Leita í fréttum mbl.is

Hlutleysi RÚV!

Linda Blöndal - RÚVAnnað slagið rís upp umræða um meint hlutleysi RÚV. Undantekningalaust birtist þá Páll Magnússon eða Óðinn fréttastjóri Jónsson kokhraustir og kannast ekki við halla á fréttaflutningi stofnunarinnar. Stofnun þeirra. Og svo sannarlega telja þeir að stofnunin sé þeirra, enda fara þeir með hana sem sína einkaeign. Enginn vafi leikur lengur á pólitískum yfirráðum á RÚV. Ekki eftir "fréttaskúbb" dagsins. Ekki eftir pistil Rásar2 í dægurmálaútvarpinu nú í eftirmiðdag. Stöllurnar Linda Blöndal og Erla S. Ragnarsdóttir fóu þar á kostum þegar þær spiluðu langt mónólog Ólafs F. Magnússonar, þar sem hann bar ýmsarErla S. - RÚV ávirðingar á borgarstjóra og borgarfulltrúann Gísla Martein. Efa ég að þessir fulltrúar Reykvíkinga hafi setið hljóðir á eftir, en áheyrendum var ekki gefinn kostur á að heyra andsvör. Þeir sem sátu undir ávirðingunum fengu ekki sekúndubrot af útsendingartíma dægurmálaútvarpsins til andsvara. Dillandi músík og síðan umræða frá Alþingi, þar sem tekist var á um forkastanlega afgreiðslu fjárlaganefndar á Icesave. Þrír sjálfstæðismenn fengu þar að koma skoðun sinni á framfæri. Lítur nú helst  útfyrir að umræðan frá Alþingi hafi gengið svo nærri þáttastjórnendum að þeir hafi ekki treyst sér til að hlusta á borgarstjóra og Gísla Martein bera af sér ásakanirnar. En hlustendur, sem greiða nauðugir afnotagjöldin, eiga rétt á að fá að hlýða á allar hliðar máls jafnvel þótt það þreyti dagskrárgerðarmenn. Ávirðingar Ólafs þóttu þó það fréttnæmar að þær voru endurfluttar í kvöldfréttatíma og til að tryggja að enginn hafi farið á mis við boðskapinn var valinn kafli sendur út í lok Spegilsins. Sjónvarpið sá svo um að endurflytja hugvekju Ólafs, sem þegar betur er að gáð snéri frekar að "Trio con mezzo" en Sjálfstæðisflokknum. En "sannleiksleitandi áróðursmeistarar RÚV" sáu ekki ástæðu til að leiðrétta það.

Morgunútvarp Rásar 2, sem mér hugnast að mörgu leyti ágætleg, lætur ekki sitt eftir liggja hvað þetta varðar. Enginn sjálfstæðismaður hefur fengið þar inni til að tjá pólitíska skoðun öðruvísi en að Samfylkingin fái umsvifalaust að veita andsvar. Maður á mann eins og það er kallað. Og ég minnist þess ekki að framsóknarmaður eða fulltrúi Hreyfingarinnar hafi fengið að viðra skoðun, jafnvel ekki í debat við Samfylkinguna. Fyrrverandi þingmenn þessara tveggja utangarðsflokka, Bjarni Harðarson og séra Hjálmar Jónsson fengu þó nýlega að koma í þáttinn til að ræða bækur sínar sem báðar eru á ævisögulegum nótum. Hins vegar fá ráðherrar ríkisstjórnarinnar og málpípur þeirra ómælt rými til að bera pólitískan boðskap sinn á þjóðarborðið.

ÞjóðarskútanÞað fer að læðast að manni grunur að RÚV sé komið í startholurnar vegna sveitastjórnarkosninga næsta vor. Baráttan um borgina er hafin. Línan hefur verið lögð og skal séð til þess að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn ruggi ekki hinni strönduðu ríkisskútu.  Í þeirri baráttu hefur einkastöð ríkisstjórnarinnar hlutverki að gegna. Hún á að sjá um þöggun óæskilegra radda í samfélaginu. Dægurmálaútvarpið hefur sýnt sitt andlit, en í þessum efnum lætur sjónvarpið ekki sitt eftir liggja, eins og sjá mátti í kvöld varðandi fréttina af Ólafi F. sem í eina tíð þótti ekki brúklegt fréttaefni nema hann sé að flækjast fyrir sjálfum sér. 

Fyrir utan Ólaf F. hefur RÚV ekkert fréttnæmt séð á vettvangi borgarmála síðan Björk Vilhjálmsdóttir hnaut um sinn eigin bjálka þegar hún reyndi að benda á flísina í Framsóknarflokknum. Í samanburði við Dag B. var Sigmundur Davíð þó ekki nema hálfdrættingur og umræðan þagnaði því jafnskjótt.

Ætli RÚV, útvarp eða sjónvarp, hafi hugmynd um að borgarstjóri Reykjavíkur heitir Hanna Birna Kristjánsdóttir? Ef dæma má af áhugaleysi stofnunarinnar á málefnum borgarinnar hafa fréttirnar ekki enn borist þar inn á borð. Það er breyting frá þeim tíma, þegar R-listinn réði þar ríkjum og fréttamenn RÚV mættu með tannburstann svo þjóðin færi ekki á mis við gullkornin sem þá hrutu af hvers manns vörum.

Fyrir þessa "þjónustu" fáum við að greiða hvort sem okkur líkar betur eða ver. 

 

Mynd 1 og 2: www.ruv.is

Mynd 3: www.dailytelegraph.co.uk

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er allavega ekki eytt miklum tíma í að fjalla um Climategate, hvorki á rúv né öðrum íslenskum fjölmiðlum.  Þeir eru ónýtir, það sannaðist í aðdraganda hrunsins.

CRU vísindamenn "glæpamenn"

Gullvagninn (IP-tala skráð) 26.11.2009 kl. 20:58

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Satt segir þú, Climategate verður ekki í umræðunni ef RÚV fær að ráða. Ekki frekar en fjallað var þar um þegar "súra regnið" reyndist bara venjuleg sveppasýking í trjám. Þá dó sú umræða út. Nóg hafði súra regnið þó tekið af umræðunni á meðan hægt var að nota það í áróðrinum gegn iðnfyrirtækjum. 

Kaupmannahafnarráðstefnan og heimsókn Obama munu taka upp alla fréttatíma á næstunni. Ef samkomulag verður þar um að þrengja verulega að lífsafkomu Vesturlandabúa mun RÚV taka því sem mikinn sigur.

Ekki er á sjálfseyðingarhvöt þessa fólks logið.

Ragnhildur Kolka, 27.11.2009 kl. 08:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband