Bloggfærslur mánaðarins, október 2020
17.10.2020 | 17:59
Kollhnís WHO og sjálfstæði veirunnar
Hans heilagleiki dr.Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirstrumpur og útsendari Kínastjórnar.
Loksins að Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) átti sig á hvað er í gangi, þótt langt sé í land að hún viðurkenni að eiga hlut að því hvernig komið er fyrir heimsmálum. Haft er eftir háttsettum manni innan stofnunarinnar,Dr. David Nabarro, að ekki sé ráðlegt að loka á eðlilegt líf fólks vegna faraldursins. Slíkt skuli aðeins gera á meðan menn átta sig á hvað er á seiði og hvernig skuli bregðast við enda séu afleiðingar af lokun daglegs lífs aðeins "að gera fátækt fólk fátækara." WHO er að sjá merki þessa í þróunarlöndum. Og nú kemur Evrópusjéff WHO, Hans Kluge fram og tekur í sama streng - rétt þegar búið var að sannfæra alla þjóðhöfðingja Evrópu um að eina ráðið gegn veirunni væri að loka á öll samskipti borgaranna. Þessi viska WHO kemur nú fram eftir að vísindamenn, læknar og reyndar öll vinstri hjörðin hefur miskunnarlaust beitt lokunum á allt mannlíf og þá ekki hvað síst í hinum "upplýsta" vestræna heimi.
En bíðum nú við. Var einhver að segja að WHO hefði tekið kollhnís? Ekki hafði Nabarro fyrr lokið máli sínu en Ghebreyesus tekur vonina til baka. Nú segir hann að hugmyndin um hjarðónæmi sé siðlaus - aldrei hafi neinn reynt að koma böndum á veirufaraldur með skipulegum aðferðum til að mynda hjarðónæmi. Gefur hann þá lítið fyrir mislinga, rauðuhunda og hlaupabólu party síðustu aldar, þar sem mæður komu saman með börn sín til að tryggja þeim bætta heilsu síðar meir á ævinni. Athugasemd Ghebreyesus er hlægileg. Vilji menn ræða efasemdir um hjarðónæmi og hvort ónæmi sé mögulegt gegn veiru sem, eins og aðrar coronaveirur, á það til að stökkbreytast þurfa þeir að ræða það á grunni þeirrar þekkingar sem er til staðar ekki á nótum siðferðis.
Hér á landi hefur stefnan frá upphafi verið að loka á pestina. Fyrst hét það að lækka kúrfuna en smám saman hefur þessi ásetningur vikið fyrir verkefninu að halda landinu "veirufríu". Allir sótraftar dregnir á flot til að verja afstöðu 3ja manna nefndar sem engin hefur kosið. Sagt er að við séum nú í 3ju bylgju, en eins og yfirvaldið lætur erum við alltaf í nýrri bylgju í hvert sinn sem smitaður einstaklingur kemur inn í landið. Og nóg er af smituðum á landamærum. Íslendingar búsettir eða í námi hafa snúið heim með sín smit, erlendir starfsmenn og svo náttúrlega "hælisleitendur" sem alltaf er tekið opnum örmum sama hvaða smit þeir bera með sér.
Í Bandaríkjunum þar sem pólitísk hystería ræður för hefur lokunum verið beitt af mikilli hörku. Sérstaklega í ríkjum sem demókratar ráða yfir og í þeim auðvirðilega tilgangi að hefta endurreisn efnahagslífsins. Þetta eru pólitískar aðgerðir magnaðar upp af spennunni sem fylgir forsetakosningunum. Ódýr lyf, eins og hydtoxychloroquine, sem almenningur getur keypt "yfir borðið" eru sögð banvæn af því sitjandi forseti taldi þau til bóta og heilbrigðis yfirvöldum tóks, af einstakri snilld, að klúðra rannsóknunum á því. HCQ veitir zinki aðgang inn í frumurnar þar sem það hindrar fjölföldun veirunnar. Hér heima eru menn ekkert betri. Leyndarhjúpur hvílir yfir meðhöndlun þeirra sem sýkjast sem og þeirra sem eru í áhættuhópi. Engar almennar upplýsingar um hvernig fólk geti búið í hagin fyrir sig umfram upplýsingar um handþvott og grímur; hvaða meðferð fólki stendur til boða þegar það greinist eða hvort fólk verði bara að bíða eftir að veiran sé tilbúin að leggja það að velli. Leynifélag læknavísindanna stendur vörð um sitt. Við erum ekki komin lengra þrátt fyrir 10 ára skólaskyldu, gagnslaus stúdentspróf og 7 háskóla.
