10.5.2012 | 12:59
Fjölskylduhjálpin opnar útibú í Amsterdam
Follow the money
Hvar eru evrurnar og hvaðan komu þær?
Í aðlögunarferlinu sem Össur Iskariot hefur stefnt okkur inn í er hvergi minnst á hið raunverulega ástand sem nú ríkir í Evrópu. Kannski ekki að undra því Össur er ekki kunnugur kjörum almennings því auma veldi. Það eru kjötkatlarnir í Brussel sem hann ætlar að setjast að með sálufélögum sínum. Fólkinu sem skipar öðrum að herða sultarólina en gerir kröfu til að sultarlýðurinn hækki nú framlög til báknsins í Brussel um 7.4%. Á sama tíma fer Evrópudómstóllinn fram á 29 þúsund evra af fjárlögum ESB næsta ár á meðan sá háæruverðugi dómstóll situr á vínbirgðum í kjallaranum að andvirði 70.000. En árlega svolgrar þetta forréttindalið í sig göfugar veiga fyrir 15 þúsund evra. Mamamaður bara spyr: "Í hvaða heimi lifir þetta fólk"?
Vissulega getum við ekki gert þá kröfu til þess að RÚV veiti upplýsingar um svo lítilfjölleg mál, enda fer það gegn gagnsæisstefnu ríkisstjórnarinnar. Og rískisstjórnarútvarpið sinnir sínum skyldum gagnvart ýfirboðurum sínum. Frjáls fjölmiðlun er þó enn ástunduð víða um heim og þangað getum við, sem eigum að borga fyrir veisluhöldin, leitað þegar við höfum fengið upp í kok af ESB fagurgalanum á RÚV.
Það mundi ekki hvarfla að RÚV að fjalla um biðraðirnar í matarúthlutunina í Amsterdam, jafnvel nú þegar þær hafa lengst sem nemur 20% á síðustu 4 mánuðum. Tuttuguogþrjú þúsund manns þiggur nú matargjafir í þessum "fóðurbönkum" eins og úthlutunarstöðvarnar eru kallaðar og ekkert lát á aðsókn. "Auðvaldssnepillinn" Bloomberg lét sig hafa að taka málið til umfjöllunar of hafi hann þökk fyrir. Úthlutun ókeypis hrísgrjóna, ávaxta og grænmetis fer nú fram á 135 stöðum í Hollandi. Tók einhver eftir að ég skrifaði "Hollandi"? Af hverju Hollandi, er Holland ekki eitt af ríkustu löndum ESB? Ganga þar ekki allir með fangið fullt af blómum og fá sér hasspípu með kaffibollanum á leiðinni heim úr vinnunni? Býr Holland ekki enn að AAA lánshæfismati guðsins sem stýrir heiminum?
En hungurvandamálið er ekki bundið við þetta fyrrum gósenland, Holland. Írar tóku skell um svipað leyti og við en brugðust öðru vísi við. Samkvæmt ráðgjöf/skipun frá Brussel fengu írskir skattgreiðendur, óspurðir, að taka á sig skuldir bankanna. Í kjölfarið hefur fólksflótti frá Írlandi ekki verið meiri síðan kartöfluplágan sendi stóran hluta þjóðarinnar í gröfina um miðja 19. öldina. Hinir flúðu til Ameríku. Írar, rétt eins og Íslendingar, trúðu því að góðærið myndi endast að eilífu. Þeir hafa vaknað við vondan draum. Yfir 76 þúsuns manns yfirgáfu landið á eins árs tímabili til að leita sér vinnu annars staðar. Hvort það hefur gengið eftir er ekki gott að segja, en miðað við atvinnuleysistölur frá öðrm evrulöndum er vafamál að það hafi gengið eftir. Frá spáni hafa 50 þúsund manns flúið í leit að vinnu og svipaða sögu má segja um önnur lönd Suður Evrópu. Peningarnir, þeir sem til voru, eru líka flúnir. Þýskaland er nú landið sem allir horfa til. En getur Þýskaland tekið við öllu þessu fólki? Þjóðverja skortir vinnuafl iðn-og tæknimenntaðs fólks, lækna og hjúkrunarfólks og mun því taka við því. En hvað með alla hina?
Hvað sem vinstrimenn á Íslandi segja þá er staðreyndin sú að kreppan bítur um allan heim og jafnvel draumalandið ESB er komið á hnéin. Þar munu Brusselbúranir líka fá að kynnast hugtakinu, sem þeir héldu að ætti aðeins við hina, RÁÐDEILD.
RÚV heldur hins vegar áfram að fjalla um Grikkina, sem kunnu ekki fótum sínum forráð, eins og allt bölið sé þeim að kenna. Grikkir svara fyrir sig með því að kasta sprengjunni aftur þangað, þaðan sem henni var varpað.
Um þetta má lesa í fyrrnefndri grein Bloomberg.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.