4.10.2008 | 14:29
Kosningabaráttan á mbl.is
mbl.is sér ástæðu til að taka þátt í kosningabaráttu forsetaframbjóðenda Bandaríkjanna. Það þarf ekki að leita langt til að sjá hvar stuðningurinn liggur. Það er ekki bara innihald frétta heldur líka fyrirsagnir sem "auðvelda lesendum" að taka afstöðu.
Hvað með þessa frétt. Sara Palin loðin um lófana. Er ekki eitthvað spúkí og ógeðfellt við þessa loðnu lófa? Og í framhaldinu er látið að því liggja að hún sé að gefa rangar upplýsingar um sig þegar hún segist þekkja af reynslu líf venjulegs fólks. Ekki man ég til að fjallað hafi verið svona um milljóndollara hús Obama eða hvernig hann komst yfir það með hjálp frá vini sínum og velgjörðamanni Tony Rezco. Manninum sem nú situr af sér dóm fyrir fjársvikamál af stærri gerðinni.
Nei, því að vera rifja upp svona leiðind. Síðasta frétt mbl.is um Obama birtist undir fyrirsögninni Barack kaupir blóm fyrir Michelle. Náungi sem man eftir brúðkaupsafmælinu sínu og stöðvar bílalestina til að bregða sér í blómabúð, hann hlýtur að eiga skilið að verða forseti Bandaríkjanna. Ekki er það verra að athöfnin náðist á mynd. Enginn grunur um útspekúlerað PR.
mbl.is birti frétt um að svo virtist sem Biden hafi haft betur í kappræðunumá fimmtudagskvöld. Hefði Biden ekki átt að fara létt með að valta yfir nýgræðinginn. Hann hefur verið 35 ár í Öldungadeildinni að æfa sig í ræðumennsku og tvisvar boðið sig fram til forsetaembættis. Hún hefur verið í sviðsljósi heimspressunnar í 1 mánuð. Þar áður verið að baksa í einhverju sveitastjórnarstússi á norðurhjara, starf sem elítan lítur á sem ígildi hundahreinsunarembættis.
Það sem mbl.is telur fréttavert vekur athygli. Í dag misstu þeir gullið tækifæri að segja lesendum frá að 70 milljón manns tók sér tíma til að horfa á umræddar VP kappræður, þ.e. 28 milljón fleiri en þeir sem horfðu á aðalleikarana.
Halda menn að það hafi verið Biden sem fólk vildi sjá?
Sarah Palin loðin um lófana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Það virðist alveg hafa gleymst í fréttaflutningi blaðamanns að eignir og tekjur Söru Palin hafa hækkað um 78% frá miðju þessu ári umreiknað í Íslenskar fallkrónur. Líklega á hún eftir að verða ennþá ríkari?
Pétur Sigurðsson, 4.10.2008 kl. 15:38
Skarplega athugað Ragnhildur. Morgunblaðið ætti að sjá sóma sinn í að vera hlutlaust. En það er borin von úr þessu. Vinstri sinnað fólk er búið að taka blaðið yfir.
Kristinn Haukur Guðnason er ágætis þverskurður þeirra viðhorfa sem ganga ljósum logum gagnvart Repúblikönum, fullur heiftar og skammsýni.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 5.10.2008 kl. 08:20
Kristinn Haukur, Hitlers-líkingin er ekki rök heldur rökþrot og í raun hef ég ekkert við þig að segja annað en að fólk sem notar bloggið til að ausa úr skálum reiði sinnar á ekki samleið með mér.
Ragnhildur Kolka, 5.10.2008 kl. 10:34
Kristinn Haukur, þessi listi líkist meira þvottahússlista en röksemdafærslu, en ég virði við þig að þú gerir tilraun og mun því svara því sem svara vert er.
Saddam Hussein stóð að þjóðarmorðunum í Írak. Ekki bara á Kúrdum heldur líka shítum og þá sérstaklega fenja-shítunum.
Vísindi standa hvergi framar en í Bandaríkjunum.
Staða kvenna er hvergi betri en í Bandaríkjunum, þar eru fleiri konur í stjórnunarstöðum en nokkurs staðar, nema vera kynni í Noregi þar sem kynjahlutföll í stjórnum eru lögskipuð. Repúblikanar bera ekki ábyrgð á að Hillary Clinton beið lægri hlut fyrir Obama. Mannréttindi samkynhneigðra eru virt og sum fylkjanna leyfa hjónabönd þeirra. Það er hins vegar álitamál hvort hjónaband flokkist undir mannréttindi.
Hvergi er lýðræðið virkara en í Bandaríkjunum. Hvergi í heiminum er málfrelsi gert jafn hátt undir höfði, þótt demókratinn Obama hafi nú uppi tilburði til að hefta það.
Obbinn af framförum í heilbrigðismálum heimsins kemur frá Bandaríkjunum. Þeir eru nú að taka yfirflæðið frá hinu ríkisrekna heilbrigðiskerfi Kanada sem ræður ekki neitt við neitt. Flestir af bestu háskólum heims eru staðsettir í Bandaríkjunum. Repúblikanar hafa verið við völd síðustu 30 ár utan Clinton tímabilsins. Engar sérstakar sögur fara af framförum á þessu sviði í tíð Clintons, hins vegar jukust undirmálslánin margfalt fyrir afskipti hans. Lánin sem nú eru að kollkeyra efnahag heimsins.
Ragnhildur Kolka, 5.10.2008 kl. 13:45
Ég tek ekki að mér að sinna viðtalstherapíu fyrir fólk sem grafið hefur sig ofan í holu og neitar að horfa upp -þú verður að taka vandamál þín vegna repúblikanana eitthvað annað.
Ragnhildur Kolka, 6.10.2008 kl. 12:32
Mér þykir leitt að þér líði svona illa en ég endurtek - taktu vandamál þín eitthvað annað.
Ragnhildur Kolka, 6.10.2008 kl. 18:59
Ragnhildur Kolka sem var einu sinni svo fylgjandi röksemdarfærslu. Þvílík breyting á hvað.. sólarhring?
Skondið.
Hróðvar Sören, 6.10.2008 kl. 23:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.