Leita í fréttum mbl.is

Aðfangadagur á RÚV

Það verður ekki beinlínis sagt að RÚV hafi flaggað sínu besta á aðfangadag jóla. Ekki einu sinni sínu næstbesta svo ekki sé dýpra í árina tekið og það jafnvel þegar fréttaflutningurinn snérist um fæðingu frelsarans í borg Davíðs.

Konungur konunganna

Þorvaldur Friðriksson las okkur pistilinn um þjáningar og þrengingar kristinna Palestínu araba frá Gaza sem Ísraelsher leyfði, af fullkominni hræsni, að sækja guðsþjónustu í fæðingarkirkju frelsarans í Betlehem á aðfangadag. Var helst að heyra að þeir hefðu betur heima setið en láta bjóða sér þessi ósköp, enda fjallaði fréttin um mannvonsku Ísraela. Hins vegar taldi fréttamaðurinn að samskipti kristinna á Gaza við múslima á svæðinu vera hin bestu. Þá sleppti Þorvaldur að fjalla um árásir á kristna menna á Gaza ströndinni sem eru undir "vernd" Hamas, en hafa aldrei fengist upplýstar.

Fréttin flýgurEn nú er sá tími árs sem Mið-Austurlönd eru flestum hugleikin vegna þeirra atburða sem átti sér stað fyrir rúmum tvö þúsund árum og hefði því verið viðeigandi að fréttamaðurinn hefði tekið saman stöðu ólíkra trúarhópa sem eiga rætur á þessu heimssvæði í stað þess að rægja Ísrael. Má í því sambandi nefna þrjú helstu trúarbrögð sem upprunnin eru á þessum slóðum og sem öll koma við sögu í helgimyndum af fæðingu Jesúbarnsins. Kristni, sem er táknuð með barninu og foreldrum þess, gyðingdóm sem er táknaður með fjárhirðunum og Zoroastrianisma sem er þar táknaður með Vitringunum þremur. Öll þessi trúarbrögð og afleiður þeirra eiga undir högg á sækja í Mið Austurlöndum nú um stundir. Sameiginlegt þeim er að vera eingyðis trúarbrögð þjóðflokka sem byggðu þetta svæði löngu áður en íslamstrú kom til sögunnar. Nú eru þau á góðri leið með að líða undir lok vegna ofsókna öfgafullra íslamista og ráðamanna í þessum löndum sem eru, annað hvort  of veikir til að halda aftur af ofbeldisöflunum eða hafa ekki vilja til þess.

Á dögum Saddams Hussein var talið að um 1.4 milljón kristinna manna byggju í Írak en nú er talið að u.þ.b. 2/3 þeirra hafi annað hvort verið teknir af lífi af í árásum öfgamanna eða séu flúnir. Eftir hryðjuverkaárás á kirkju í Bagdad í byrjun nóvember, þ.s. yfir 60 manns lét lífið, lýsa  margir yfir fyrirætlun um að yfirgefa landið. Í Egyptalandi hafa árásir á kirkjur og þorp kristinna manna færst í aukana, en þar búa um 8-12 milljón kristnir Koptar. Langstærsti hópur kristinna í Mið Austurlöndum. Og í Líbanon hefur kristnum fækkað úr því að vera meirihluti landsmanna í aðeins 1/3 íbúanna. Innan við 200 þúsund kristnir eru í Jórdaníu, en á Vesturbakkanum er talið að búi um 50 þúsund kristnir og 1-3000 á Gaza. Í Tyrkland sem í 900 aldir var miðja bysantískra orþódox kaþólikka eru nú aðeins um 100,000 eftir. Íran, eftir valdatöku klerkastjórnarinnar hefur hrakið kristna úr landi svo nú er talið að einungis 300.000 kristnir menn séu þar eftir. Flestir flýja til fjarlægari landa en um 60 þúsund kristinna Írana hafa leitað hælis í Sýrlandi þar sem þeim er meinað að stunda vinnu sér til framdráttar. Flóttamanna aðstoð er lítil sem engin og því er betl og vændi hlutskipti margra þeirra.

Allir vita hvernig ástatt er í Persaflóaríkjunum og Sádi Arabíu þar sem kristnir verða að iðka sína trú á laun og engar kirkjur eru þar leyfðar. Ástandið er engu betra í löndum Norður Afríku þar sem hreinsanir hafa átt sér stað. En það eru ekki bara kristnir sem hafa orðið fyrir ofsóknum í þessum löndum. Gyðingar notuðu margir tækifærið til að flytja frá þessum löndum er Ísraelríki var stofnað. En margir, allt að 850,000 voru hraktir frá eigum sínum í þessum löndum fyrir um 60 árum án þess að Þorvaldur Friðriksson og félagar hans á RÚV sjái ástæðu til að minnast þess. Sama má segja um zoroastana, sem rekja uppruna trúarbragða sinna til Íran aftur um u.þ.b. 4000 ár, þeim fer ört fækkandi enda vart vært í landinu. Bahaiar eru fjölmennastir þeirra sem ekki aðhyllast íslam í Íran en samanlagt er talið að óíslamskir trúarhópar í Íran séu innan við 2% af 71 milljóna manna þjóð. Aðrir staðbundnari trúarhópar s.s. Yezidar og Mandear eru einnig í útrýmingarhættu.

En til að þyngja róðurinn fyrir þessi óíslamísku trúarbrögð í Mið Austurlöndum hafa vinstri menn, eins og Þorvaldur Friðriksson og félagar hans á RÚV lagst á sveif með öfgaöflunum og róa öllum árum að því að sverta Ísraelsríki og alla þá sem þar búa. Hvað á að taka við þegar Ísraelsríki hefur verið útrýmt segja þeir ekkert um? Gyðingar hafa í aldanna rás verið ofsóttir í Evrópu og áróðurinn nú er þess eðlis að varla er þeim ætlað að finna sér hæli þar. Hugleysingjar, sem þessir attaníossar öfgasamtaka íslam eru, treysta sér ekki til að taka skrefið alla leið eins og Hamas og segja bara hreint út: drepum þá, hrekjum þá af landinu út í hafið, útrýmum þeim. Fyrst þarf að undirbúa jarðveginn. Það er því haldið áfram að ala á hatri í garð Ísraelsku þjóðarinnar þar til aðstæður eru "réttar". Og fórnarlömb þessarar herferðar eru líka hinir hverfandi kristnu í þessum löndum. Þeir hafa verið afskrifaðir af trúleysingjum Vesturlanda sem minnast þeirra ekki einu sinni á sjálfan fæðingardag frelsarans. Frelsari hvað? gætu þeir verið að segja.

Stóra spurningin er þó, hvað gera þeir þegar Ísrael hefur verið útrýmt og öfgalýðurinn flæðir yfir hina "frjálslyndu" þjóðir Vesturlanda eins og hann hefur áður gert tilraun til?

Er dhimmitude þá svarið?

 

Að hluta byggt á grein sem birtist á netvef NRO á Þorláksmessu: http://www.nationalreview.com/articles/255824/christmas-middle-east-nina-shea

Mynd1: www.townhall.com

Mynd2: www.dailytelegraph.co.uk

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband