Færsluflokkur: Bloggar
11.2.2008 | 21:05
Carla kætir
The Botty that drove Mick (Jagger) potty. Og nú liggur Sarkozy kylliflatur fyrir henni. Áhrifamáttur kvenna birtist í ýmsum myndum..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2008 | 22:41
Minntist einhver á opinn tékka?
Þeir eru skemmtilega ruglaðir þessir Samfylkingarmenn. Dögum saman höfum við mátt hlusta á sönginn um opnu tékkana sem nýr borgarstjórnarmeirihluti gaf út með kaupunum á Laugavegskofunum. Og hvað gerist svo?
Viðskiptaráðherra lýsiti því yfir í kvöld að "ekki komi til greina að missa viðskiptabankana úr landi". Ef fúahjallarnir á Laugaveginum eru tilefni fyrir Samfylkinguna að leggjast í látlaus krampaflog, hvað segja þeir þá um ætlun Björgvins G. að þvinga bankana til að starfa á Íslandi? Borgin greiddi hátt í 600 milljónir fyri kofaræksnin. Uppgjör bankanna eru að birtast þessa dagana og þar er hagnaðurinn að skríða upp tugi milljarða. Hvað ætlar Björgvin að reiða fram til að halda bönkunum í landinu?
Fólk sem trúir því að skuldin hverfi við það að ríkið taki hana á sig kippir sér líklega ekki upp við yfirlýsingar viðskiptaráðherrans. Mér rennur kalt vatn milli skinns og hörunds.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.10.2007 | 14:12
Sálir til sölu
Þegar maður hlustar á umræðuna mætti ætla að skúrkarnir í stjórnmálum séu allir hægra megin, en dýrðlingarnir til vinstri. Heiðvirðar sálir með hugsjón flykki sér í vinstri flokkana, á meðan sjálfstæðismenn selji sál sína Mammoni. Þetta er tónninn sem löngum hefur verið gefinn. Svolítið fyndið, því engir tala meira um peninga, né hafa meiri áhuga á þeim, en svokallaðir félagshyggjumenn. Svo kemur upp mál eins og OR og hvað gerist? Sjálfstæðismenn láta steyta á málefninu á meðan "dýrlingarnir" selja hugsjónina. Félagshyggjan fór fyrir lítið þegar ákveðið var að kaupa valdastólana með almannafé. En það er einmitt boðskapur félagshyggjunnar "að eyða fjármunum annarra.
Það eykur ekki á trúverðugleikann að flytja viðmiðið til eftir hentugleikum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2007 | 09:37
Á kotbúskapur við Ólaf
![]() |
Tæplega 65% vilja Ólaf Ragnar áfram sem forseta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2007 | 23:05
Af framboðsmálum
Það verður augljósara með hverjum degi sem líður hvers vegna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir leggur í hverja heimsreisuna á fætur annarri til að reyna að afla framboði Íslands til öryggisráðs SÞ stuðnings. Hún hlýtur að finna samhljóminn. Hvergi annars staðar, nema hugsanlega á samkundum Samfylkingarinnar, er eins mikið talað og eins lítinn árangur að finna. Orð eru ekki dýr á þeim bæ.
Og nú tala ég þvert um betri vitund. ISG stráir gjöfum til allra átta á þessum ferðum sínum. Gjöfum sem við, af rausnarskap, fáum að borga. Gjafirnar fær hún svo margfalt endurgoldnar komist Ísland í öryggisráðið, því þar eru smáaurarnir ekki taldir þegar að atkvæðagreiðslunum kemur. En kannski má maður bara þakka fyrir að ISG situr í stólnum núna, því með Valgerði þar, hefðum við eflaust orðið að hola SÞ niður á Bakka. Ekki hugnast mér það.
Svo er það spurningin: Hvernig ætlar hún að launa Ólafi Ragnari fyrir allt snattið?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2007 | 20:21
Einfaldleikinn uppmálaður

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2007 | 18:12
Lýgin sem lifði í sjö ár
Hver man ekki eftir þessari mynd. Árið 2000 vakti hún hrylling og hatur á gyðingum og öllu því sem Ísraelsríki stóð fyrir í hugum múslima um gjörvalla heimsbyggðina og hleypti af stað öldu blóðsúthelling. Þessi mynd olli einnig straumhvörfum í afstöðu fjölmargra Vesturlandabúa til gyðinga.
