2.8.2010 | 12:16
Er ritstjórn DV ekki að verða búin að þurrausa brunninn?
Hirð Runólfs
DV er "óborganlegur" bleðill í öllum merkingum þess orðs. Á ritsjóninni ægir öllu saman og komist nafn, Davíðs Oddssonar, Bjarna Benediktssonar eða Björgólfs feðga ekki fyrir í frétt þá er þeim bara skapað pláss. Í hugum flestra er þetta kallað áráttuhegðun eða að hafa eitthvað á heilanum og er talið sjúklegt ástand þegar það er farið að hafa truflandi áhrif á hugsun og hegðun manna.
Dæmi um þetta er að í dag flytur DV stutta frétt um vinasambönd Rúnólfs Umba-Skuldara. Rætt er um einhvern Steinberg Finnbogason sem situr í "hirð Runólfs" og tekur að sér umsjón með kúluláni Umbans. Á óútskírðan hátt slæðist nafn Björgólfs (senior eða junior) inn í fréttina í stað nafns Runólfs og situr þar óáreitt. Er Björgólfur þar sagður afneita kunningsskap við Steinberg með öllu. Ekki þarf nokkurn að undra þótt Björgólfur afneiti félögum Runólfs, enda ferðast þeir ekki á sama klassa og engar upplýsingar fylgdu fréttinni sem styðja þau tengsl. Fréttin opinberar einfaldlega ámátlega hugmyndafátækt ritstjórnar DV.
Ritstjórn DV er fyrir löngu búinn að þurrka þennan brunn sem hún hefur nú verið að ausa í allmörg ár? Sukkið í kringum Samfylkinguna er hinsvegar rétt núna fyrst að verða öllum ljóst og væri meiri bragur að ritstjórn, sem vill standa undir nafni, að takast á við fréttir dagsins en halda áfram að grafa sig niður í holu sem nú þegar er orðin þeim alltof djúp.
"Nú þremur tímum síðar er fréttin, sem var fyrsta frétt miðilsins í morgun, með öllu horfin. Skyldi ritstjórn hafa horfst í augu við eigin vanda"?
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
DV hefur tekið að sér hlutverk fyrstu fiðlu í einelti á Bjarna Ben. Sjálfsagt má gagnrýna Bjarna fyrir ýmislegt, en þessi helreið á nafni hans og reyndar hreinar lygar um föður hans (sagður vera frímúrari...til að búa til samsærislykt) er komin langt út fyrir fréttamennsku og er engum fjölmiðli til sóma.
Ég hvet DV til að taka aðeins til hjá sér, gagnrýna menn fyrir stefnur og skoðanir, benda á raunverulega glæpi, eða siðleysi, láta af beinum lygum, en láta af persónuníði....
Vilji DV menn halda áfram á sömu leið finnst mér þeir ættu að bæta við sögum af geimverum, Elvis Presley fréttum (því hann hlýtur að vera lifandi) og Jesú-myndum í ristabrauði.....fara sem sagt alla leið í þá áttina að verða National Enquirer
Haraldur Baldursson, 3.8.2010 kl. 09:52
Góð hugmynd Haraldur. Það þyrfti að benda þeim á DV á þessa leið til frægðar. Reyndar hefur mér stundum fundist Pressan hafa valið sér þessa furðufréttaleið. En það er tími til kominn að menn rísi upp úr þessu persónuníðsfari og stundi fréttamennsku sem stendur undir nafni.
Á meðan ekkert breytist á ritstjórn DV er blaðið og verður óhróðursbleðill. Það skiptir ekki máli hver er skráður eigandi, blaðið situr fast í forinni. Því kemst maður ekki hjá því að álíta að eigendaskrá sé í raun bara hringekja í þjónustu eins og sama aðila.
Komst ekki í samband við tengilinn þinn, en held ég viti hvað þar er að finna.
Takk fyrir innlitið.
Ragnhildur Kolka, 3.8.2010 kl. 20:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.