23.8.2009 | 22:11
Þaggarinn mikli er þagnaður
Hún hefur verið hávær umræðan um hina óstaðfestu frétt Aftonbladsins um líffærastuld Ísraela úr látnum stríðsmönnum Palestínuaraba. Ósk um afskipti ríkisstjórnarinnar af þessum óábyrga fréttaflutningi hefur verið hafnað á grundvelli tjáningarfrelsis. Tjáningarfrelsi sem ekki þótti mikils virði fyrir nokkrum árum þegar birting margumtalaða Múhameðsteikningar var bönnuð í Svíþjóð. Þessi afstaða Svía er hluti hinnar aldagömlu andúðar Vesturlandabúa á gyðingum. Svo langt gengur að tala má um hefð. Ein kynslóð tekur við af annarri. Stundum gerist þetta án þess að viðkomandi hafi átt nokkur samskipti við gyðinga, eins og við sjáum hér á landi. En nýir tímar kalla á ný vinnubrögð og í dag er líffærastuldur hinna "blóðþyrstu" gyðinga ígildi blóðfórna til forna. Og "upplýst" fólk fellur jafn auðveldlega fyrir áróðrinum nú og það gerði á miðöldum.
En Svíar eru ekkert einir um að flytja þessa fornu mýtu áfram, öll Evrópa tekur þátt. Gyðingahatur er réttlætt með afmennskun. Með upplognum fréttum sem að endingu eru bornar til baka, samanber fjöldamorðin í Jenin sem aldrei áttu sér stað, fosfórsprengjur á Gaza sem skildu engin merki eftir sig og sviðsetta morðið á drengnum al Dura. Allt fréttir sem fengu ómælt rými í vestrænum fjölmiðlum en þegar þær voru afsannaðar birtust þær aðeins sem neðanmálsgreinar. Það eru ekki bara Svíar og Aftonbladet sem eru sek um að bera út róg, vestrænir fjölmiðlar eru svo sannarlega sekir um að brjóta grundvallar reglur í fréttaflutningi sem felast í að kanna sannleiksgildi frétta áður en þær eru bornar í neytendur.
En menn eru ekki alltaf svona reiðubúnir að verja tjáningarfrelsið. Löggjöf ýmissa Evrópulanda leyfir að tjáningarfrelsið sé afnumið þegar hentar. Bretar standa þar framarlega með löggjöf sem leyfir að hægt sé að lögsækja menn í öðrum löndum þótt þeir hafi ekkert brot framið innan lögsögu breska heimsveldisins. Þessi staðreynd varð flestum Íslendingum ljós þegar Jón Ólafsson fór með stríð á hendur Hannesi Gissurarsyni með aðstoð breskra dómstóla. Þar var Hannes dæmdur í gríðarlega fésekt fyrir ummæli sem hann var ekki einu sinni höfundur að. Á Íslandi voru viðbrögð misjöfn, en sumir létu pólitíska fordóma ráða afstöðu sinni líkt og vinstri menn í Evrópu láta gjarnan friðþægingu við ofbeldisöfl ráða afstöðu sinni til gyðinga.
Um þessa helgi var endanlega þaggað niður í einum helsta listamanni "rógslaganna" bresku. Khalid Bin Mahfouz lést úr hjartaáfalli á laugardag og er eflaust mörgum létt. Þau eru ófá málin sem hann hefur höfðað á hendur rithöfundum, rannsakendum og bókaforlögum á undanförnum árum. Má segja að þessi maður hafi búið sér bæli í breska dómskerfinu þaðan sem hann sótti alla til saka sem dirfðust að fjalla um auðæfi hans og ráku slóð þeirra til hinna ýmsu hryðjuverkahópa. Skemmst er að minnast tveggja franskra blaðamanna sem árið 2006 neyddust til að biðja þennan "rógstúrista" afsökunar á bók sem þeir rituðu um tengsl hans og fjármögnun við hryðjuverkahópa.
Bandarískur rithöfundur, Rachel Ehrenfeld fékk á sig dóm í Bretland fyrir bók sína Funding Evil og var þó bókin aldrei sett í sölu í Bretland og sannanlega aðeins 23 eintök bókarinnar sem rötuðu inn fyrir landsteina breskrar lögsögu. Til verndar borgurum fylkisins setti löggjafarþing NY fylkis snarlega lög sem vernda borga gegn þessum "rógstúrisma". Án þessarar lagasetningar hefði Rachel Ehrenfeld mátt greiða hinum ofurviðkvæma Sáda $225 þúsund fyrir að dirfast að vekja athygli á umsýslu hans. Höfundar bókarinnar Alms for Jihad fengu að kenna á viðkvæmni þegar Khalid fór í mál við útgefanda bókar þeirrar. Cambridge University Press lagðist í duftið og baðst afsökunar á tilveru sinn. Stórveldið Random House hefur hafnað útgáfu bóka sem fjalla um svipað efni og vitað er að Khalid höfðaði eða hótaði að höfða ekki færri en 36 mál svipaðrar gerðar. Það er því heimshreinsun þegar menn eins Khalid Bin Mahfouz falla loksins fyrir manninum með ljáinn.
En skömmin lifir engu að síður áfram. Skömm þeirra sem tala fjálglega um tjáningarfrelsi en láta engu að síður blekkjast af áróðri öfgamanna eins og ritstjórn Aftonbladets eða láta undan kröfum manna, eins og Khalid Bin Mahfouz, sem gera göfugan málstað að skrípaleik þar sem breska réttarkerfið er haft að leiksoppi.
Það er ekki björguleg staðan fyrir okkur Íslendinga sem nú eigum lífsafkomu okkar og komandi kynslóða undir þessu sama réttarkerfi.
Mynd: http://www.arabnews.com/2004/08/mah9.jpg
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
-
baldher
-
gattin
-
tilveran-i-esb
-
gun
-
gustaf
-
haddi9001
-
heimssyn
-
aglow
-
jonvalurjensson
-
ksh
-
altice
-
skrafarinn
-
sigurgeirorri
-
blauturdropi
-
postdoc
-
olijoe
-
hugsun
-
iceberg
-
annabjorghjartardottir
-
borgfirska-birnan
-
eeelle
-
gessi
-
elnino
-
muggi69
-
gustafskulason
-
bassinn
-
krist
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
valdimarjohannesson
-
thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Þakka þér kærlega fyrir góðan pistil Ragnhildur.
Málið fer að vandast fyrir okkur. Þegar Múhameðsteikningastyrjöldin geisaði þá sögðust Danir oft vera Íslendingar eða Finnar þegar þeir voru staddir erlendis. En nú er náttúrlega ekki hægt að nota "Íslendinginn" lengur því hann er orðinn að Gyðingi OG hryðju-verkamanni og það að vera Dani er það sama og að vera dauður.
Svo þá eru bara Finnar og Norðmenn eftir. Að vera Svíi mun aldrei koma til greina.
Við endum sennilega öll sem blessaðir Færeyingar
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 24.8.2009 kl. 10:17
Afsakið. Færeyingar ganga heldur ekki í lengdina því þar eru það grindarhvalirnir maður. Ekki má gleyma þeim.
Gunnar Rögnvaldsson, 24.8.2009 kl. 10:18
Óþarfi að leita langt yfir skammt. Vestmannaeyjar eru hér við bæjardyrnar og þeir hafa meira að segja sína eigin þjóðhátíð.
Ragnhildur Kolka, 24.8.2009 kl. 10:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.