þakka þér fyrir innlitið: En gyðingahatur er ekki nýtt fyrirbæri það hefur verið iðkað undir ýmsum nöfnum í Evrópu frá 12 eða 13. öld. Það þarf ekki múslima til, en innflæði þeirra til Evrópu hefur aftur gert það sýnilegt.
Gyðingar eiga undir högg að sækja um gervalla álfuna og eins og þessi frétt frá Svíþjóð sýnir þá lifir gyðingahatur góðu lífi á Norðurlöndum. Ísland er þar ekki undanskilið og ef þú hlustar á "fréttaskýringarþáttinn" Spegilinn, þá veistu að þar er rekinn markviss áróður gegn Ísraelríki og gyðingum.
Þeir treysta því að alltaf séu einhverjir aular til að bíta á agnið.
Ragnhildur Kolka, 10.3.2009 kl. 21:50
Sæl Ragnhildur.
Það er rétt að gyðingahatur hefur verið iðkað lengi. Í Íran er gyðingahatur stefna ríkisins og hefur forsetinn t.a.m. afneitað helförinni og sagt að þurrka ætti Ísraelríki burt. Flestir múslímar sem koma frá Íran hafa því lítinn skilning á helförinni. Svona er þetta í fleiri múslímalöndum og er breytinga þörf á stjórnum þessara landa og mikilvægt að lýðræði verði komið á.
Ég er sammála þér að oft sé fréttaflutningur um Ísrael og gyðinga óvandaður á Íslandi sem og kennslu um helförina. Ég býð þér að skoða mína síðu en þar fjalla ég um leiðir til úrbóta í kennslu og fræðslu um þennan hræðilega atburð.
Hilmar Gunnlaugsson, 10.3.2009 kl. 22:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.