3.11.2010 | 23:44
Lítill heimur
Við höfum tilhneigingu til að álíta að nafla alheimsins sé að finna á Íslandi. Aðrir halda því fram að hann sé í Brussel en enn sem komið er verða flestir að beygja sig undir þá staðreynd að augu heimsins falla á Bandaríkin þegar þungavigtin þar hristir sig.
En svo undarlega vildi til á Íslandi og í BNA að í dag spegluðust atburðir sem einn væri. Æðsta vald þessara tveggja landa baðst griða af andstæðingum sínum. Fyrir Barack Obama var þetta nýlunda, því allt frá því að hann tilkynnti pólitískum andstæðingum sínum í upphafi forsetatíðar sinnar "I won" hefur hann ekki virt skoðanir þeirra viðlits. Í dag lýsti hann því yfir að nú þyrftu allir að vinna saman að þjóðarhag. Hver kannast ekki við þennan "þjóðarhag" sem sífellt dúkkar upp þegar Jóhanna Sigurðardóttir stendur ráðþrota andspænis viðfangsefnum sínum. Og samkvæmt hefð ákallaði hún því stjórnarandstöðuna í dag til að sýna ábyrgð og vinna með stjórninni að koma fjárlagafrumvarpi á koppinn. En stjórnarandstaðan hefur fengið nóg af að kasta björgunarhringjum í steindautt lík sem kallar sig ríkisstjórn, en er bara samsafn sérhagsmunaseggja sem sjá ekki út úr eigin nafla.
Það var virkilega tímabært fyrir Bjarna Benediktsson að neita að taka þátt í málamiðlunum með eigin tillögur, þegar ekkert annað en stimpils stjórnarandsöðunnar, á vonlausar tillögur ríkisstjórnarinnar, er krafist. Jóhanna á ekkert inni hjá stjórnarandstöðunni. Engu að síður getur steingeldur hugarheimur hennar ekki náð utan um skilaboðin sem hún fékk í dag. Hún grípur til hótana eins og alltaf þegar hún fær ekki það sem hún vill. Og hverju hótar hún? Hún hótar að ríkisstjórnin leggi þá bara sitt eigið fjárlagafrumvarp fram. Hvað annað. Er þetta ekki meirihlutastjórn?
Þessum brandara getur stjórnarandstaðan hlegið að allar götur til kosninga.
Jóhanna, Steingrímur og öll hin vanhæfa ríkisstjórn eru steindauð. Það á aðeins eftir að skrifa undir dánarvottorðið. Það verður hins vegar erfiðara fyrir Obama að þrauka næstu tvö árin. Markmiðum hans var slátrað í kosningunum í gær. En Obama verður nú að eyða allri sinni orku í að dansa við þing sem ekki hefur enn gleymt orðum hans "I won". Hann er því strax farinn að spinna vörn sína gegn atlögu republikana gegn heilbrigðislöggjöfinn sem hann þvingaði í gegn án nokkurs samráðs við stjórnarandstöðuna, gegn umhverfislöggjöfinni sem fór í gegn með sömu aðferðum og gegn löggjöf um fjármálastarfsemi sem var beinlínis troðið ofan í kok á andstæðingnum.
Með því að leggja alla áhersluna á efnahagsástandið sem aðal ástæðu kosningaósigursins getur hann látið George Bush (og þá repúblikana) taka hluta byrðarinnar.
En það breytir ekki þeirri staðreynd að gæluverkefnin sem hann hefur þröngvað upp á þjóðina hafa þrefaldað fjárlagahallann sem Bush skildi eftir og á eftir sökkva þessu mikla veldi ef ekki er tekið í taumana.
Það er einmitt það sem kjósendur í BNA nýttu sinn lýðræðislega rétt til að koma á framfæri í kosningunum í gær.
Mynd1: www.dreamstime.com
Mynd2: www.townhall.com
Viðbót dagsins 8. nóvember
Hver stjórnmálamaður á sinn fjandmann. Verða það gleðióp Ingibjargar Sólrúnar sem hljóma hæst þegar stjórn Jóhönnu hrökklast frá? Hver veit?
Mynd: www.townhall.com
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Takk fyrir Ragnhildur
Það er tvennt sem ég óttast:
1) að líkið sé svo gegneitrað að jarðarförin geti ekki farið fram vegna mengunaráhættu (umhverfisáhætta og að jarðarförin verði fyrirfram bremsuð í bremsuráðuneytinu)
2) að raflækningar verði hafnar á líkinu og við fáum Frankensteina.
Já! Við þurfum kosningar!
Gunnar Rögnvaldsson, 4.11.2010 kl. 12:12
Þakka þér innlitið, Gunnar. Ég tek undir með þér varðandi bremsuráðuneytið, það sefur aldrei og óneitanlega er mengunin yfirgengileg. En þú ert full hógvær varðandi raflækningarnar, þær eru nú þegar komnar vel á veg. Ekkert annað en reglubundið háspennurafstuð útskýrir botnlaust rugl þessarar ríkisstjórnar.
I dag reyndi Jóhanna að slá ryki í augu almennings með því að skora á stjórnarandstöðuna að leggja fram vantraust. Enn eitt krampakastið hjá Jóhönnu til að kaupa sér tíma. Völd eru það eina sem stjórnarliðar geta greitt samhljóða atkvæði um og það veit stjórnarandstaðan alveg eins vel og Jóhanna.
Stjórnarandstaðan þar aðeins að láta þessa vitleysinga standa á eigin fótum í fjárlagagerðinni og þá er stjórnin sprungin.
Hvort þeir hafa taugar í það er svo annað mál.
Ragnhildur Kolka, 4.11.2010 kl. 20:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.