3.6.2007 | 09:30
... leitar náttúran út um síðir
Peningar! Völd! Kynlíf! Hvað er það sem knýr heiminn áfram? Ætli það sé ekki sitt lítið af hverju. Rétttrúnaðarpólitíkin hefur þó kastað rekunum yfir þarfir og þrár kynlífsins og flest flokkast nú sem klám. Ég varð því ekki lítið hissa þegar ég vaknaði í gær með kynlífskvak allt í kringum mig. Og ekki bara frá femíinistum, sem slegið hafa eign sinni á umræðuna, heldur líka frá ótíndum sjónvarpmönnum, blaðasnápum og bloggurum. Loftið titrar af eftirvæntingu og spennu. Loksins eitthvað bitastætt. Hver fréttin rekur aðra um þessa óáranin sem viðhaldið hefur mannkyninu í hundruð þúsundir ára, ef ekki milljónir. Fyrst er að telja hneykslið á fjöllum. Upplýst hefur verið að konur hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustað. Hvar? Jú auðvitað á Kárahnjúkum. Hvergi annars staðar á Íslandi er jarðvegurinn fyrir hneykslanlegt athæfi jafn frjósamur. Kynjahlutföll um það bil 95:5 og villt náttúran allt í kring. Spurning hvort Impreglio hafi ekki átt að vera skylt að afhenda skírlífisbelti strax við undirritun ráðningarsamnings. Hvers vegna það kemur fólki á óvart að klappað sé á einhverja kvenmannsbossa, svona í framhjá hlaupi, kemur mér hins vegar á óvart, enda á þeim aldri að muna slík bossabrek áður en þau voru særð úr íslenka karlpeningnum. Ótrúlegt samt, að ekki hafi hvarflað að þeim konum, sem um þessi störf sóttu, að karlar sem taka sér fyrir hendur að nauðga náttúrinn, láti staðar numið þar. En þar sem engar kærur hafa verið lagðar fram verður að líta svo á að annað hvort hafi ekkert gerst eða allt farið fram með einróma samþykkt. Eða eins og Sóley Tómasdóttir orðaði það svo skemmtilega á blogginu sínu að konur nú hafa kynhvöt sem þær megi ráðstafa að vild. Þetta eru orð í tíma töluð. Og ekki er allt búið. Hótel Saga (eða hvað Bændahöllin heitir núna) hefur þurft að reiða fram milljónir í skaðabætur fyrir ósæmilega viðskiptahætti eftir skírlífisstorminn sem óð yfir landið síðastliðinn febrúarmánuð þegar nokkrir buisnessmenn, úr ónefnanlegum iðnaði, ætluðu að líta hér við. Látum vera að femínistar, kirkjan og pífumprýdd ritstjórn Morgunblaðsins hafi misst jarðtenginguna um sinn. Það er nú reyndar engin nýlunda. En að borgarstjórn Reykjavíkur álykti gegn erlendum ferðamönnum, sem gera vildu hér stutt stop, það tekur út yfir allan þjófabálk. Skynhelgin hjá þessari þjóð, sem reglulega er í heimspressunni vegna óhaminnar unglingadrykkju eða vegna lauslætis kvenþjóðarinnar, ríður ekki við einteyming. Viljum við ekkert vita af kynlífi eða klámi. Hvernig má þá útskýra að gæðaritið Ísafold er uppselt á öllum útsölustöðum. Hvers vegna? Jú, vegna þess að lífið er orðið svo deadly dull fyrir obbann af íbúum þessa lands að þá þyrstir í smá broddborgara svita. Á bakvið býr hins vegar tilraun til að berja bæjarstjórann í Kópavogi í gólfið, líkt og tókst svo snilldarlega með Vilhjálm Þ í vetur. Feillinn liggur í, að enn rennur blóð í æðum Gunnars I, svo þetta mun taka eitthvað lengri tíma. En ekki skortir á aðdráttaraflið orðanna Goldfinger!! Vændi!! Mansal!! Menn eru ekki í vanda með að lýsa ósómanum. Silja Bára Ómarsdóttir fullyrti í Í vikulokin í gær að lögbrot séu framin á Goldfinger. Ekki að hugsanleg lögbrot séu framin þar. Nei, þau eru framin þar. Svona fullyrðing kallar ekki á rökfærslu eða sönnunarbyrði að hennar mati. Það þarf aðeins að varpa henni fram og þá er hún orðin að viðmiði. Þjóð veit þá tveir vita. Þetta með leiðann er ekki bara gripið úr tómu loftinu. Frétt í dönskum blöðum lýsir vanda danskra karla og geta má sér til að vandinn eigi við fleiri. En sífellt fleiri karlar leita nú til læknis í Danmörku vegna löngunarleysis til spúsu sinnar. Þetta gerist þrátt fyrir Viagra og öll tækin og tólin sem sérverslanir með hjálpartæki hafa á boðstólum. Jafnréttið virðist hafa gefið körlum kvenlega kvilla, svo sem, höfuðverk. Ekki björguleg bítti það. Það skyldi þó ekki vera að síðastu von mannkyns til að viðhalda sér verði, í framtíðinni, að finna á virkjanasvæðum í óbyggðum Íslands.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.