26.2.2012 | 19:19
Byrjum á bensíninu
sagði Egill þegar hann hóf þáttinn sinn í dag. Tillaga Sjálfstæðismanna var þar til umræðu og þótti mönnum misjafnt um. Benti Jón Gunnarsson á nokkur dæmi þess hvaða áhrif lækkað bensínverð mundi hafa á líf fólks og hegðun. Mörður Árnason sá bara fyrir sér kostnað ríkissjóðs við það að leyfa landsmönnum að þjóta lengur og hraðar um vegi landsins. Blés hann á þær mótbárur að þessi lækkun gæti örvað atvinnulífið, hækkað kaupmátt og haldið vísitölunni niðri. Kommakratinn sá bara kostnað ríkissjóðs auk þess sem bensínverð myndi bara halda áfram að hækka.
Hin kratíska sýn er alltaf sú að engum ráðum verði við komið til að sporna við vandamálinu og það sé hvort eð er öðrum að kenna. "Leggjum upp laupana og göngum í ESB" er hið sígilda svar kratans. Svipuð viðhorf ríkja hjá bandarískum krötum. Reyndar hafa þeir enn ekki lagt til að BNA gangi í ESB en þeir vinna að því leynt og ljóst að taka upp sömu stjórnarhætti; risastórt ríkisvald og afnám lýðræðis.
Þótt bensín verð í BNA sé hlægilega lágt miðað við hér, þá þykir landsmönnum þar það alltof hátt. Kratarnir komust upp með að kenna Bush þáverandi forseta um bensínverðið í forsetatíð hans, þótt nú sjái þeir kýrskýrt að þeirra forseti, Obama, hafi ekkert með bensínverð að gera og sé bara fórnarlamb aðstæðna og ömurlegra stjórnarhátta sem rekja má til repúblikana. Kanakratar kjósa fremur að kanadísk olía sé seld til Kína en að hún sé keypt yfir landamærin og geti þannig spornað við innflutningi um langan veg frá óvinveittum ríkjum. Enn eru þeir fastir í grænum fjötrum Gore-trúboðsins.
Gulldrengurinn Obama hafði lofað þeim "Green energy gold rush" og enn bíða þeir eftir að flóðgáttir opnist og gullið streymi inn. Það virðist ekkert bíta á þá að fé hafi verið ausið í björgunarpakka gjaldþrota fyrirtækja eins og Solyndra sem sporðrennti $530 milljónum áður en það dó. Eða $1.4 milljarðar sem fóru í fyrirtæki Roberts Kennedy Jr, BrightSource þar sem hvert starf sem til verður mun kosta á bilinu $1,4-2.8 milljónir. Rafmagnsbíll GM, Volta sem aðeins seldist í nokkur þúsund eintökum hefur nú verið innkallaður vegna sjálfsíkveikjuhættu sem reynst hefur umfangsmeiri en hægt er að þagga niður.
Þessi ofurtrú stjórnmálamanna á niðurgreidda græna orku er að koma í bakið á þeim. Ríkisrekinn iðnaður er í engu arðbærari í dag en þegar Sovétríkin settu sínar 5 ára áætlanir í forgang eða þegar bæjarútgerðir áttu að bjarga atvinnumálum á Íslandi. Milljarðar hafa sokkið í fúafen þessa sovéska hugsunarháttar. Augu almennings eru ekki bara að opnast vegna Solyndra heldur eru ríki um allan heim að uppgötva þá botnlausu hít sem grænn iðnaður er. Danmörk, Skotland og Frakkland eru í auknu mæli að leggja niður orkuöflun með vindmyllum vegna gífurlegs viðhaldskostnaðar og landmengunar. Spánn, sem átti að vera fyrirmynd annarra landa um sjálfbæra sólarorkunýtingu hefur ekki lengur efni á þessu pjatti. Og nú síðast er forustusauðurinn um vistvæna orkugjafa, Þýskaland, að koxa á ævintýrinu.
Í þetta verkefni hafa Þjóðverjar mokað 100 milljörðum og þar með hækkað orkukostnað meðal heimilis um ca 30.000 krónur. Störf sem skapast við þessar niðurgreiðslur kosta 135.000 stykkið og drjúgur hluti þeirra verður til í Kína. Þrátt fyrir þennan gífurlega kostnað er sólarorka aðeins 0.3% af landsnotkun, en heildar notkun Þjóðverja af vatns, sólar og vindorku er samkvæmt Ráðuneyti Efnahags og tækni aðeins um 1.8% af heildarnotkun. Ráðherra þessa málaflokks, Philipp Rösler, telur síhækkandi kostnað við sólarorkuna vera farið að ógna efnahagslífi þjóðarinnar. (Hér er látið vera að minnast á björgunarpakkana sem eru póstaðir síendurtekið til Grikklands og sem Þjóðverjar standa undir að stærstum hluta).
Þjóðverjar öfunda okkur af orkuauðlindunum, þessum óheyrilega auði sem við eigum í formi vatns og jarðhita. Þeir sjá möguleika á því að eignast hlutdeild í honum ef Ísland gengur í ESB. Sumir eru jafnvel til í að aðstoða þá við það. Það hlýtur að vera blóðugt fyrir hina stoltu þýsku valdhafa að horfa á að þessi litla þjóð norður í ballarhafi sem hitað getur u.þ.b. 90% heimila með vistvænni orku og selt afgang til iðnaðar og eiga auk þess afgang.
En ríkidæmi Þjóðverja leyfði þeim að leika sér með auð sinn þegar trúboðið um hlýnun jarðar af mannavöldum fór af stað. Þeir fóru fremstir og fluttu fagnaðarerindið áfram til snauðari þjóða. Þeir höfðu efni á því að taka á sig þungann af útblásturskvótanum þegar ESB ríkin gerðu með sér viðskiptasamning um losun. Nú horfa þeir upp á að milljarða niðurgreiðslur eru ekki að gera þeim nokkuð gagn. Við lok þessarar aldar munu 100 milljarðarnir aðeins hafa tafið hlýnun jarðar um 23 klukkustundir.
Ofan á þetta bætist að nýjustu rannsóknir benda til að við stefnum inn í nýja ísöld og í því klíma getur hlýnun jarðar af völdum manna aðeins verið blessun.
Söfnuðirnir vestan hafs og austan ættu að fylgjast náið með því sem fram vindur í rannsóknum á þessu sviði.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.