Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011
26.11.2011 | 00:42
Karpað um Kolvetnisgjald
er fyrirsögn fréttar í Morgunblaðinu og er þá átt við hugmynd skattmanns að "breikka skattstofninn" m.þ.a. leggja á sérstakan kolefnisskatt. Fyrirtækin greiða nú þegar drjúgan skilding í kolefnisgjald eða sem svara 75% af gjaldi losunarheimilda á markaði í Evrópu, en nú skal gjaldið hækkað og að auki á það nú að ná til jarðefna í föstu formi. Verði af þessum áformum eru líkur á að einhver þeirra fyrirtækja, sem nú þegar starfa hér undir þessu ákvæði, pakki saman og yfirgefi landið. Önnur sem áformað höfðu að setja hér upp starfsemi munu öll taka til fótanna og forða sér hið fyrsta. Enda vandséð að sá sé ekki tilgangurinn með uppátækinu.
En hvað er þá að gerast á hinum alþjóðlega kolefnis vettvangi? Ríkir þar friður? Nei, svo sannarlega ekki. Á mánudaginn á að hefjast enn ein loftslagsráðstefnan í Durban. Líklega sú þriðja. Og nú eru menn ekki einu sinni að reikna með að árangur náist. Jafnvel talið líklegt að Kyoto samkomulagið renni sitt skeið í árslok 2012 "never to be heard of again". Klúðrið í Kaupmannahöfn hefur ekki aukið líkurnar á að betur fari í þetta sinn.
Og Græni Loftslags sjóðurinn sem átti að gefa Kaupmannahafnar ráðstefnunni eilíft líf er að öllum líkindum andvana fæddur. Peningalöndin Bandaríkin og Sádi Arabía eru ekki tilbúin að gefa samþykki sitt fyrir stofnun sjóðsins sem átti að fleyta auðæfum Vestrænna ríkja til loftslags verkefna í þróunarlöndunum. Ef BNA og SA eru ekki með eru líkurnar hverfandi að af stofnun sjóðsin geti orðið, jafnvel þótt Brazilía, Kína og Indland berji í borðið og heimti sitt og engar refjar.
ESB sem harðast hefur gengið eftir stofnun sjóðsins er líka farin að draga nokkuð úr kröfunni. Verðfall á losunarheimildunum af völdum evru-kreppunnar er byrjað að segja til sín, sem aftur getur haft neikvæð áhrif á samkomulagið. Ef enginn árangur næst í Durban er líklegt að Kyoto samkomulagið renni sitt skeið í lok næsta árs.
En Steingrímur kærir sig kollóttann um það því alltaf má finna upp nýja skatta ef vilji er fyrir hendi. Og Steingrím skortir ekki viljann.
Viðbót 28. nóvember:
Nú nokkrum klukkustundum áður en Durban ráðstefna Sameinuðu þjóðanna á að hefjast er hvergi minnst á hana í blöðum eða fréttatímum. Hvorki hér né erlendis. segir það ekki eitthvað um hvers menn vænta eða vænta ekki af þessari ráðstefnu.
Kannski ef ráðstefnan kemur sér saman um að fordæma Ísrael er von til að RÚV, í það minnsta, segi frá henni.
mynd1: www.cenvironment.blogspot.com
Bloggar | Breytt 27.11.2011 kl. 17:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2011 | 23:09
Ekta ítalskt
Lífið í ESB verður einfaldara með hverjum degi.
Nú þurfa Grikkir og Ítalir ekki lengur að eyða tíma sínum í vangaveltur um hvað þeir vilja, hvert þeir fara eða með hverjum þeir telja sig eiga samleið með. Persónubundið val hefur verið tekið frá þeim og nú fara þeir bara eftir prógrammi dagsins. ESB ákveður hvaða tannkrem þeim er óhætt að kaupa, hversu bognir bananarnir, sem þeir borða mega vera og eins og Matti lýsir svo snilldar vel, réttur dagsins er ákveðinn í Brussel. Teknókratarnir hafa tekið við völdum.
Engin lýðræðislega kosinn þingmaður situr nú í ríkisstjórn Ítalíu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2011 | 23:33
Vinarþel eða hnífasett í bakið'
Vinur er sá sem til vamms segir, eða hvað?
Það er mikið af kossum og klappi á bakið innan EU-klúbbsins. Allir brosandi á glansmyndunum eins og kærleikurinn einn ráði þar ríkjum. Klappkórinn gefur í það minnsta ekki annað í skyn. Honum er líka eins gott að vera ekki að ybba gogg, því eigendur klúbbsins eru óragir við að senda þá á höggstokkinn ef skortur er á tilhlýðilegum samstarfsvilja. Kórinn veit nú orðið hvað honum er fyrir bestu. Þarf ekki lengur að hafa um það orð eins og Papandreou og Berlusconi fengu að kynnast þegar þeir leyðu sér að senda Brussunum langt nef. En þeir eru ekki þeir einu sem hafa fengið að fjúka. Hver ríkisstjórnin innan ESB á fætur annarri hefur fallið fyrir tilstilli Brusselklíkunnar þótt hér heima mætti ætla af fréttaflutningnum að alger hamingja ríki þarna milli vina. Aftökurnar eiga sér stað í hvert sinn sem aðildarríki ýjar að því að leyfa kjósendum að ákveða örlög sín sjálfir. Það er því ekki skrítið að farið sé að þynnast stoffið i þessum sjúklega blekkingarleik ESB-aðildarsinna sem rekinn er ofan í landsmenn af fréttastofunum.
Það var því óneytanlega tilbreyting að lesa grein eftir sagnfræðinginn, Niall Ferguson í WSJ "2021: Nýja Evrópa". Þar horfir hann um öxl úr framtíðinni eins og hann les hana af þeim atburðum sem eru nú að gerast í Evrópu og hafa verið að gerast þar. Á listanum yfir lönd þar sem ríkisstjórnir hafa fallið síðan vandræði evrunnar byrjuðu á síðasta ári eru auk Grikklands og Ítalíu, Holland, Slóvakía, Belgía, Írland, Finnland, Portugal og Slóvenía. Á morgun fellur ríkisstjórn Spánar og næsta vor Frakklands. Allt vegna skitinnar myntar sem smyglað var inná á þessar þjóðir með gylliboðum um eilífa sælu og gósentíð.
En á meðan öll Suður-Evrópa er ein rjúkandi rúst sér Ferguson fyrir sér að evran lifi sem mynd þýska ríkjasambandsins eins og sést á næstu mynd.
Hér trónir Þýskaland á toppnum með Frakkland, Austurríki, Belgíu og Balkanlöndin í kviðpokanum. Tékkland og Slóvakía verða þá líka "piece of cake". Suðurkanturinn verður uppspretta vinnuafls fyrir herraríkin og sundlaugarbarmur á sumrin. Norðurlöndin draga síg út úr félagsskapnum og mynda sína eigin blokk því þeim hugnast ekki að standa undir kostnaði við Miðjarðarhafslöndin og Stóra-Bretaland verður aftur trúverðugur kostur, þegar Skotar og Írar haltra aftur heim.
Habsborgarveldið verur þá aftur orðið að veruleika, en án nokkurs slagkrafts.
Myndir: www.wsj.com
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.