Leita í fréttum mbl.is

Menguð frásögn af fóðurframleiðslu

Nýsköpun

fiskafóður 

Það getur verið erfitt að þjóna mörgum herrum. Þetta er forseti BNA að upplifa þessa dagana. Eins og einhver sagði: það var auðvelt að taka Osama bin Laden út, en flóknara að takast á við umræðuna eftir á. Obama vildi birtast þjóðinni sem mikil stríðshetja. Hetjan sem réði niðurlögum þjóðaróvinar númer eitt. Þess vegna birti Hvítahúsið myndir af forsetanum, utanríkisráðherranum, herráði og helstu ráðgjöfum þar sem þau fylgdust með beinni útsendingu af innrás sérsveitar í híbýli ObL. Sagt var í upphafi að skipunin um aftök hafi komið frá forsetanum sjálfum. Bjálfinn Pelosi, sem hélt ekki vatni vegna grimmdarverka Bush í Guantanamo, fannst bara flott að Obama skyldi láta taka óvininn af lífi án dóms og laga. Bærilegur talsmaður mannréttinda þar.

En síðan áttaði Hvítahúsið sig á því að þessi þátttaka Obama í aðgerðunum var ekki gott PR og hugsanlega áttuðu þeir sig á að síðar gætu myndir af atburðinum "lekið" á netið. Við svo búið varð að gefa út tilkynning að myndsambandið hafi rofna í 20 mínútur akkúrat á þessum afdrifaríku mínútum. Vopnuð mótspyrna húsráðanda var svo borin til baka, hugleysi Osama bakvið pilsfald eiginkonu reyndist heldur ekki standast nánari skoðun og aftaka hennar síðar "down grade-uð" í skot í fótinn. Útskýringarnar hafa fimm sinnum tekið breytingum og óljóst hvort þar sé einhver endapunktur í sjónmáli. Hvítahúsið útskýrir nú ósamræmið í yfirlýsingunum sem "Fog of war" og skelfingarsvipur á andliti Hillary hefur nú breyst í astmakast.

Til að fá einhvers konar pólitískan geislabaug út úr öllu saman dreif spunasveit Hvítahússins í að halda minningarathöfn á lóð Tvíburaturnanna. Hraðskeyti var sent til George W. og honum boðið að koma sem þriðja hjól undir vagninn. Bush sá í gegnum áróðursbragðið og afþakkað kurteislegs. Hann ætlar að heiðra minningu látinna við athöfn sem haldin verður í september þegar 10 ár eru liðin frá árásunum. Kudos fyrir Bush.

En þrátt fyrir allar hagræðingar á frásöginni er málið enn ekki útkljáð. Bitbeinið nú er myndbirting af bin Laden dauðum. Öll spjót standa á Obama bæði frá hægri og vinstri. Skítt með að myndirnar geta valdið uppþotum um allan hinn múslímska heim. Því verða menn að mæta með karlmennsku, því Wikileaks skjölin hafa sýnt að slíkar upplýsingar geta skotið upp kollinum þegar minnst varir og þá gjarnan á versta tíma. Óbirt fæðingarvottorð Obama var farið að grafa undan trúverðugleika hans og á sama hátt geta myndir af  bin Laden dauðum endað allar óraunhæfar vangaveltur, sem leitt gætu til óeðlilegrar helgidýrkunar á karlinum.

Þrátt fyrir samhæfða spunasveit er Obama enn ekki kominn á fast land hvað þessa aðgerð varðar.

Charles Krauthammer birti góða grein um aðdraganda og fall Osama bin Laden. Hana ættu sem flestir að lesa. Og Wolfowitz leggur sitt lóð á vogarskálina. Að endingu leiðbeinir borgarstjórinn í Lundúnum okkur um hvernig skuli bregðast við (the dos and don´t) innrás sérsveita bandaríkjahers á heimilið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband