Leita í fréttum mbl.is

365 millur í mínus

Slip-copy

Páll Magnússon hlýtur að fá klúðursverðlaun forseta Íslands í ár, þ.e. ef forsetinn er ekki búinn að taka þau frá fyrir sjálfan sig. Það má varla á milli sjá hvor hefur betur í keppninni að skripla á bananahýðinu. En þetta eru fagmenn sem kunna til verka og munu berjast um titillinn þar til yfir lýkur.

Það er engin nýlunda að ríkisstofnanir keyri yfir á heftinu. Við tökum varla eftir því þótt tap nemi einhverjum hundruðum milljóna (milljarða). En það hlýtur að teljast kaldhæðni örlaganna þegar rekstrartap RÚV nemur sömu upphæð og nafnið á auglýsingaspjaldi keppinautarins. Með því að tengja tapið keppinautnum undirstrikar það hið gríðarlega tekjuforskot sem RÚV býr við. Forskot sem þó dugir ekki til að halda þeim innan tekjurammans. 

Við þessar aðstæður er með öllu óskiljalegt að RÚV leyfi sér þennan frammúrakstur. En fyrst svo var því í ósköpunum töpuðu þeir ekki 366 millum eða sléttuðu þetta bara upp í 400 millur. 365 milljóna tap gerir RÚV bara hallærislega hlægilegt.

En kannski eitthvað freudískt þarna á ferðinni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Hermannsson

Óheyrilega fyndin tilviljun. En alltaf hef ég vissa samúð með mínum gamla vinnustað. Það eru gerðar miklar kröfur til RÚV og það kostar peninga að verða við þeim kröfum. Ég sé ekki ofsjónum yfir þessari fjárhæð en mikið vildi ég að stofnunin stæði sig betur en hún gerir. Frammistaða spyrla í kastljósþáttum og kosningabaráttunni var með ódæmum. Þetta fólk ætti ekki að fást við önnur störf á RÚV en ræsta salernin.

Baldur Hermannsson, 1.5.2009 kl. 10:45

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég er ekki mótfallin því að hér sé ríkisrekinn fjölmiðill. Það er ýmislegt í menningu okkar og daglegu lífi sem hægt er að halda til haga hjá slíkum miðli og að mörgu leyti stendur RÚV undir því.

En miðill sem rekinn er með skylduáskrift hlýtur að þurfa að gera ólíkum sjónarmiðum sem í þjóðfélaginu ríkja, trúverðug skil. Því er ekki til að dreifa. RÚV hefur um árabil skákað í því skjóli að hlutverk þess sé að veita stjórnvöldum aðhald. En þess í stað hefur RÚV flutt skefjalausan áróður og róg fyrir stjórnarandstöðuna, ekki bara í föstum og tilfallandi dagskrárþáttum heldur líka í fréttatímum. Kastljósið er, þegar það er ekki upptekið af að reka sinn samfylkingaráróður, lítið annað en tregatogstittur.   

Sjáum við einhver merki þess að RÚV sé að veita núverandi stjórnvöldum aðhald. Telur þú, Baldur, líkur á að það eigi eftir að gerast?

Ragnhildur Kolka, 1.5.2009 kl. 12:51

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Nei, reyndar tel ég þær líkur afar litlar. Þau munu smjaðra fyrir Jóhönnu eins og væri hún býflugnadrottning.

Kannski væru maurar betri samlíking. Hafa maurar samskonar drottningu?

Baldur Hermannsson, 1.5.2009 kl. 13:02

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Eðlislæga hjarðhegðunin er hin sama og Samfylkingin bergmálar það í kórsöngnum um ESB. 

Ragnhildur Kolka, 1.5.2009 kl. 13:40

5 Smámynd: Baldur Hermannsson

Það er eitthvað svo ómennskt og óendanlega fyrirlitlegt við hjarðhegðun. Þá fyrst er maðurinn maður þegar hann stígur út úr fjöldanum og hugsar sjálfstætt.

Baldur Hermannsson, 1.5.2009 kl. 13:46

6 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

:-)

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 1.5.2009 kl. 14:13

7 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Satt segir þú Baldur. Það er einmitt sá eiginleiki sem gerir manninn að manni. En hin frumstæða tilhneiging að fylgja straumnum er sterk og einnig tilhneigingin að leita í  félagsskap sér líkthugsandi. "The Big Sort" fjallar einmitt um þá tilfærslu sem velmegun í BNA hefur haft í för með sér þar í landi.

Sigurgeir; er stóra stundin ekki að renna upp?   

Ragnhildur Kolka, 1.5.2009 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband