Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Sálir til sölu

HræsninÞegar maður hlustar á umræðuna mætti ætla að skúrkarnir í stjórnmálum séu allir hægra megin, en dýrðlingarnir til vinstri. Heiðvirðar sálir með hugsjón flykki sér í vinstri flokkana, á meðan sjálfstæðismenn selji sál sína Mammoni. Þetta er tónninn sem löngum hefur verið gefinn. Svolítið fyndið, því engir tala meira um peninga, né hafa meiri áhuga á þeim, en svokallaðir félagshyggjumenn. Svo kemur upp mál eins og OR og hvað gerist? Sjálfstæðismenn láta steyta á málefninu á meðan "dýrlingarnir" selja hugsjónina. Félagshyggjan fór fyrir lítið þegar ákveðið var að kaupa valdastólana með almannafé. En það er einmitt boðskapur félagshyggjunnar "að eyða fjármunum annarra. 

Það eykur ekki á  trúverðugleikann að flytja viðmiðið til eftir hentugleikum. 


Á kotbúskapur við Ólaf

Nei, ætli hann vilji ekki frekar vera fastafulltrúi Íslands í öryggisráðinu. Sviðið er stærra og ljósin bjartari.
mbl.is Tæplega 65% vilja Ólaf Ragnar áfram sem forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af framboðsmálum

SÞÞað verður augljósara með hverjum degi sem líður hvers vegna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir leggur í hverja heimsreisuna á fætur annarri til að reyna að afla framboði Íslands til öryggisráðs SÞ stuðnings. Hún hlýtur að finna samhljóminn. Hvergi annars staðar, nema hugsanlega á samkundum Samfylkingarinnar, er eins mikið talað og eins lítinn árangur að finna. Orð eru ekki dýr á þeim bæ.

Og nú tala ég þvert um betri vitund. ISG stráir gjöfum til allra átta á þessum ferðum sínum.  Gjöfum sem við, af rausnarskap, fáum að borga. Gjafirnar fær hún svo margfalt endurgoldnar komist Ísland í öryggisráðið, því þar eru smáaurarnir ekki taldir þegar að atkvæðagreiðslunum kemur. En kannski má maður bara þakka fyrir að ISG situr í stólnum núna, því með Valgerði þar, hefðum við eflaust orðið að hola SÞ niður á Bakka. Ekki hugnast mér það.

Svo er það spurningin: Hvernig ætlar hún að launa Ólafi Ragnari fyrir allt snattið?

 


Einfaldleikinn uppmálaður

Þeir eru hugmyndaríkir þarna á Oakland Tribune. Það einfaldar óneitanlega málin að flækja kjósendur ekki í ríminu. Óskiljanlegt að Samfylkingin í Hafnarfirði hafi ekki komið auga á þessa leið síðastliðið vor, þegar hún fóru að kanna hug bæjarbúa til stækkunar álvers. Svona kjörseðill hefði verið afdráttarlaus og komið í veg fyrir klofning og sárindi í fjölskyldum og vinslit sem seint mun sjá fyrir endann á.

Lýgin sem lifði í sjö ár

aldura_tragedy_1Hver man ekki eftir þessari mynd. Árið 2000 vakti hún hrylling og hatur á gyðingum og öllu því sem Ísraelsríki stóð fyrir í hugum múslima um gjörvalla heimsbyggðina og hleypti af stað öldu blóðsúthelling. Þessi mynd olli einnig straumhvörfum í afstöðu fjölmargra Vesturlandabúa til gyðinga.

Undanfarið hafa staðið yfir réttarhöld í Frakklandi vegna þeirrar videomyndar sem þessi mynd er hluti af. Sjónvarpsstöðin France 2 hefur verið þar í varnarstöðu, en umrædd videomynd var tekin af kvikmyndatökumanni þeirra 30. septmber 2000. Síðan þá hefur leikið grunur á að myndskeiðið hafi verið sviðsett. Fjölmiðlavakt í Frakklandi setti fram kæru á hendur sjónvarpsstöðinni en tapaði málinu. Fyrir áfrýjunarrétti komst dómari að þeirri niðurstöðu að taka bæri myndina til skoðunar fyrir dómnum og hafði France 2 frest til 27. september að leggja spóluna fram. Allar 27 mínúturnar.

Forsætisráðuneyti Ísraels sendi frá sér yfirlýsingu í dag um að myndskeiðið hafi verið sviðsett. Myndbandið sem sent hafi verið til sjónvarpsstöðva hafi verið stórgallað og útilokað hafi verið að kúlur ísraelsku hermannanna hafi getað grandað drengnum. Líkur eru á að þeir hafi niðurstöðu dómsins til að byggja á. Kannski trúa vestrænir fjölmiðlar þeim ekki, en þeir ættu þá að hinkra þar til dómurinn í Frakklandi sendir frá sér yfirlýsingu.


Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband