Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

OR á "autopilot"

Ótrúlegt að fylgjast með fréttum og bloggi þessa dagana. Skýrslan um REI-málið komin út og allir vita núna hvernig hún hefði átt að vera. Hún sé ekkert annað en yfirklór, því "hér eru menn bara að rannsaka sjálfa sig". Þegar "stýrihópurinn" (hvað sem það nú merkir) var settur á fót, heyrðist ekkert í upphrópurunum. Stýrihópurinn átti, nefnilega, að fletta ofan af sukki sjálfstæðismanna svo eftir væri tekið. En hvað gerðist? Tókst Svandísi ekki að framfylgja heitstrengingum sínum um að "róa umræðuna".  Jú, svo sannarlega. Engan heyrði ég kvarta undan því. En það sem gerðist var að hinn blóðþyrsti skríll af ráðhússpöllunum fékk ekki "aftöku í beinni". Ekki var tekið undir kjörorðin "Blóð skal renna".

Kannski komst stýrihópurinn að því að málið var ekki eins einfalt og látið var að liggja. Vissulega voru mistök gerð í REI-málinu og þar er hlutur Vilhjálms ekki lítill, en á enginn annar sök? Hverjir greiddu atkvæði með óskapnaðinum á sínum tíma? Ekki bara sjálfstæðismenn og Framsókn í stjórn OR. Nei, Samfylkingin greiddi þessu atkvæði og var ólm í að komast í útrás með fjármuni almennings.  Og Össur á þönum um heiminn með Ólafi Ragnari að veðsetja íslensk orkufyrirtæki í almennigs eign.

Á þessum tíma kærði Samfylkingin sig kollótta um hvaða upplýsingar lægju fyrir um samruna opinbers fjármagns við glæfraleg fjárfestingarfyrirtæki. Svandís Svavarsdóttir hefði ekki fengið neinn stuðning frá samfylkingarmönnum til að ógilda þá samninga sem fyrir lágu. Þeir voru hins vega til í að þiggja valdastóla þegar það bauðst. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sprakk vegna þess að sexmenningarnir í Sjálfstæðisflokknum sættu sig ekki við upplýsingaskortinn og afbakanirnar. Heilindin voru þeirra megin.

En hvað varðar skýrslu stýrihópsins, þá varð hún kannski til þess að menn fóru að skoða í eigin barm. Sjálfstýringin sem sett hafði verið af stað í OR varð nefnilega ekki til í tengslum við REI. Þar spilaði R-listinn stóra rullu og afdrifaríka. Það sem gerðist síðsumars og haustið 2007 má rekja beint til R-listans. R-listinn keypti valdastóla sína dýru verði. Fyrir 12 ára setu gáfu þeir Alfreð Þorsteinssyni frjálsar hendur við að koma óskapnaðinum á koppinn og halda honum á floti. Einræði Alfreðs í OR má líkja við vinnubrögð víðkunnra samtaka sunnar úr álfunni. Björn Ingi tók við keflinu af Alfreð og tryggði honu áframhaldandi áhrif í fyrirtækinu.

Þar til R-listinn komst til valda voru orkufyrirtæki Reykvíkinga í þjónustu borgarbúa. Stórveldisdraumar Alfreðs leiddu til OR-báknsins og settu embættismenn fyrirtækisins á "autopilot". Síðan þá hafa hagsmunir borgarbúa setið á hakanum. Eru kannski allir búnir að gleyma hitavatnshækkununum í sumarhlýindunum þarna um árið. Það var einmitt þegar breiða þurfti yfir Línu-net hneykslið og draga athygli frá risarækjuævintýrinu sem nú hefur sungið sitt síðasta.

Ekki er að efa að skoðun stýrihópsins á málefnum OR hafi leitt mönnum fyrir sjónir að þetta stjórnlausa skrímsli sem fyrirtækið var orðið, varð ekki til á nokkrum vikum eða mánuðum. Það var afrakstur eins manns mikilmennskudrauma og afskiptaleysis 7 borgarfulltrúa R-listans, sem voru tilbúnir að gefa allt fyrir valdastóla. Þetta hafa bæði Samfylking og Vinstri græn þurft að horfast í augu við, þegar málin voru skoðuð ofan í kjölinn. Því er skýrslan ekki ádeiluplagg heldur áætlun um að taka á vandanum og gera betur.


Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband