30.6.2011 | 00:10
Í trölla höndum
Árni Matthíasson, blaðamaður skrifaði athygli verða grein í Morgunblaðið í dag, þar sem hann fjallar um "mestu illmenni vorra tíma". Reyndar tekur hann sér það bessaleyfi að ferðast til í tíma og gerast fornleifafræðingur sem, einhvers staðar í blámóðu framtíðarinnar, grefur niður á skjalasafn Sameinuðu þjóðanna. Í því merka safni munu þeir finna vitnisburð um illskuverk ísraelsku þjóðarinnar gagnvart "sárþjáðri" palestínsku þjóðinni. Jú, sönnunargögnin liggja fyrir, mannréttindaráð Sþ hefur á síðustu 5 árum fordæmt framferði Ísrael gagnvart Palestínuaröbum í vel á fjórða tug samþykkta. Og samkvæmt Árna er Ísrael eina landið sem hefur verið fordæmt í samþykktum þessa merka ráðs, þótt vissulega hafi það skoðað aðstæður víðar. Ráðið tók sér t.d. tíma til að kíkja á þjóðarmorðið í Súdan, en komst að þeirri niðurstöðu að það útheimti ekki fordæmingu. Þar dugði ráðinu að lýsa yfir áhyggjum, enda bara um þjóðernishreinsanir, hungursneyð og fjöldanauðganir að ræða.
Nú bíða ráðsmenn spenntir eftir að senda frá sér enn eina yfirlýsinguna svo fornleifafræðingar framtíðarinnar getið fullvissað sig um illsku þessara Ísraelsku níðinga, þegar þeir enn einu sinni vígbúast gegn friðelskandi mannvinum sem bera hinum hersetnu Gazabúum vistir og mat. OK, svo Gaza er ekki lengur hersetin og reyndar ekki heldur í herkví. Landamærin við Egyptaland hafa verið opnuð, en slíka smámuni er óþarfi að tína til í virðulegri samþykkt fordæmingarplaggsins.
Menn spyrja sig gjarnan hvernig það megi gerast að ein þjóð komist upp með slík fólskuverk. En þá má benda á samsetninguna á þingi Sþ, hvað að baki samþykktanna liggur, hverjir þar ráða ferð og hvernig þeir fara með vald sitt. Það þarf ekki að leita langt, en þó er það þannig að ekki skal treyst á að útvarp allra landsmanna sendi upplýsingar þar um til okkar sem greiðum hið lögboðna árgjald.
Þótt allar fordæmingar mannréttindaráðsins séu samviskusamleg tíundaðar í öllum fréttatímum miðilsins minnst þrjá daga í röð þá mun ekki finnast eitt stakt orð þar um hverjir sitja í þessu ráði. En meðal hinna æruverðugu mannréttindaríkja er Kína, Kúba, Kongó, Rússland, Sádi Arabía og Kamerún. Reyndar var Líbýu sparkað í mars en það hefur eflaust reynt á suma meðlimi að standa að slíku óhæfu verki. Því ekki er svo langt síðan Líbýa var í forsæti á allsherjarþinginu og átti að auki sæti í öryggisráðinu. Meiri menn en Íslendingar sem ekki nutu slíks trausts.
Og þeir kalla ekki allt ömmu sína mannvinirnir hjá Sþ. Íran er í náðinni og var því treyst til að leiða Þróunaraðstoðarstofnun Sþ. Nú um stundir situr Íran í nefnd um stöðu kvenna í heiminum og skemmir þá ekki fyrir þeim framganga þeirra sjálfra gagnvart konum. En í Íran eru konur hengdar, hýddar eða grýttar fyrir minnstu sakir.
Það er orðið nokkuð síðan maður hætti að kippa sér upp við mannganginn á skákborði Sþ. Þó fer ekki hjá því að lítil frétt hafi ýtt duglega við mér í dag. Hélt í einfeldni minni að ekki væri hægt að ganga lengra í vitleysunni hjá þessari stofnun sem svo margir bundu vonir við í árdaga en fjarað hefur undan síðan. En nei, í sömu viku tókst Sþ að kóróna siðleysið sem stofnunin hefur verið að fikra sig inn á. Fyrst með því að aðalritari samtakanna Ban Ki-Moon lét sig hafa það að senda heillaóskaskeyti til hryðjuverkamannanna í Íran sem um síðustu helgi héldu svokallaða "counter-terrorista" ráðstefnu í Teheran. Eins og þetta væri ekki nóg létu Sþ kné fylgja kviði á þriðjudag, þegar Norður-Kóreu var afhent forsætið á afvopnunarráðstefnu sem haldin er í Genf.
Hafi einhver vafi leikið á því að Sameinuðu þjóðirnar séu nú í tröllahöndum, ættu þessar fréttir að færa mönnum sanninn um að þessari stofnun er ekki viðbjargandi.
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Athugasemdir
Sameinuðu þjóðirnar eru lengi búnar að vera hryðjuverkasamtök.
Gleymum ekki Imbu, þegar hún fór í pílagrímsferð til illmenna eins og Assads jr. til að ná setu í Öryggisráðinu. Leynivopn eins og pönnukökur voru ekki nóg.
Enginn vill hana fyrir landsdóm. Kona sem leitaði til þjóðarmorðingja til að koma landi sínu í Öryggisráðið er væntanlega sek um eitthvað. Var það viðleitni til friðar? Manstu eftir bréfi hennar til Zipi Livni, sem hún skrifaði á gamlársdag, að því er virðist undir áhrifum, þar sem hún kallaði Livni Mr.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 30.6.2011 kl. 06:27
Gleymdi að þakka fyrir góða færslu. Gaman væri að sjá grein Árna.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 30.6.2011 kl. 06:29
Nú veit ég ekki hvort þetta tekst hjá mér, Vilhjálmur, eða hvort það er leyfilegt, en þegar svona greinar birtast hér á landi þar sem ekki má draga hatursáróður Hamas í efa, þá tel ég að þær eigi fullt erindi til fólks og læt því gossa.
Grein Árna:
Ragnhildur Kolka, 30.6.2011 kl. 09:59
Það fór óneitanlega vel á með þeim þessum hökulausa augnlækni og vonarstjörnu vinstrimanna á Íslandi.
Ragnhildur Kolka, 30.6.2011 kl. 10:12
Frábær grein og líka þín, en ekki dæma fólk af útlitinu. Ingibjörg getur ekki gert að því þótt hún sé kulnuð stjarna.
Las einnig ferðasögu þína frá Árósum, gamla háskólanum mínum. Ég var með skrifstofu í doktorsnámi á Moesgård i mörg ár og hef gist á lofthæðinni þegar ég er í Árósum.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 30.6.2011 kl. 10:49
Nei, satt segir þú, Vilhjámur maður á ekki að dæma eftir útliti. Hökuleysið virðist ekki há Assad við að berja af hörku á löndum sínum og ISG virðist nú frekar hafa grætt á því að liggja í frystinum.
Ragnhildur Kolka, 30.6.2011 kl. 11:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.