2.9.2008 | 15:54
Hvað getur ISG lagt af mörkum
Mbl.is hefur eftir Ingibjörgu Sólrúnu "að það væri ekki skollið á efnahagslegt óveður enn á Íslandi þótt ýmsir váboðar sæjust". Skarplega athugað, en gæti ISG ekki lagt eitthvað af mörkum til að ýta þessum váboðum frá okkur? Eru ekki einhver gæluverkefni í hennar ráðuneyti sem mætti skera? Hvað með atkvæðaveiðarnar til Öryggisráðsins? Að leggja það til hliðar myndi spara okkur milljónir, jafnvel hundruð milljóna. 380 milljónir hafa nú þegar verið settar í verkefnið og Ólafur Ragnar á fullri ferð milli arabaríkja að snapa fylgi svo nú aðrir útsendarar séu ekki nefndir.
Kostnaðurinn nú er þó ekki nema brot af því sem ævintýrið mun kosta ef Ísland kemst inn. Flottræfilsháttur Íslendinga mun sjá fyrir því.
Ekki meiri bankabónus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Mér er ómögulegt að skilja hvernig seta i Öryggisráði SÞ geti gagnast Íslendingum. Þetta er óstarfhæft ráð, sem getur svo að segja aðeins sameinast um eitt: að fordæma Ísrael. SÞ eru að verða óstarfhæfar vegna einsræðisríkja og glæpaþjóðfélaga, sem tekið hafa höndum saman um að koma í veg fyrir alla gagnrýni nema á Ísrael. Sjá hér
Ef Ingibjörg Sólarferð Gísladóttir telur að seta Íslands í þessu ráði sé nauðsynlegt, er það kannski vegna gífurlegrar löngunar hennar til að fordæma Ísrael, eða bara til þess að láta vasaljós sitt skína.
380 milljónir plús af skattpeningum þjóðarinnar, eru miklir peningar á krepputímum, til þess eins að eyða í persónulega perversjón utanríkisraðherra.
Ísland hefur ekkert að gera í Öryggisráð SÞ.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 2.9.2008 kl. 16:28
Ég fæ ekki betur séð en að ISG og hennar samferðarfólk í Samfylkingunni telji sig vera "stikkfrí" í efnahagsstjórninni.Þetta eru málefni Sjálfstæðisflokksins segir hún.
Óskar Aðalgeir Óskarsson, 2.9.2008 kl. 16:35
Vilhjálmur og Óskar,
Allt satt og rétt, ég hef engu við þetta að bæta.
Ragnhildur Kolka, 2.9.2008 kl. 16:45
"380 milljónir plús af skattpeningum þjóðarinnar, eru miklir peningar á krepputímum, til þess eins að eyða í persónulega perversjón utanríkisraðherra."
Var þetta ekki komið í gang löngu áður en ISG varð utanríkisráðherra?
Páll Geir Bjarnason, 2.9.2008 kl. 17:34
Jú, rétt hjá þér Páll. Sá armur Framsóknaflokksins sem trúir á yfirþjóðlegt vald, líkt og Samfylkingin gerir, hafði rekið þenna áróður um nokkurt skeið. Og vissulega kostaði það skilding, en Ingibjörg Sólrún hefur farið hamförum í eyðslunni og stuðning vill hún sækja til þjóða sem þekktar eru fyrir mannréttindabrot.
Eins og Vilhjálmur Örn segir hér að ofan, þá "eru (SÞ) að verða óstarfhæfar vegna einsræðisríkja og glæpaþjóðfélaga" sem gæta eigin hagsmuna. Við þurfum ekki annað en minnast Georgíu, Zimbawe og Súdan til að gera okkur grein fyrir hvernig ástandið er á því heimili.
Eftir stendur spurningin um hvort ISG geti ekki lagt lóð á vogarskálarnar í þrengingum þjóðarinnar, eða er þetta gæluverkefni þýðingarmeira en buddur landsmanna?
Ragnhildur Kolka, 2.9.2008 kl. 18:43
Mannréttindarbrot eru líka framin af ríkjum Vesturlanda. Þ.m.t. okkur.
Páll Geir Bjarnason, 2.9.2008 kl. 21:05
Skilgreiningin á því hvað eru mannréttindi hefur farið nokkuð á skrið hér á Vesturlöndum. Ég get t.d. ekki tekið undir fullyrðingar Bolvíkinga að það sé mannréttindabrot að geta ekki horft á enska boltann í beinni.
Það er hins vegar mannréttindabrot þegar fólki er meinað að tjá skoðanir sínar, þegar það er líflátið fyrir að skipta um trú eða grafið lifandi fyrir að verða fyrir nauðgun.
Ragnhildur Kolka, 3.9.2008 kl. 08:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.