En stíflan er að bresta. Sem betur fer er rödd skynseminnar loksins farin að heyrast. Að utan auðvitað, því hér hefur hún verið kæfð með upphrópunum um fjöldamorðingja sem flýta vilja fyrir dauða ömmu og afa. Víða í Evrópu mótmælir fólk kröftuglega eins og viðbrögð Dr.Nabarro og Kluge bera með sér. En það má líka spyrja sig hvort yfirlýsingar tvímenninganna eigi sér kannski rætur í átökum innan stofnunarinnar um pólitískan tilgang þess að leggja hagkerfi heimsins í rúst.
Á þeim 10 mánuðum sem veiran hefur leikið lausum hala í heiminum hefur ýmislegt fróðlegt komið í ljós. Hún drepur helst þá sem eldri eru og þá sem veikir eru fyrir. Hún lætur ungviðið að mestu í friði og er að því leyti darwinsk í eðli (sic) sínu. Vel þekktar náttúrulegar varnir eins og vítamín og steinefni bjóða henni birginn en sjálf hlær hún að tilraunum manna um gerð veirudrepandi lyfja. Það mátti sjá strax á vormánuðum að hún hélt sínu striki hver sem viðbrögð sóttvarnayfirvalda voru. Hratt ris í upphafi og langur hali eftirhreytutilfella með tilsvarandi hárri dánartíðni. Hún fór í sumarfrí í Evrópu en herjaði því harðar á suðurhveli jarðar á meðan. Í Bandaríkjunum tók hún sér ekkert frí því landið er viðfemt og býr við fjölbreytilegar aðstæður; landfræðilega og pólitískt. Þá töldu menn réttilega að hafa mætti hemil á henni ef þeir bara hleyptu henni ekki að vitum sér. Stjórnvöld víða um heim settu á grímuskyldu en gleymdu því að fólk sem ekki er vant að bera grímur hefur allan gang á því hvernig það umgengst þær. Grímunotkun hefur því ekki borið tilætlaðan árangur. Kannski engan árangur eins og sést á þessu línuriti frá nokkrum mannmörgum hreppum í Kaliforníu, sem sýnir gang veirusýkinga og grímuskyldu. Sama mynstur má einnig sjá um alla Evrópu. Eftir sem áður snúast varnir um handþvott og káf í andliti. Aðeins í margmenni geta grímur hugsanlega minnkað eitthvað veirumagnið sem berst í fólk og það þá aðeins ef fólk fer rétt með þær.
Síðan í sumar hefur staðan breyst nokkuð. Veiran veður yfir á ógnarhraða samkvæmt PCR mælingum. Kannski á full miklum hraða því hún má varla vera að því að sýkja fólk almennilega hvað þá að drepa. Kúrfan fyrir þá sem jákvæðir eru er nú margföld á við það sem var í vor en fyrir þá sem látast hreyfist hún varla. Í Bandaríkjunum, sem eru nokkurs konar rannsóknastofa allra hliða mannlífs, þar hefur hvert ríki haft sinn háttin á hvernig brugðist er við veirunni. Sum ríki hafa haft strangar lokunarreglur, önnur brugðist seint eða sértækt við og enn önnur ekkert gert í málinu. En þegar upp er staðið og menn skoða gröf yfir gang farsóttarinnar í hverju ríki fyrir sig gæti enginn sagt fyrir um hvar eða hvenær fyrirskipun um lokun var tekin. Veiran virðist bara ná ákveðinni þéttni í samfélaginu og malla þar í rólegheitum þar til hún er tilbúin að hefja nýja árás eða ljúka sér af.
Þetta graf sýnir gang faraldursins í Bretlandi; upphaf sýkingar auk seinni bylgju ásamt dánarhlutfalli í hvorri bylgju fyrir sig.
En lífið hefur fleiri hliðar en bara að forðast eina pest. Við þurfum að framleiða til að lifa, borða, eiga samskipti við aðra. Leita læknis vegna ýmissa annarra kvilla sem hrjá okkur, misalvarlega, suma jafnvel lífshættulega. Allt þetta kallar á að hér sé heilbrigður hagvöxtur sem stendur undir þessu sem við almennt köllum velferð. Að lifa með veirunni er ekki að breiða yfir haus og láta segja okkur hvað má og hvað ekki. Við eigum að hliðsetja veiruna og takast svo á við lífið af ábyrgð.
p.s. Nú er búið að sýna fram á að "töfralyfið" Remdesivir er ekkert að standa undir öllu hæpinu. Sú uppgötvun kemur þó ekki fyrr en framleiðandinn Gilead, ábyrgðamennirnir Fauci og Gates hafa margfaldað milljónirnar sína exponential.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.