18.6.2008 | 22:38
Hvaða 495 milljónir samþykktu Lissabon-sáttmálann?
Það þarf ekki alltaf að hafa mörg orð um hlutina til að koma merkingu til skila. Stundum dugir eitt orð eins og hér og stundum má jafnvel komast hjá því að segja nokkuð. Þetta fer auðvita eftir því hvað sagt er og hvaða augum menn líta heiminn í kringum sig.
Stjórnarskrársinnana ESB urðu fyrir miklum skell í síðustu viku eftir að hafa beitt Íra hótunum til að kjósa með sameiningu sambandsins. Svo gersneiddir tengingu við almenning í löndum sínum eru þeir að þeir hafa jafnvel látið sér detta í hug að halda sameiningaráformum sínum til streitu þrátt fyrir að lög sambandsins leyfa ekki slíkt. Heimur þeirra er báknið í Brussel og almenningur í löndum ESB er lítið annað en tölfræði á teikniborði stórveldisdrauma þeirra.
Það sannast best þegar ESB-sinnar eins og t.d. Wolfgang Schauble innanríkisráðherra Þýskalands og smásílið hér heima Baldur Þórhallsson reyna að bera það á borð fyrir venjulega hugsandi fólk að það bara gangi ekki að örfáir Íradurgar geti stöðvað framrás Evrópumassans. Ákvörðunarréttur Íra er tryggður í þeim sambandslögum sem nú gilda, en verður ekki til staðar ef Lissabon-sáttmálinn verður staðfestur. Því var það síðasti sjens fyrir Íra að spyrna við fótum og allt tal um að "fáeinar milljónir Íra geti ekki tekið ákvörðun fyrir hönd 495 milljónir Evrópumanna" er út í hött.
Það voru nefnilega engar 495 milljónir Evrópubúa sem samþykktu Lissabon-sáttmálann. Vilji almennings var hvarvetna hunsaður. Þingmanna-elítan í þeim löndum sem samþykkt hafa sáttmálann sá um það. Það hefði líka gerst á Írlandi ef elítan á þingi hefði komið vilja sínum fram. En Írar voru eina þjóðin sem ekki gat framselt vald sitt til yfirþjóðlegrar stofnunar án þess að bera það undir landsmenn. Jafnvel Bretar, sem fengu loforð frá forsætisráðherra sínum um að kosið yrði um málið voru sviknir. Gordon Brown sveik loforð fyrirrennar síns og laumaðist með skottið á milli lappanna til Lissabon eftir að forsvarsmenn hinna þjóðanna höfðu staðfest sáttmálann. Þótt svik hans hafi verið lúaleg sýnir þessi laumuferð hans að hann kunni að skammast sín. Enda eins gott því hann á eftir að þurfa að lifa við þau um ókomna tíð.
Írar tala fyrir sig og þannig á það að vera meðal fullvalda þjóða. Hér heima er harðsnúinn hópur sem gengur hart fram í því að koma fullveldi Íslands í hendur skriffinnanna í Brussel. Megi þeir upplifa skömm Gordons Brown takist þeim ætlunarverkið.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.