Undanfarið hafa staðið yfir réttarhöld í Frakklandi vegna þeirrar videomyndar sem þessi mynd er hluti af. Sjónvarpsstöðin France 2 hefur verið þar í varnarstöðu, en umrædd videomynd var tekin af kvikmyndatökumanni þeirra 30. septmber 2000. Síðan þá hefur leikið grunur á að myndskeiðið hafi verið sviðsett. Fjölmiðlavakt í Frakklandi setti fram kæru á hendur sjónvarpsstöðinni en tapaði málinu. Fyrir áfrýjunarrétti komst dómari að þeirri niðurstöðu að taka bæri myndina til skoðunar fyrir dómnum og hafði France 2 frest til 27. september að leggja spóluna fram. Allar 27 mínúturnar.
Forsætisráðuneyti Ísraels sendi frá sér yfirlýsingu í dag um að myndskeiðið hafi verið sviðsett. Myndbandið sem sent hafi verið til sjónvarpsstöðva hafi verið stórgallað og útilokað hafi verið að kúlur ísraelsku hermannanna hafi getað grandað drengnum. Líkur eru á að þeir hafi niðurstöðu dómsins til að byggja á. Kannski trúa vestrænir fjölmiðlar þeim ekki, en þeir ættu þá að hinkra þar til dómurinn í Frakklandi sendir frá sér yfirlýsingu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2007 | 21:25
Hafa vinsældamælingar áhrif á hugsjónamenn
Þetta eru ekki fréttir fréttamiðlanna. "Ekki fréttir" eru hins vegar sífellt stagl fréttamiðla um óvinsældir Bush Bandaríkjaforseta. Á þeirri tuggu má staglast endalaust. Og ef það skyldi nú vera farið að hljóma hálf þreytulega, þá skal því samt haldið áfram ef vera kynni að enn sé einhver þarna úti sem ekki hefur verið með viðtökutækið rétt stillt.
En kannast einhver við að umræðan snúist um óvinsældir Bandaríkjaþings undir stjórn demókrata. Nei, getur það verið. Voru ekki svo miklar vonir bundnar við fyrsta kvenforseta þingsins. þessa þarna sem mætti með öll barnabörnin við setningu þingsins svo ekki færi framhjá neinum að hún væri KONA. Það tók þessa nýju þingmenn átta mánuði að fatta að meirihluti þeirra dugði ekki til annars en að fá samþykkt frumvörp sem voru andvana fædd. Ef þau strönduðu ekki í öldungadeildinni þá beitti forsetinn einfaldlega neitunarvaldi sínu á þau.
Stóru loforðin um að nú skyldi herinn kvaddur heim frá Írak hafa smásaman gufað upp. Forsetaframbjóðendur demókrataflokksins fara nú í kringum allar spurningar um heimkvaðningu hersins, eins og kettir í kringum heitan graut. Jafnvel spurningin um hvort þeir muni kalla herinn heim fyrir 2013, já-segi og skrifa 2013, kallar ekki á önnur viðbrögð en klór í hnakka eða ypptar axlir "ómögulegt að sjá framtíðina fyrir sér" segir Hillary Clinton og er opinskáust þeirra allra í svari sínu.
Og nú, níu mánuðum eftir sigurmarseringuna inn á þingið hefur hinn gallharði friðarkjarni þingheims samþykkt frumvarp sem kallar á harðar refsiaðgerðir gegn Íran (bíddu, voru það ekki góðu gæjarnir) og hvetja nú stjórnina til að lýsa Byltingarvarðlið Íraks sem hryðjuverkasamtök. Þó fyrr hefði verið Guðmundur minn. Öldungadeildin tekur undir þessi orð og hefur nú uppgötvað hættuna sem Íraksstjórn stafar af stuðningi þessa "friðarríkis". Og allt þetta gerist á meðan friðardúfan sjálf, Ahmadinejad lék á alls oddi og sýndi sínar bestu hliðar í sölum Þameinuðu þjóðanna.
Ætli vinsældamælingarnar hafi verið farnar að kveikja á einhverjum perum?
Hverju getur maður átt von á næst?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2007 | 23:14
Úreltur hugsunarháttur, hvað?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2007 | 14:29
Þá setur maður NYT aftur á Uppáhald
Það var dálítill miskilningur að loka á þessar sérstöku greinar, því allt annað efni blaðsins gat maður séð á öðrum miðlum.
![]() |
New York Times opnar fréttavef sinn að nýju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
-
baldher
-
gattin
-
tilveran-i-esb
-
gun
-
gustaf
-
haddi9001
-
heimssyn
-
aglow
-
jonvalurjensson
-
ksh
-
altice
-
skrafarinn
-
sigurgeirorri
-
blauturdropi
-
postdoc
-
olijoe
-
hugsun
-
iceberg
-
annabjorghjartardottir
-
borgfirska-birnan
-
eeelle
-
gessi
-
elnino
-
muggi69
-
gustafskulason
-
bassinn
-
krist
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
valdimarjohannesson
-
thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.