19.11.2008 | 13:23
Er það hveitið eða er það krónan?
Verðmyndun hveitis, korns og olíu á heimsmarkaði er nú komið undir það sem það var í ársbyrjun 2008 og það hefur lækkað um 52% frá því það var hæst í júlí lok. Þessi hækkun tengist því beint gengisþróuninni og lækkun krónunnar, rétt eins og olíuverðið. Það eru hins vegar blikur á lofti í fyrirsjáanlegri framtíð vegna væntanlegs uppskerubrests víða í heiminum. Sú skýring kemur eldri Íslendingum ekki á óvart, því á árum áður fengum við iðulega að heyra að kaffið á Íslandi væri dýrt vegna eilífra vandræða með uppskeruna í Honduras.
Neytendasamtökin þurfa að vera vakandi fyrir gengi krónunnar þegar hún styrkist (vonandi) eftir að hún fer aftur á flot. Það gagnast neytendum ekkert að vita að vörur hækki nema hægt sé að sýna fram á í hverju hækkunin felst. Í augnablikinu er það gengi krónunnar.
Hveiti hækkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Það ekki enþá komið í það sem var fyrir 2 árum
Við bændur höfum bara séð hækkanir og þar er það gengið
2006 borgaði ég 16500 fyrir tonnið af hveiti en núna 38000
Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 20.11.2008 kl. 00:54
Það eru margir þættir sem stuðla að verðmyndun. Umræðan hér og verðkannanir Neytendasamtaka ganga allar út á samkeppni innanlands án þess þó að skila neinu nema úlfúð og ergelsi í garð smávörukaupmanna, því kannanirnar eru gerðar m.t.t. stykkjavöru út úr búð og utanaðkomandi áhrif helst ekki nefnd á nafn.
En smávöruverslun á Íslandi ber sig ekki ef hún selur undir heimsmarkaðsverði og hún verður að greiða fyrir sín innkaup á því gegni sem býðst hverju sinni. Með þetta bak við eyrað ber síðan neytendum að gera sér grein fyrir álagningunni. Kostnaðarvitund Íslendinga er ekki mjög þroskuð.
Hveiti, korn og olía eru grunnvörur. Það má fylgjast með verðmyndun þessa varnings á Bloomberg vefnum. Ef verðkannanir eiga að gagnast mönnum og ef efling neytendavitundar er markmið, þá þarf að gera fólki grein fyrir hvernig verðmyndun verður til. Í árferð eins og núna ríkir er það veiking krónunnar sem spilar stærsta hlutverkið. Hækkun heimsmarkaðsverð réði ástandinu þar áður. Nú fer það lækkandi og ef við náum niður verðbólgunni þá má vonast til að jöfnuður komist á aftur. Þá geta Neytendasamtökin aftur farið að bera saman mjólkurpottinn og brauðin í Klukkunum, Krónunum og Bónusunum.
Þú og bændur almennt og að endingu við neytendur höfum þurft að þola það sem á okkur hefur verið lagt. Þessi hækkun sem þú minnist á var ekki vegna uppskerubrests heldur afleiðing hugsjónabaráttu sem upphófst þegar menn ákváðu að bjarga heiminum með því að brenna etanóli. Nú er sú blaðra sprungin. Neikvæðu áhrifin yfirþyrmandi og kreppan sér svo um afganginn.
Ragnhildur Kolka, 20.11.2008 kl. 13:22
Spáðu í því ef þessi króna væri ekki að þvælast fyrir! Þá væri miklu meira gagnsæi í verðmyndun. Þá værum við fyrst að tala saman.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 20.11.2008 kl. 23:54
Já, þá væri einum óvissuþætti vikið til hliðar. Gunnar í tilveran-í-ESB bendir á að um 70% heimsviðskipta fari fram í dollurum. Eigum við ekki bara að stefna hátt.
Ragnhildur Kolka, 21.11.2008 kl. 12:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.