Leita í fréttum mbl.is

SPRON á það skilið

SPRONÍ meira en 30 ár hef ég verið viðskiptavinur SPRON á Skólavörðustígnum. Einn af mörgum ánægðum viðskiptavinum bankans. Mér var því illa brugðið þegar ég hlustaði á viðskiptaráðherra skella þar í lás og segja upp 200 uppáklæddum starfsmönnum í beinni útsendingu. Ótrúlega ósmekkleg athöfn sem vel hefði mátt bíða til næsta dags.

Eins fannst mér sérkennilegt að vera flutt hreppaflutningum yfir í Kaupþingsbanka. Ekki að mér sé neitt í nöp við Kaupþing, þó ég verði að segja að þeir mættu að ósekju draga úr auglýsingaflæðinu sem dynur á manni meðan beðið er í símanum eftir sambandi við þjónustufulltrúann. En hreppaflutningar ættu að heyra sögunni til. Þessir voru í boði Jóhönnu stýru og Steina stjóra sem þurfti ekki á atkvæðum Reykvíkinga að halda í þetta sinn.

En þegar neyðin er stærst, þá er ....... Fyrir tilstilli MP Fjárfestingasjóðsins gefst  mér nú tækifæri til að ná aftur stjórn á  fjármálum mínum, eiga viðskipti við einkabanka, styðja við endurráðningu minna ágætu SPRON starfsmanna (einhverra í það minnsta) og losna við auglýsingaófögnuðinn í Kaupþingssímkerfinu. Geri aðrir betur. Og auðvitað geta aðrir líka gert betur. Ég skora á ykkur að gera betur.

Skallagrímur hefur ekki gefið neina haldbæra skýringu á því hvers vegna SPRON var sent í gjaldþrot á meðan lánakjör ríkisins í Norðaustur kjördæmi eru slík sem þau eru.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Davíð skáld Stefánsson kíkti hér inn til mín og fór fram á að ég svaraði honum á síðunni hans. Mér er ljúft að svara stráknum og geri það bæði hér og þar ef hann skyldi fara villu vegar eins og á til að henda hann.

Sæll Davíð, þakka þér fyrir innlitið. Átti satt að segja ekki von á heimsókn en alltaf gaman að fá gesti. Ef þú hefðir gefið þér tíma til að lesa það sem ég sagði þá hefðir þú átt að sjá að ég var að óska eftir ÞINNI sýn og hvernig þú hugsaðir þér að hún gæti ræst.  "Ertu í alvöru að krefjast þess að núverandi ríkisstjórn sé búin að leysa þennan djúpstæða vanda á tveimur mánuðum" Er ákaflega sérkennilegt viðbragð við þeirri ósk minni. Ætti kannski frekar að nota orðið "undanbragð".

En sem svar við spurningu þinni, þá er það einfaldlega að mér þykir ekkert óraunhæft að ÞÍNIR menn hafi einhver svör þegar spurðir um lausn vandans sem við blasir. Þegar einhver brýst til valda býst maður við að sá hinn sami hafi eitthvað það fram að færa að það breyti stöðunni. Svo er ekki. Svar Steingríms segir manni að hann hafi engin ráð. Hann hrifsaði til sín völdin á sömu forsendum og þeir gera þarna í Afríkuríkjunum; til þess eins að hafa völdin. Þess vegna eruð þið staularnir sendir út af örkinni til að skrifa óhróður um Sjálfstæðisflokkinn til að breiða yfir getuleysi VG og reyndar þessarar stjórnar sem nú situr.

Og svo að þú áttir þig á ráðaleysi Steingríms; á fundi fjárlaganefndar var foringi þinn og flokksbróðir spurður um aðgerðir gegn atvinnuleysi . Svar Steingríms hins frækna forystusauðs var: "Ef ég hefði ráð þá myndi ég nota þau". Já, það fer minna fyrir ráðum Steingríms nú en þegar hann var í stjórnarandstöðu.

Vandinn er stór og við hann verður ekki ráðið með því einu að hækka skatta. Það þarf að skera niður en í staðin er VG aðeins að huga að gæluverkefnum. Fjölga á í hópi á listamannalaunum um þriðjung og endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar og síðan á að taka atvinnuréttinn af súludönsurum. Gott og vel, kannski er hugsunin sú að setja súludansarana á listamannalaun og þá má kannski fyrirgefa ráðstjórnina en að sama skapi gætu möguleikar þínir til að komast á listann versnað. En það sem er sameiginlegt með þessum verkefnum er að hvorugt þeirra er enn fjármagnað. Reikninginn á sem sagt að senda á skattborgarana, þ.e..s. ef einhverjir verða þá eftir.

Af því að þú minnist á setur sjálfstæðismanna í ríkisstjórn í 18 ár og telur það hafa verið landi og þjóð til bölvunar, þá kíkti ég áðan inn á síður fjármálaráðuneytisins. Þar sé ég að á verðlagi 2007 varð breyting milli áranna 1998 og 2007 til menntamála um 69% og á sama mælikvarða aukning til heilbrigðismála um 57%. Eflaust má finna svipaða útkomu fyrir aðra málaflokka, en ég læt þér eftir að leita það uppi.

Bókmenntafræðin gefur mikla möguleika til túlkunar texta, en ef viðbragð þitt við athugasemd minni er skoðað sé ég ekki betur en að þú hafi fallið illilega á lestrarprófinu.

Ragnhildur Kolka, 2.4.2009 kl. 21:40

2 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Það er auðvitað mjög leitt að svona hafi farið fyrir SPRON.

Hilmar Gunnlaugsson, 5.4.2009 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband