Leita í fréttum mbl.is

Hinir raunverulegu hryðjuverkamenn

Jóhanna og skósveinninnEnn einu sinni liggja Íslendingar undir hótunum terroristanna í stjórnarráðinu. Jóhanna og skósveinn hennar hóta vist í Víti ef við samþykkjum ekki Icesave-drápsklyfjarnar. Borið er við að endurreisn efnahagslífsins tefjist um mörg ár ef við samþykkjum ekki að greiða skuldir einkabankans og að lánshæfismat landsins muni seint bera þess bætur. Hryllirinn Gylfason stingur svo reglulega upp kollinum (eða niður pennanum) og grettir sig á síðum Fréttablaðsins. Sauðsvartur almúginn skilur ekki þessa (hunda) lógík því okkur var alltaf talin trú um að við ættum ekki að taka á okkur meiri skuldbindingar en við réðum við. Því síður skiljum við hvernig lánshæfismatið geti batna eftir að Icesave-klafinn verður á okkur lagður.  

Við erum farin að venjast þessum hótunum. Þær eru nú næstum daglegt brauð, en eftir að Bretar lýstu okkur hryðjuverkamenn með samþykki Evrópusambandsins, seðlabanka þess og "frænda" okkar á Norðurlöndum er ekki margt fleira sem getur raskað ró okkar. Eða eins og einhver sagði: Af botninum er aðeins ein leið fær og hún er upp, að því gefnu að við lifum þetta af. 

Margir undruðust ákvörðun Breta að skella hryðjuverkalögum á landið síðast liðið haust. Á varnarlausa þjóð hvers helsta vígbúnað er að finna um borð í hvalveiðabátum sem lengst af lágu bundnir við bryggju. Undrun okkar jókst þegar seðlabanki Evrópu hafnaði aðstoð við okkur. Vissu þeir ekki að utanríkisráðherrann og allur hennar vígreifi flokkur var tilbúin að vaða eld og brennistein ef aðeins hann mætti ganga í sæng þeirra? Ekki batnaði það þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tók að sér innheimtuhlutverk fyrir þessar "vinaþjóðir" okkar og "frændþjóðirnar" lögðust á hliðina.

Þessi undrun sem við upplifðum í fyrrahaust entist aðeins á meðan sárasta sjokkið reið yfir, nú erumDæmigerður Íslendingur við orðin sjóuð og þolum hótanirnar betur. Nú vitum við líka hvernig stórveldin haga sér gagnvart smáþjóðum sem þær geta haft gagn af. Við erum valdapólitískur konfektmoli sem Samfylkingin ætlar að færa Evrópusambandinu á silfurfati.

Í þröngri varnarstöðu á heimavígstöðvunum sá Gordon Brown sér leik á borði þegar hann setti hryðjuverkalög á Ísland. Hann átti tryggan stuðning ESB enda einn þeirra sem undirrituðu Lissabon sáttmálann (stjórnarskrá ESB).  

Þeir sem halda því fram að sáttmálinn taki ekki gildi fyrr en eftir að Írum verður þröngvað til að greiða atkvæði með honum ættu að vita betur. Undirbúningur er á fullu og Brusselbullurnar hafa unnið eftir sáttmálanum á bakvið tjöldin allar götur frá undirritun.  

Eins og skytturnar hans Dumas stendur ESB með sínum. Þegar hryðjuverkaógn eða árás steðjar að einni ESB þjóð þá standa þær saman sem ein (nema náttúrlega ef Rússar gerðu sig líklega til að leggja eitthvert smáríkið á austurkantinum undir sig). Einn fyrir alla, allir fyrir einn. Loforð sem meitlað er í sáttmálann og má finna í fimmtu "Samstöðugrein" samningsins.  Sambandið heitir því þar að beita öllum tiltækum ráðum til að hrinda árás af höndum sér sem og aðildarþjóða.

Bretar innkölluðu loforð samstöðugreinarinnar þegar þeir skilgreindu banka Íslands sem terrorista. ESB greip tækifærið fegins hendi til að sýna samstöðu og mátt, enda ekki að vita hvenær ESB fær næst tækifæri til að mæta jafn verðugum andstæðingi sem Ísland er. Er furða þótt við höfum fyllst undrun.

Hverjir skyldu nú hinir raunverulegu hryðjuverkamenn vera?

 

Mynd 1: www.rúv.is

Mynd 2: Dæmigerður Íslendingur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband