21.1.2009 | 00:31
Góð byrjun, Obama
Hinn nýi guð mannkynsins hefur nú tekið við keflinu. Með nýja von, nýtt upphaf; já heimurinn endurfæddist í dag, þegar Obama lét svo lítið að upplýsa heimsbyggðina um að "Vér erum tilbúinn að leiða á ný". Mannkynið allt féll á hné og grét af gleði.
Svei mér þá ef þetta byrjar bara ekki vel hjá Obama. Kolvetnisfótspor hans, fyrsta dag embættisferilsins hlýtur að ylja Dr. James Hanson, einum helsta sérfræðingi Nasa í loftlagsmálum, óþyrmilega um hjartarætur. Fyrir aðeins tveimur dögum lét Hansen þau orð falla að "Barack Obama hefur aðeins 4 ár til að bjarga heiminum" (greinilegt að Hansen veðjar ekki á að Nancy Pelosi standi við orð sín). Nú gildir að hafa hraðar hendur, því heimurinn er að sökkva.
Í dag fengum við að sjá upphafið af því ferli. Líkur eru leiddar að því að innsetningarhátíðin bæti litlum 500 milljónum punda af CO2 út í andrúmsloftið. Þá er tekið tillit til þeirra 600 einkaþotna sem kljúfa munu loftin blá til D.C. og skilja eftir >25 milljón pund af CO2. Einkabílaumferð til D.C. mun bæta andrúmsloftið um 265.483.000 pund og fjórfættir lögregluliðar munu losa um 400 pund út um afturendann. Að öllum líkindum munu um 575 milljón pund af CO2 losna í tengslum við hátíðarhöldin. Ekki lítil afköst það.
Það verður áhugavert að sjá hvernig nýi Orku og umhverfismálaráðherrann klórar sig út úr þessu dagsverki; hvort honum takist það áður en kjörtímabilið er á enda.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Mér fannst þetta flott ræða hjá stráknum. Nýtt fólk vekur nýjar vonir. Bandaríkjamenn þurfa að endurskoða afstöðu sína gagnvart umheiminum og það verður spennandi að sjá hverju hann mun áorka.
Baldur Hermannsson, 21.1.2009 kl. 10:54
Hver hefur sinn smekk. En var innihald ræðunnar virkilega stórkostlegt, Baldur? Var þetta ekki bara gamla temað ”Hope and Change” með smá skítkasti í Bush? Sagt er að Margaret Thatcher hafi svarða spurningu um hvað henni findist um Bill Clinton; að hann væri "great communicator. He just doesn´t have anything to communicate". Frú Thatcher gat sagt mikið í fáum orðum. Vonandi verða eftirmælin um Barack Obama ekki þau að hann hafi flutt flottar ræður. Allir vona að hann fylli út í fleira en ræðustólinn. En Obama er óskrifað blað. Enginn forseti Bandaríkjanna hefur verið jafn reynslulaus við embættistöku og hann. Það breytir því ekki að það sem átti sér stað í gær var sögulegur atburður í þeim skilningi að svartur maður tók í fyrsta sinn við embætti forseta Bandaríkjanna. Það útaf fyrir sig er stórkostlegt og verður fróðlegt að fylgjast með hvernig þjóðhöfðingjar hinnar "hvítu" Evrópu höndla það. En það er götustráksbragur sem fylgir þessu fágaða yfirborði, sem ég á eftir að sjá hvernig þróast áður en ég leyfi sæluvímunni að flæða yfir mig.
Ragnhildur Kolka, 21.1.2009 kl. 17:56
Sjálfsagt er að vona það besta, en hann er náttúrlega stjórnmálamaður og þeir eru afar lagnir við að klúðra málum. Ekki er von á góðu.
Annað sem vekur nokkra furðu hjá mér er að Obama er ekki svartur. Hann er blanda. Móðir hans er hvít en faðir hans svartur. Það ætti að kalla hann mixed race American frekar en African American. Það er eins og fólk einblíni bara á húðlit mannsins. Ekki er það affarasælt hvort sem það er til lasts eða lofs.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 23.1.2009 kl. 17:39
Já Sigurgeir, það er þetta með húðlitinn. Maður veit aldrei hvað má segja og hvað ekki. Mér hefur gefist best að meta fólk útfrá orðum og efndum og spá minna í uppruna. Genetískur uppruni segir svo lítið um einstaklingin.
Mér leiðist frekar þessa tilgerðarlega African American staðsetning. Obama er nær því en flestir aðrir sem kenna sig þannig, því obbinn af svertingjum í Bandaríkjunum þarf að leita minnst sex kynslóðir aftur til Afríku. Flestir hvítir Bandaríkjamenn eru meðvitaðir um evrópskar rætur, en kynna sig þó sem Kana.
Ragnhildur Kolka, 23.1.2009 kl. 20:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.