25.7.2010 | 17:41
Vinstri grænt sprell
Þessi skemmtilega mynd birtist í Víkurfréttum í fyrrahaust undir fyrirsögninni "Öflugur VG fundur í Reykjanesbæ" (þessi fyrirsögn kallar á rauðan lit). Auk frummælenda mættu á fundinn 20 karlar og þessi iðjusama kona. Mikill hugur var í mönnum; Ísland sjálfbært með orku, loforð upp á 1000-1500 störf frá Steingrími, sem lengdi þar með nef sitt um nokkra sentímetra, á næstu þremur árum (nú ári síðar næstu tveimur árum) og svo auðvitað lífleg umræða um að rífandi gangur væri í hátækni og gagnavinnslumálum á svæðinu. Menn voru styrktir í andstöðu sinni við álver sem almennt voru talin af hinu illa og að sjálfsögðu var hið ómissandi sjálfsstyrkingarnámskeið til staðar, þ.s. reiði fundarmanna var beint í "farveg" gegn Sjálfstæðisflokknum. Fegurð og fjölbreytni Reykjanesskaga var rómuð og fundarmenn beðnir að minnast þess að þrátt fyrir að "Það sé dapurlegt að horfa upp á hve margir eru atvinnulausir, [þá sé] enginn þeirra .. þó atvinnulaus vegna ákvörðunar umhverfisráðherra".
Fundurinn var haldinn um það leyti sem Magma energy var að lýsa áhuga á að kaupa upp það sem eftir stæði af orkufyrirtækinu HS orku. Vf minnist ekki i á að Magma hafi verið til umræðu á fundinum.
Skyldu fundarmennirnir 20 á þessum öfluga (sic) fundi enn vera sammála þessum áherslum sem forustan hafði á orku og atvinnumálum Suðurnesjamanna?
Það verður ekki annað sagt en að þeir hjá Vg eru alltaf jafn spaugsamir. Nú keppast þeir við að hóta stjórnarslitum hver í kapp við annan, Guðfríður Lilja, Þuríður B og Atli G komin á blað. Vitandi að komi þetta mál til kasta Alþingis þá munu allir ábyrgir þingmenn greiða atkvæði gegn riftunartillögu. Skera Vg þar með niður úr snörunni eins og sagt er.
Ef þeir meina eitthvað með hótunum sínum þá slíta þeir stjórnarsambandinu, en ef þeir eru bara í enn einum pólitíska hráskinnaleiknum láta þeir málið fara til Alþingis, þ.s. þeir verða dregnir að landi.
Það verður fróðlegt að sjá hvort kjósendur þeirra kaupa þessa sýndarhugsjón enn einu sinni. Margir þeirra átta sig nú þegar á að það er ekki aðeins í Icesave og ESB-málinu sem forustan hefur brugðist. Málin hrannast upp og Magma er bara enn eitt dæmið.
Árarnir sem Vg glímir við eru óteljandi. Nú eru það ekki álversskrattar sem eru á dagsskrá (þeir bíða handan hornsins) heldur Kanadadjöflar sem ætla að rýja okkur inn að skinninu.
Vg þarf að átta sig á að hugsjónir tiltölulega fárra einstaklinga eru ekki heppilegt veganesti inn í ríkisstjórn sem þarf að hugsa um heildina og taka óþægilegar ákvarðanir.
Mynd: www.vf.is/Adsent/42096/default.aspx
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2021
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Desember 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- baldher
- gattin
- tilveran-i-esb
- gun
- gustaf
- haddi9001
- heimssyn
- aglow
- jonvalurjensson
- ksh
- altice
- skrafarinn
- sigurgeirorri
- blauturdropi
- postdoc
- olijoe
- hugsun
- iceberg
- annabjorghjartardottir
- borgfirska-birnan
- eeelle
- gessi
- elnino
- muggi69
- gustafskulason
- bassinn
- krist
- samstada-thjodar
- fullveldi
- valdimarjohannesson
- thjodarheidur
Bækur
Valið er mitt
Á, við og undir náttborðinu
-
: The Tyranny of Guilt; An Essay on Western Masochism (ISBN: 978-0-691-14376-7)
Góð greining á vandamálum Vesturlanda
-
: Þjóðmál_sumar 2010
Skyldulesning ársins
-
: Vísnafýsn (ISBN: 978-9979-2-2115-9)
Léttleiki í fyrirrúmi með djúpum undirtón
-
: Margherita Dolce Vita (ISBN: 1-933372-20-6)
Ádeila á neysluhyggju sögð með of mörgum orðum.
-
: Stolen without a Gun; confessions from inside history´s biggest accounting fraud (ISBN: 978-0-9797558-0-4)
Kennsla í aðferðafræði. -
: The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (ISBN: 0 099 47043 8)
Sérstök bók; fyndin og döpur í senn.
-
: 79 af stöðinni (ISBN: 978-9979-53-523-2)
Sunnlenska bókakaffið blífur
-
: The Big Sort (ISBN: 978-0-618-68935-4)
Pólarísering í velmegunar samfélagi.
-
: Slander (ISBN: 1-4000-4952-0)
Fróðleg og fyndin
-
: Fjölmiðlar 2007 (ISBN: 978-9979-651-36-9)
Góð upprifjun
-
: The Nanny State (ISBN: 978-0-7679-2432-0)
Forsjárhyggja framar öllu
-
: Shakespeare (ISBN: 13-978-0-00-719790-3)
Það sem við vitum ekki um skáldið frá Stratford. Í senn fyndin og fróðleg.
-
: Shoot the Puppy (ISBN: 978-0-141-02706-7)
Útlistun á orðræðu viðskipta-og fjármálageirans, þar sem stríðsleikir samtímans fara fram.
-
: Lost in Translation (ISBN: 978-1-84317-272-7)
Góð í ferðalagið
-
: Surrender Is Not an Option (ISBN: 978-1-4165-5284-0)
Segir allt sem segja þarf um erindisleysu okkar í Öryggisráð SÞ
-
: House of Meetings (ISBN: 978-0-676-97787-5)
Bók sem vert er að eyða tíma í að lesa.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.